Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
Útlönd
Berjast áfram
Stjómarandstaöan í Bangladesh
hét þvi í rnorgun að berjast áfram
fyrir afsögn Hossain Mohammad
Ershad, forseta landsins, þráttfyrir
aögerðir þær sem hann hefur boö-
aö til þess að mæta kröfum þeirra
og slæva gagnrýni á sig og stjóm
sína.
Ershad sagði meðal annars í gær
aö hann væri reiöubúinn til þess
aö heimila erlendum eftirlitsaðil-
um að fylgjast meö þingkosningum
í landinu og að hann gæti veriö
reiðubúinn til þess að láta reyna á
vinsældir sínar með nýjum forseta-
kosningum.
Deaver sekur
Michael Deaver, einn af nánustu
vinum bandarísku forsetahjón-
anna, hefur verið fundinn sekur
um að hafa borið Ijúgvitni og getur
átt allt aö fimmtán ára fangelsis-
dóm yfir höföi sér. Kviðdómur i
máli Deaver komst að þeirri niður-
stöðu í gær að hann hefði boriö
ijúgvitni um það hvernig hann
hefði nýtt sér tengsl við Hvíta hús-
ið til þess að skara eld að eigin
köku í ráðgjafastarfsemi þeirri sem
hann rak í bandaríska þinginu.
Lögfræðingar Deavers sögðu i
gærkvöld að niðurstöðu kviðdóms-
ins yrði áfrýjað.
Sækir á brattann
Ljóst er aö Gary Hart, fyrrum öldungadeildarþingmaður, sem nú hefur
að nýju hafið baráttu fyrir útnefningu sinni sem forsetaefhi demókrata
í Bandaríkjunum, verður að sæKja á brattann næstu mánuöina. Hart, sem
lengi var talinn líklegastur til að hljóta útnefhingu demókrata, varð frá
að hverfa síöastliðið vor, vegna sambands síns við unga sýningarstúlku.
Mál þetta á grcinilega enn eftir aö koma mikið viö sögu þvi spurningar
um það virðast flestum efst í huga þegar þeir fá tækifæri til aö spyrja
Hart og fjölskyldu hans spurninga.
Hart bregst sjálfur ókvæða viö slíkum spumingum og neitar að ræöa
máliö en eiginkona hans, Lee Hart, svarar þeim ótrauð. Segist hún hafa
liðið mjög vegna málsins og sömu sögu sé af eiginmanni hennar að segja.
Sérfræöingar telja að Hart eigi tiltölulega litla möguleika til þess aö
hljóta útnefningu. Segja þeir aö honum muni reynast erfitt aö fá fjár-
magn til kosningabaráttunnar svo og aö ekki verði auðvelt fyrir hann
að finna starfsfólk til að reka kosningabaráttu sína.
Hörð vfðbrögð
Óeirðir Palestfnumanna á Gaza-
svæðinu, þar sem andstaða gegn
hemámi Israela hefur undanfarið
sýnt sig í vaxandi andófi og mót-
mælaaðgerðum, hefur vakið hörð
viðbrögð meðal ísraelskra her-
manna á sva?ðinu. Algengt er að
þeir kasti grjóti að mótmælendum,
aki um flóttamannabúðir Palest-
ínumanna með fanga bundna
framan á jeppa sína og varpi tára-
gassprengjum úr þyrlum niður á
búðimar, jafnvel á sjúkrahús f
þeim.
I að minnsta kosti einu tilviki notuðu ísraelskir hermenn skóladrengi
sera skildi, það er fólu sig á bak viö þá til að komast hjá árásum palest-
ínskra ungmenna.
Að sögn sjónarvoua er ljóst að ísraelsmenn misstu ekki aðeins stjóm
á hluta herteknu wæðanna í nokkra daga, heldur hafa þeir einnig misst
stjórn á sínum eigin hersveitum öðm hvora.
