Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 12
12
Neytendur___________________________
DV kannar verð á framköllun
Ýmislegt í boði
í könnun, sem við gerðum á verði
framköllunar, kemur fram að það hef-
ur ekki hækkað nema'a einstaka stað
síðan í vor sem leið.
Kannað var framköDunarverð hjá
sjö aðilum í Reykjavík og Kópavogi,
auk þes sem við virkjuðum fréttarit-
ara DV í þremur ríkjum. Niðurstöð-
urnar eru, sem fyrr segir, aö verðið
virðist hafa staðið í stað og því heldur
dregið úr muninum milli verðsins hér
og í öðrum löndum.
En ekki er allt sagt með verðinu
einu. Samkeppni á þessu sviði er
gevsihörð og hefur hún allt að segja í
þessu sambandi. Flestar framköllun-
arstofur nota vélar sem framkalla á
‘inni klukkustund og eru vélar þessar
það dýrar að herkostnaðurinn verður
óheyrilega mikill í þessum bransa. Það
er iiklega ástæðan fyrir þvi að verðið
hefur ekki lækkað. En samkeppnin
skilar sér á annan hátt. Eins og fram
kemur annars staðar á síðunni hefur
það færst í vöxt að stofumar bjóði við-
skiptavinum sínum upp á einhvem
kaupbæti, sem er þá oftast verulegur
afsláttur á nýrri filmu eða jafnvel
ókeypis fdma eins og ein stofan gerir.
Þetta gerir það að sjálfsögðu að verk-
um að filmukostnaöur lækkar til
muna enda fer það í vöxt að hægt sé
að fá ódýrar filmur því i filmusölu er
engu minni samkeppni, en ekki sami
herkostnaður eins og í framköllun því
ekki þarf að fara út í milljónafjárfest-
ingu til að selja filmur.
Það vekur athygli að Hans Petersen
er eina stofan sem hefur hækkað verð
sitt og ber hún nú höfuð og herðar
yfir aðrar stofur. Þar kostar framköll-
un 130 kr. og kópíering á hverri mynd
21 kr. sé miðað við stærðina 9x13.
Heildarkostnaður við framköllun er
því 634 kr. miðað við að notuð sé 24
mynda litfilma.
Lægst reyndist hins vegar verðið
vera hjá Filmunni í Hamraborg. Þar
var heildarkostnaður aðeins 580 kr.,
auk þess sem boðið er upp á 25% af-
slátt af nýrri filmu og skiptir þá engu
máli hverrar gerðar filman er.
Myndsýn býður þó ennþá bestu
kjörin ef menn hafa þolinmæði til að
bíða í átta tíma eftir framköllun. Þar
kostar framköllun á 24 mynda filmu
590 kr. og fylgir ný filma með í kaup-
bæti.
Eins og áður sagði fengum við frétta-
ritara DV í þremur löndum til að
kanna verð hjá sér. í ljós kom að fram-
köllunarverð í Noregi er svipað og hér
og mun raunin vera sú almennt á
FIMMTUDAGUR 15. OKTÖBER 1987.
DV
Framköllunarvél sem þessi kosta sitt og er ein ástæðan fyrir háu framköllunar-
verði. Alls munu nú vera um 30 slíkar vélar í landinu.
Norðurlöndum. í Kanada horíði málið
öðruvísi við. Þar var hægt að fá fram-
köllun á 24 mynda filmu fyrir aðeins
300 kr. en þá þarf að bíða í viku og
því ekki réttlátt að bera það verð sam-
an við þær hraðframkafianir sem hér
tíðkast. Við notuðum því til viðmiðun-
ar verð á hraðframköllun í Kanada
sem er um 372 kr. Frakkland var einn-
ig með í myndinni og var einnig hægt
að fá framköllun á nánast hvaða verði
sem var þar. Við tókum það ráð að
taka meðalverð á framköllun í Frakkl-
andi sem er kr. 430. -PLP
Aukin samkeppni í framköllun
Nú eru nokkrir mánuðir síðan við
könnuðum verð á framköllun og
fannst okkur því ekki úr vegi að kanna
ástand þessara mála nú. Síðan Mynd-
sýn bauð filmu í kaupbæti með
framköllun hefur samkeppni í grein-
inni harðnaö til muna. Það sést einna
gleggst á þvi að verð hefur mestmegn-
is haldist óbreytt, með nokkrum
undantekningum þó.
Þannig hafa tvö fyrirtæki hækkað
verðið hjá sér en hjá öðrum virðist
stefnan oröin sú að halda verðinu sem
mest óbreyttu.
Stöðugt fjölgar þeim aðilum sem
fjárfesta í framköOunarvélum sem
geta framkaOað og stækkað á einni
klukkustund og þar sem vélar þessar
eru dýrar verður róðurinn sífeOt
byngri við að láta þær borga sig.
Nokkrir heimOdamenn DV töldu
enda aö í uppsighngu væri mikil
kreppa á markaðnum, góðærisveisl-
unni væri að ljúka og erfiðir tímar að
fara í hönd. Við þaö bætist svo að
mesti annatíminn er yfir hásumarið
en yfir veturinn virðist myndataka
almennings detta alveg niður nema
rétt um jólaleytið.
