Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Blaðsíða 56
w
F= R ÉTT AS KOTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fuilrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Á skrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
Verða rauð jól í ár?
Þriðju hver
jól alrauð
- síðustu 38 árin
„Á síðastliðnum 38 árum hefur 12
sinnum verið alauð jörð á aðfanga-
dag, 10 sinnum verið flekkótt en 16
sinnum verið alhvítt," sagði Trausti
Jónsson veðurfræðingur samtah í
DV þegar hann var spuröur að því
hvort rauð jól yrðu í ár.
Samkvæmt þessum tölum eru um
42% hkur á að alhvít jörð verði um
jólin. Trausti sagöi jólin 1979-1984 öll
hafa verið alhvít og væru það óvenju
mörg ár í röð. Árið 1985 voru aftur á
móti rauð jól og lítill snjór var á að-
fangadag í fyrra.
Veðurfræðingar Veðurstofunnar
vilja ekki spá strax um hvort snjóa
^nuni um jóhn en engar verulegar
veðurbreytingar eru sjáanlegar
næstu daga. Því má búast við suð-
lægum áttum og hlýindum a.m.k.
fram á sunnudag. -JBj
Fjórtán sækja
um stöðu
hitaveitustjóra
~VFjórtán sækja um stöðu hitaveitu-
stjóra Reykjavíkur en Jóhannes
Zoega hitaveitustjóri lætur af emb-
ætti um áramótin.
Þeir sem sækja um eru þessir: Jón-
as Elíasson, prófessor og fyrrv.
aðstoðarmaður iðnaðarráðherra,
Gunnar Kristinsson,' yflrverkfræð-
ingur Hitaveitu Reykjavíkur, Ami
Gunnarsson, yfirverkfræðingur
Hitaveitu Reykjavíkur, Wilhelm V.
Steindórsson, fyrrverandi hitaveitu-
stjóri á Akureyri, Ólafur G. Flóvenz
jaröeðhsfræðingur, Gísh Júlíusson
verkfræðingur, Axel Björnsson, yfir-
verkfræðingur Orkustofnunar, Karl
Ragnars, framkvæmdastjóri Jarö-
borana hf., Sigurður Bjarki Magnús-
^on, hag- og tölvufræðingur, Garðar
Sverrisson verkfræðingur, Einar
Tjörvi Elíasson verkfræðingur, Jón
Leví Hilmarsson verkfræðingur,
Gunnar Axel Sverrisson, verkfræð-
ingur og Jón Steinar Guðmundsson,
skólastjórijarðhitaskólans. -JGH
LITLA
GLASGOW
LAUGAVEGI 91
SÍMI20320.
LEIKFÖNG
(SlM
LOKI
Líklegast fáum við
flekkótt kratajól!
Jón Baldvín Hannibalsson fjárniálaráðheiva á þingi í nótfc
Ástandið kallar
á umtalsverðar
efnahagsaðgerðir
„Astandið er þannig að það kall- malaráðherra vaktí talsverða felling kemur ekki til greina?“
ar augljóslega fljótlega á umtals- athygh. spurði Svavar Gestsson, þingmaö-
verðar efnahagsaðgerðir," sagöi „Það vekur að sjálfsögðu ýmsar ur Alþýðubandalagsins,
Jón Baldvin Hannihalsson fjár- spurningar hvað ráðherrann hafi í Svavar sagði að ráðherrann hefði
málaráðherra á Alþingi í nótt huga þegar hann tekur svo djúpt í nefnt tvennt, þaö aö rfltisstjórnin
Staða útflutningsgreina kom til árinni,“ sagði Halldór Blöndal, gæti reynt að-hafa jákvæð áhrif á
tals er rætt var í efri deild um þrjú þingmaður Sjálfstæöisflokksins, þróun kjarasamninga og reynt að
frumvörp ríkisstjómarinnar um sem næstur kom i ræðustól. hafa jákvæð áhrif á fjármagns-
óbeina skatta. Þessi yfirlýsing fjár- „Hvað er þá til ráða ef gengis- markaðinn í landinu. -KMU
Nú eru ekki nema sjö dagar til jóla og undirbúningur í fullum gangi. En það eru ekki bara jólin sem
öll börn bíða eftir heldur einnig jólasnjórinn. Krakkarnir á Austurlandi geta betur við unað heldur
en jafnaldrar þeirra sunnanlands því þar setti niður snjó á dögunum. Þoturnar voru auðvitað dregn-
ar fram um leið og fyrstu kornin komu úr lofti, eins og sést á þessari mynd sem tekin var á Eskifirði.