Einn af embættismönnum Sameinuðu þjóðanna á herteknu svæðunum
sagði f gær að ljóst væri að herliö ísraela á Gaza-svæðinu væri ekki und-
ir mjög höröum aga. í átökum á svæöinu undanfama átta daga hafa
ísraelskir hermenn orðið að minnsta kosti þrettán Palestínumönnum að
bana þar og sært meira en hundrað. Um tuttugu hermenn hafa meiðst.
Hafa Palestínumenn beitt grjóti, kastað flöskum og heimagerðum eld-
sprengjum að hermönnunum svo og beitt hnifum í einstöku tilvikum.
Segja embættismenn aö nýhöar í ísraelska hemum og fólk úr varahöi
hans veröi ofl óttaslegið, ráðvillt og haldið efasemdum um hlutverk sitt
þegar það standi frammi fyrir hópum reiðra palestinskra ungmenna.
Að minnsta kosti tveir létust í jarðskjálftanum í morgun, sém var nógu öflugur til að allt hrundi ur hillum í verslun-
um og á heimilum. . Simamynd Reuter
IVeir létust
í jarðskjáHta
Öílugur jaröskjálfti gekk yfir Jap-
an í morgun og tahð var að að
minnsta kosti tveir hefðu látist og
nítján slasast. Mældist jarðskjálftinn
6,6 á Richterskvarða.
Það var í héraðinu Chiba fyrir
austan Tokýo sem rúmlega þrítug
húsmóðir varð undir stórum skraut-
steini og hlaut bana af. Veggur lenti
ofan á vegfaranda á sömu slóðum og
beið hann bana. Fjögur hús hrundu
í Chiba.
Jarðskjálfti þessi er sá öflugasti
sem gengiö hefur yfir Japan á þessu
ári en það sem af er árinu era jarð-
skjálftarnir orðnir sex sem mælst
hafa meira en 6 á Richterskvarða.
Níu slösuðust í skjálftanum í Tokýo
í morgun. Meðal þeirra voru tveir
byggingaverkamenn sem féllu niður
frá byggingu þar sem þeir voru að
störfum.
Rafmagnslaust varð víða og járn-
brautarsamgöngur lágu sums staðar
niðri sökum skjálftans.
Fréttir herma aö aht lauslegt hafi
falhð úr hillum í híbýlum manna í
skjálftahrinum sem fylgdu á eftir.
Roh siguivegari
kosninganna
Frambjóðandi stjórnarinnar í Suð-
ur-Kóreu, Roh Tae-Woo, vann for-
setakosningamar, sem haldnar vora
í gær, með tveggja milljóna atkvæða
mun. Eftir að búið var að telja 92
prósent atkvæða breikkaði bihð milh
Rohs og harðasta keppinautar hans,
Kims Young-Sam, annars leiötoga
stjórnarandstöðunnar.
Stjómarandstæðingar fullyrtu að
kosningasvik hefðu verið höfð i
frammi og flokkur Kims kvaðst
mundu reyna að fá úrslitin lýst ógild.
Roh sagði ásakanirnar vera smáat-
riði sem auðveldlega mætti leysa.
Samkvæmt stjórnarskránni mun
Roh taka við embætti forseta þann
25. febrúar næstkomandi en þá endar
Chun Doo sjö ára kjörtímabil sitt.
Samkvæmt tölum, sem birtar vora
í nótt, eftir að um helmingur at-
kvæða haföi verið tahnn, virtist sem
stjórnarandstaðan hefði getað sigrað
ef hún heföi verið sameinuð eins og
lofað haíði verið í byrjun kosninga-
baráttunnar.
Það var fyrir sex mánuðum sem
Roh hóf baráttuná, vahnn til þess af
óvinsælum forseta. Og þegar til-
kynnt var um framboð hans í júní
var efnt til mótmælaaðgerða á götum
úti. i
Stjómarandstaðan lofar nú að hún
Roh Tae-Woo, hinn nýkjömi forseti Suður-Kóreu, fagnar sigri i morgun. muni beijast gegn hinum nýja for-
Slmamynd Reuter seta.