Þegar virðast nokkur fyrirtæki vera
að reyna að laða til sin viöskiptavini
með gylliboðum. Áður hefur verið
minnst a aukafilmu Myndsýnar. Þetta
er gyOiboð sem engum hefur tekist að
leika eftir en nokkrir eru þó famir að
leitast við að bjóða viðskiptavinum
sínum vOdarkjör. Sem dæmi um þetta
býður FOman í Hamraborg þeim sem
þar láta framkaOa upp á 25% afslátt
af nýrri filmu og getur þá filman kost-
að allt niður í 143 kr„ en fyrirtækið
selur KonicafOmur á 190 kr. í smásölu.
Ljósmyndavörur h/f í Skipholti bjóða
þeim sem þar framkaOa upp á Fuji
filmu á 160 kr. sem er heOdsöluverð
með söluskatti. Hraðfilman í Breið-
holti býður upp á ókeypis stækkun í
stærðinni 13x18 í kaupbæti og eru
eílaust fleiri með svipuð tilboð í gangi
þó Neytendasíðu sé ekki kunnugt um
hverjir.
Einnig spá margir því að stórmark-
aðir fari að setja upp framköOunarvél-
ar í tengslum við verslanir sínar. Það
yrði þá gert til að laða að viðskiptavini
og ekki ósenrúlegt að verðinu verði
haldið niðri til aö neytandinn sjái
ástæðu tíl að fara í viðkomandi stór-
markað og staldra viö þar í svo sem
eina klukkustund.
Kaupstaður í Mjódd hefur einmitt
verið nefndur sem til aOs líklegur í
þessu sambandi en verslunarstjóri þar
sagði svo ekki vera. Að vísu er verið
að opna hraðframköOun í húsnæði
verslunarinnar en þaö er gert í fuOu
samstarfi við Hans Petersen og verður
verðið það sama og hjá Kodak.
-PLP
Ódýr rúm og rúmföt
Ný verslun var opnuð á dögunum
í Kópavogi. Daginn fyrir opnun birt-
ust nokkrar auglýsingar frá verslun-
inni og voru þær sérstæðar að því
leyti að þar var getið um verð Aug-
lýsingin vakti geysiathygO enda
verðið lægra heldur en gengu- og
gerist og ákvað DV að Ota á staðinn.
Við komum í verslurúna um tíu-
leytið um morguninn. Þá var komin
röð fyrir utan en ösin var svo mikO
að verslunarstjórinn ákvað aö
hleypa inn í skömmmtum, svona
eins og á skemmtistöðunum. Versl-
unin sérhæfir sig í rúmum og öllu
sem þeim fylgir, s.s. sængum, sæng-
urverum, koddum, o.s.frv., og þegar
við komum var fyrsta sendingin af
rúmum þegar að veröa búin.
Við ræddum OtiOega við Hermann
Bjarnason verslunarstjóra:
- Hermann, er þetta undirboð, eöa
hvemig stendur á þessu verðlagi?
„Verslunin er rekin í tengslum við
danskt fyrirtæki, Jusk sengetojslag-
er, og höfðu þeir veg og vanda af þvi
að setja up verslunina. Eins og þú
sérð þá er ekkert innréttað hér og
þvi enginn kostnaöur samfara því.
Viö höfum heldur engan skrifstofu-
kostnað því við seljum ekki á
afborgunum hér þarf fólk að greiða
með peningum eða greiðslukortum.
Álagningu hefur einnig verið haldið
í lágmarki.“
- En kemur þetta verð til með að
haldast, er þetta ekki bara opnunart-
Oboð?
„Þetta er opnunartOboð að ein-
hveiju leyti. Hins vegar kemur
verðið tO með að haldast nokkuð
svipað, svo fremi sem gengið helst
stöðugt." -
- Nú er hleypt iim í verslunina í
skömmtum og sýnist mér skýringin
vera löng röð við greiðslukassa.
Hvers vegna seturðu ekki upp fleiri
kassa?
„Hér eru tveir kassar og setti ég
ekki upp fleiri því mér datt ekki í
hug að fólk kæmi hingað í þessum
mæfi. Nú þegar eru ýmsir hlutir að
klárast og verð ég að panta meir
strax í kvöld. Vörumar verða svo
komnar hingaö eftir þrjár vikur.“
-PLP
Að morgni fyrsta dags var komin röð en hleypt var inn
i búðina í skömmtum.
Og inni var ösin í hámarki.
DV-myndir S
800-1
Framköllun á 24 mynda filmu
■| Súla 2, afsláttur á Fuji filmu sem kostar þá kr. 160
Súla 5, ókeypis filma i kaupbæti
^ Súla 6, 25% afsláttur af filmu
Súla 7, ókeypis stækkun 13x18
U pplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér oröinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
Qölskyldu af sömu stterð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í september 1987:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.