Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1987, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987.
Vidskipti
Brasilíumenn svöruðu í kaffinu
Brasilíumenn svöruöu spenntum
kafTiheiminum meö í kringum 110
centa veröi fyrir pundið afkaffibaun-
um þegar þeir hófu sölu sína aftur
um helgina. Búist haföi veriö viö háu
verði hjá Brasilíumönnum en svo
varö ekki. Heimsmarkaösverö á
kaffibaunum er nú í kringum 115
cent pundiö en það er meðalverð á
öllum tegundum kaffibauna. Sam-
komulag þjóðanna, sem rækta kaffi
og þeirra sem kaupa þaö, um lág-
marksverð, 120 cent, og hámarks-
verð, 140 cent, tekur formlega gildi
um áramótin. Nú er lágmarksverðiö
í kringum 110 cent og mun það fær-
ast upp í 120 cent um áramótin í
nokkrum stökkum.
Olíumarkaðurinn í Rotterdam hef-
ur veriö stöðugur að undanförnu.
Verðið hefur rokkað um einn til tvo
dollara upp og niður. Svo hefur verið
um nokkurt skeiö. Ekki er búist yið
miklum hreyfingum á næstunni, en
reynslan sýnir að órói verður á
markaðnum ef skærur í styrjöldinni
við Persaflóa harðna.
Verð á gulli í London er að lækka
aftur en þaö steig eftir-verðfallið í
Wall Street. Daginn sem lætin urðu
í Wall Street, 19. október, var verð á
gulli 465 dollarar únsan. Fjórum dög-
um síðar, 23. október, var verðið
orðið 479 dollarar únsan. Og þegar
það reis hæst var verð únsunnar
komið í 490 dollara. En í gær, 4. nóv-
ember, var verðið komið niður í 469
dollara, eða nálægt því verði sem
únsan var seld á dökka daginn í
Wall Street.
Verð á áli heldur áfram að lækka
á markaönum í London. Það var í
fyrradag 1012 sterlingspund, en var
í síöustu viku um 1125 sterlingspund.
Áður hafði verðiö fariö upp í 1250
sterlingspund. Lækkunin i London
er að hluta til vegna sterkari stöðu
sterlingspundsins gagnvart dollar,
en dollarinn hefur lækkað í verði að
undanförnu eins og við íslendingar
höfum orðið illilega varir við. Á1 er
mikil dollaravara. Menn i álheimin-
um greina þó enn mikla eftirspurn
eftir áli og mun meiri en var fyrir
nokkrum mánuðum, enda var verðið
þá líka lægra.
-JGH
nniiinvrb:
:l|:U iVV'i 11 t í
i
| •* * i i, i i i i l i
i ** i-'.'i,A i i. i i. i. A.W
-Á—i-.i -i.Í'.i i i i-
r~i "T~ rrr
■ 'i i. i i K
Á i 4 i... 4
4 4 i A 4
ÍA’i... 4' 4 V*
'í' í 'í í í í ; :
-j-'.j,". l-,;> ,y t
Það er viða til gull og vissara að vaka yfir því. Verð á gulli hefur lækkað að undanförnu og hafði í gær aldrei verið
eins lágt eftir að verðið rauk upp í kjölfar dökka dagsins í Wall Street þann 19. október síðastliðinn.
Perungamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæöur
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir veröa fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losaó innstæöur
sínar meö 3ja mánaöa fyrirvara. Reikningarnir
eru verótryggóir og meö 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru meö hvert inn-
legg bundið í tvö ár, verótryggt og meö 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóöum eöa almannatryggingum. Innstæöur eru
óbundnarog óverötryggöar. Nafnvextireru 22%
og ársávöxtun 22%.
Sérbók. Viö innlegg eru nafnvextir 17% en 2%
bætast viö eftir hverja þrjá mánuöi án úttektar
upp i 26%. Hvert innlegg er meöhöndlaö sérs-
taklega. Áunniö vaxtastig helst óbreytt óháö
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uói ef innleggið er snert. Á þriggja mánaöa
fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja
mánaóa verótryggðra reikninga, nú meö 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færö á
höfuöstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óþundin meö 27%
nafnvöxtum og 28,8% ársávoxtun á óhreyföri
innstæöu eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings
meö 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,8% i svonefnda vaxtaleiörétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er meö hvert innlegg bundiö í 18 mán-
uöi á 28,5% nafnvöxtum og 30,5% ársávöxtun,
eöa ávoxtun verötryggös reiknings meö 3,5%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
aö 18 mánuöum liönum. Vextir eru færöir hálfs-
árslega.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggöur reikningur meö 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru
3%. Á sex mánaöa fresti eru borin saman verö-
tryggö og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er aö taka út t.visvar á hverju
sex mánaða timabili. Vextir færast misserislega
á höfuöstól.
