Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
Fréttir
íslendinganýlenda í Póllandi:
, Jókum mikinn mat með
okkur að heiman“
- segir Rafh Stefánsson vélstjóri, einn af 15 islenskum eftiriHsmönnum við skipabreytingar í Póllandi
„Ég er búinn að vera tvisvar sinn-
mn í einn mánuð í Gdynia í Póll-
andi síðan síðsumars sem eftirlist-
maður með breytingunum á
togaranum Brettingi og á eftir aö
fara einu sinni eða tvisvar út enn-
þá,“ sagði Rafn Stefánsson vélstjóri
1 samtali við DV en hann kom til
landsins í jólafrí á mánudaginn.
Rafn sagði að nú væru 3 íslenskir
togarar, sem á sinni tíð voru smíð-
aðir í Japan, í breytingum í Gdynia
í Póllandi. Fyrir utan Bretting eru
þar Vestmannaey VE og Páll Páls-
son ÍS. Hann sagði að 15 íslending-
ar hefðu verið við eftirlitsstörf þar
ytra í haust en nú væru flestir
komnir eða að koma heim en færu
svo aftur utan eftir áramótin.
Matur að heiman
- Nú hefur verið talað um matar-
skort í Póllandi, haflð þið orðið
varir við hann?
„Það hefur farið afar vel um okk-
ur íslendingana þama. Viö sem
erum í eftirhtinu með Brettingi
höfum okkar eigin íbúð og sjáum
um okkur sjálfir. Okkur hefur
gengiö ágætlega að fá matvæli enda
höfum við aðgang að svokölluðum
dollarabúðum. Aukinheldur tók-
um við mikinn mat með okkur aö
heiman og geymum í frysti. Annars
þykir mér úrvalið í þessum dollara-
búðum í Póllandi lítið meira en
Svona lítur Brettingur út um þessar mundir í miðjum breytingum
Steindór Sverrisson, stýrimaður á
Brettingi, tekur allar breytingarnar
upp á myndband fyrir útgerðina.
DV-mynd RS
Þegar verið var að hifa brúna á
Páli Pálssyni ÍS brotnaði kraninn
sem notaður var, eins og sjá má.
DV-mynd RS
Guðmundur Sigurvinsson, vél-
stjóri á Páli Pálssyni, keypti sér
forláta pólska harmóníku og leikur
á hana í tómstundum.
DV-mynd RS
Rafn Stefánsson vélstjóri.
DV-mynd GVA
maður sér í venjulegum verslun-
um.“
- Hafið þið rætt við Pólverjana um
pólitíska ástandið í landinu?
„Þeir ræða ekki mikið um það og
ég hef alla vega látið það vera.
Maðúr hefur aftur á móti orðið var
við mikinn óróa í fólki vegna fyrir-
hugaðra verðhækkana í landinu
um áramótin. Þá er ætlunin að
hækka verðlag á matvælum og
ýmsum öðrum nauðsynjavörum
um helming. Fólk hafði ákveðið að
hafa uppi mótmæh vegna þessa en
hefur frestað því fram til vors, að
þvi er mér er sagt.
Ástæðan fyrir því er sú að stjórn-
völd hafa hótað að taka fyrir alla
kolasölu ef óeirðir fara af staö, fólk-
ið hræðist kuldann og frestar
mótmælunum th vorsins.“
Miklar breytingar
- Ef viö snúum okkur að breyting-
unum á skipunum, má ekki kaha
að um ný skip verði að ræða eftir
breytingamar?
„Jú, eiginlega má segja það. Skip-
in verða lengd, sett á þau pem-
stefni, nýjar vélar verða settar í
þau og komið upp aðstöðu th að
heilfrysta karfa og grálúöu um
borð. Það er eiginlega bara gamh
skrokkurinn sem eftir stendur.
Þessar breytingar kosta um 150
mihjónir íslenskra króna á hvert
skip.
Þetta hefur gengið vel hjá Pól-
verjunum, enda eru þeir afbragðs-
góöir skipasmiðir og þá alveg
sérstaklega í ahri járnavinnu. Þeir
eiga í vandræðum með að fá þann
tæknibúnað sem þeir þurfa vegna
þess að hann þarf að panta utan-
lands frá og kerfið er svo þungt í
vöfum. Eitt htið varastykki getur
verið mánuði á leiðinni."
- Hafiö þið sæmhega a itöðu til
að fylgjast með í skipasmíðastöð-
inni?
„Hún er alveg ágæt. Þar að auki
höfum viö komið okkur upp skrif-
stofu. Hún þætti ef th vhl ekki mjög
glæsileg hér á landi en í skipa-
smíðastöðinni í Gdynia þykir hún
hara góð,“ sagði Rafn.
Hann sagðist verða heima ahan
janúar en fara svo aftur út í febrú-
ar en áætlað er að breytingunum á
Brettingi veröi lokið í aprh.
-S.dór
Hér er verið aö koma með nýja perustefnið á Bretting. Eins og sjá má er stefnið engin
smásmíði, enda 8 metra langt og með hliðarskrúfu, eins og sjá má. DV-mynd RS
Steindór ásamt pólskum tæknifræðingi sem Islendingarnir kalla Sibba.
DV-mynd RS