18 mánaða bundinn reikningur er meö 31%
nafnvöxtum og 31% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meö 29%
nafnvöxtum og 31,1% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæöu frá síðustu áramótum eöa
stofndegi reiknings siðar greiöast 30,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 32,5%) eftir 16 mánuöi og
31% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 33,1%). Á
þriggja mánaöa fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær-
ast misserislega á höfuöstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 16%, eftir 3 mánuöi 19%, eftir 6
mánuöi 25%, eftir 24 mánuði 27% eöa ársávöxt-
un 28,8%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaöa verö-
tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta-
reikninginn. Vextir færast á höfuöstól 30.6. og
31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 26% nafn-
vexti og 27,7% ársávöxtun á óhreyfóri inn-
stæöu. Ef ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
misserislega. Af útttekinni upphæö reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Abót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverötryggöra reikninga í bankanum,
nú 27,97% (ársávöxtun 29,15%), eöa ávöxtun
3ja mánaöa verðtryggðs reiknings, sem reiknuó
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
buröur er gerður mánaöarlega og vaxtaábótinni
bætt viö höfuðstól. en vextir færöir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 19%, þann mánuö. Heimilt er aö
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þeés aö ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuöi tek-
ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar meö
hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá
í 29,74-31,52%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er aö innistæöa, sem er óhreyfó í heilan
ársfjóröung, ber 27,5% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefur 30,47% ársávöxtun, eóa nýtur kjara
6 mánaöa verðtryggðs reiknings, nú meö 2%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjóröung.
Vextir og verðbætur færast á höfuöstól í lok
hvers ársfjóröungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færöar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram þaö breyta kjörunum
sem hér segir:
Viö eina úttekt í ársfjóröungi reiknast almennir
sparisjóósvextir af úttekinni fjárhæö, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Viö fleiri úttektir fær öll
innistæöa reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaöur fyrsta eöa annan virkan
dag ársfjóröungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfö út fjóróunginn. Reikning-
ur, sem stofnaður er síöar fær til bráðabirgða
almenna sparisjóösbókavexti en getur áunniö
sér kaskókjör frá stofndegi aö uppfylltum skil-
yrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggöur
og meó ávöxtun 6 mánaöa reikninga meö 3,5%
nafnvöxtum. Sé reikningur oröinn 3ja mánaöa
er gerður samanburöur á ávöxtun meö svoköll-
uóum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa
32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyföar innstæöur innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæöan eldri en 3ja mánaöa,
annars almenna sparisjóösvexti, 21,5%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er meö innstæöu bundna i 12 mánuöi, óverö-
tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðs reiknings, nú
meö 3,5% vöxtum, borin saman viö óverö-
tryggöa ávöxtun, og ræöur sú sem meira gefur.
Vextir eru færöir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóöa er meö innstæöu
bundna í 18 mánuöi óverðtryggða á 32% nafn-
vöxtum og 35,3% ársávöxtun eöa á kjörum 6
mánaöa verðtryggðs reiknings, nú með 3,5%
vöxtum. Vextir færast á höfuöstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóöirnir í Keflavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfiröi,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað,
Patreksfiröi og Sparisjóöur Reykjavíkur og ná-
grennis bjóða þessa reikninga.
Almenn veröbréf
Fasteignatryggö veröbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggö meö veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggð eöa óverötryggö og
meö mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverötryggöum skuldabréfum vegna
fasteignaviðskipta eru 20% eöa meöalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verö-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóöi ríkisins get-
ur numiö 2.688.000 krónum á 3. ársfjóröungi
1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúö á síðustu
þrem árum, annars 1.882.000 krónum. Út á
eldra húsnæði getur lán numiö 1.882.000 krón-
um, hafi viökomandi ekki átt íbúö á sl. þrem
árum, annars 1.317.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til allt aö 40 ára og verðtryggð. Vext-
ir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins
veröbætur og vextir, síöan hefjast afborganir
af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lifeyrissjóöa
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóöur
ákveöur sjóöfélögum lánsrétt, lánsupphæðir,
vexti og lánstíma. Stysti tími aö lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóöa aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóöum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og meö 5-9% vöxtum,
algengastir eru meöalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er aö færa lánsrétt viö flutning milli sjóöa eöa
safna lánsrétti frá fyrri sjóöum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaöir og lagð-
ir viö höfuðstól oftar á ári veröa til vaxtavextir
og ársávöxtunin veróur þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum veröur innstæðan i lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin veröur því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggö í veröbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel orðið neikvæö.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuöi á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uði. Þá verður upphæöin 1050 krónur og ofan
á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuö-
ina. Á endanum verður innstæöan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,8% á mánuöi eöa 45,6% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravisitala í nóvember 1987 er 1841
stig en var 1797 stig i október. Miðaö er viö
grunninn 100 i júní 1979.
Byggingarvisitala fyrir nóvember 1987 er 341
stig á grunninum 100 frá 1983, en 106,5 á
grunni 100 frá júlí 1987.
Húsaleiguvisitala hækkaði um 5% 1. okt. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem
viö hana er miöað sérstaklega í samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar
miöast viö meöaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuöi á undan.
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóösbækur ób. Sparireikningar 16-21,5 Sp
3ja mán. uppsögn 18-22,5 Sp
6 mán. uppsögn 19-24 Ab
12mán. uppsögn 22-26,5 Úb
18mán. uppsögn 31 Ib
Tékkareikningar 6-12 Sp
Sér-tékkareikningar Innlán verðtryggð 8-20,5 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán með sérkjörum Innlán gengistryggð 21,5-30 Úb
Bandaríkjadalir 6-8 Ab
Sterlingspund 8,5-9 Ab.Úb. Vb.Sb
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
, DansJ<arkrónur UTLANSVEXTIR 9-10 (%) Ib læg-
st
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 30-33 Sb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 30,5-31 eða kge
Almenn skuldabréf 31-35 Sb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 32-35 Sb
Skuldabréf 9-9,5 Úb.Sb.
Útlán til framleiðslu Ab
Isl. krónur 29,5-31 Sb
SDR 8,25-9,2- Sp
Bandaríkjadalir 9,25-10, 75 Sp
Sterlingspund 11,50-12 Vb.Bb
Vestur-þýsk mörk 5,75-6,7- Sp
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6
MEÐALVEXTIR
óverötr. sept. 87 31,5
Verðtr. sept. 87 VÍSITÖLUR 9.1
Lánskjaravisitala nóv. 1841 stig
Byggingavísitala nóv. 341 stig
Byggingavisitala nóv. 106,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 5% 1. okt
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestint
arfélaginu):
Ávöxtunarbréf 1,2995
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1,356
Einingabréf3 1,422
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,405
Lifeyrisbréf 1,157
Markbréf 1,227
Sjóðsbréf 1 1,170
Sjóðsbréf 2 1,129
Tekjubréf HLUTABRÉF 1,264
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiöir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr
Útgerðarf. Akure. hf. 160kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Á
í myrkri gildir
að sjást.
Notaðu endurskinsmerki!
IUMFERÐAR FararheH/
RÁÐ
DV
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensín og olía
Verö í Rotterdam, fob. 3. nóv.
Bensín, venjul.....166,50$ tonnið
eöa um........4,76 ísl. kr. lítrinn
Bensín, súper......185,50$ tonnið
eða um........5,27 ísl. kr. lítrinn
Gasolía............164,50$ tonnið
eða um........5,26 ísl. kr. tonnið
Hráolía
Verð í Rotterdam, fob„ 3. nóv.
Um..........19 dollarar tunnan
eöa um......714 ísl. kr. tunnan
Gull
Verð í London 4. nóv.
Um...........469 dollarar únsan
eða um.......17.634 ísl. kr. únsan
Al
Verð á áli í London 3. nóv.
Um....1012 sterlingspund tonnið
eða um.....66.387 ísl. kr. tonnið
Ull
Verð í Sydney, Ástralíu
Um................890 cent kílóið
eða um............335 ísl. kr. kílóið
Bómull
Verð á bómull í New York
Um..............67 cent pundið
eða um..........55 ísl. kr. kílóið
Hrásykur
Verð í London
Um..........187 dollarar tonnið
eöa um.....7.031 ísl. kr. tonnið
Sojamjöl
Verð í Chicago
Um..........180 dollarar tonnið
eða um......6.768 ísl. kr. tonnið
Kaffibaunir
' Um............115 cent pundið
eða um......2,53 dollarar kílóið
eða um......95,10 ísl. kr. kílóið