DV-mynd Emil
Veðrið á morgun: *
Kólnar á
Norðuriandi
Gert er ráð fyrir austan- og
norðaustanátt um allt land á
morgun. Á noröanveröum Vest-
fjörðum og á annesjum norðan-
lands verður dáhtil snjókoma en
rigning með köflum á Suöur- og
Austurlandi. Á Norðurlandi og
Vestfjörðum verður hiti um frost-
mark en 3-6 stiga hiti í öðnrni
landshlutum.
Samningaþreifmgar:
Við höfum
drukkið
nokkra
kaffibolla
- segir Guðmundur J.
„í samræmi við þá áskorun stjóm-
ar Verkamannasambandsins að
verkalýðsfélögin reyni samninga
hvert í sínu héraði, höfum við í Dags-
brún þreifað fyrir okkur hjá Vinnu-
veitendasambandinu. Við höfum
drukkið nokkra kafflbolla saman en
fátt markvert gerst,“ sagði Guð-
mundur J. Guðmimdsson, formaður
Dagsbrúnar.í samtah við DV í morg-
un.
Samkvæmt heimildum DV er ein-
hver hreyfing komin á samningavið-
ræður Dagsbrúnar og viðsemjenda
félagsins og raunar mun vera komin
hreyfing á samninga ýmissa annarra
félaga í landinu og vinnuveitenda á
hveijum stað fyrir sig.
Varðandi samninga félaganna úti á
landi er fyrst og fremst verið að
reyna að leita leiða tfl að bæta kjör
fiskvinnslufólks og er öh áherslan
lögð á það. Víða mun vera vilji fyrir
því hjá atvinnurekendum að ná ein-
hveiju samkomulagi við verkalýðs-
félögin áður en vetrarvertíð hefst.
Varðandi Dagsbrún, sem ekki hef-
ur margt fiskvinnslufólk innan sinna
vébanda, er verið að leita leiða „yfir
þann vegg sem myndaðist þegar upp
úr samningum shtnaði í haust,“ eins
og einn viðmælandi DV orðaði það.
Þessi sami maður sagði að það væri
óttinn við mikfl átök á vinnumarkaði
fljótlega eftir áramótin sem ræki
menn áfram í þessu máh.
-S.dór
Selfoss:
Stúdentffá
Utla-Hrauni
Fangi frá Litla-Hrauni útskrifast á
laugardag sem stúdent frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands á Selfossi og
er þetta í fyrsta skipti sem fangi lýk-
ur stúdentsprófi hér á landi á meðan
á refsivist stendur.
Samkvæmt upplýsigum, sem DV
hefur aflað sér, er fanginn á þrítugs-
aldri og hefur stundað nám við
fjölbrautaskólann um nokkurra ára
skeið og náð ágætum námsárangri.
Að jafnaði stunda sjö til tíu fangar
nám í fangaskólanum á Litla-Hrauni
sem er á vegum fjölbrautaskólans,
en htið er um þaö að fangar komi í
fjölbrautaskólann til náms. Þó mun
sá er nú útskrifast hafa stundað nám
1 skólanum á Selfossi um hríð. í slík-
um tflfeUum er nemandinn keyrður
frá fangelsinu í skólann en er ekki
undir sérstöku eftirhti þar, heldur
er þann á eigin ábyrgð. Samkvæmt
heimfldum DV hefur þessi háttur á
náminu gengið snurðulítið fyrir sig.
Skólayfirvöld fjölbrautaskólans
mimu ekki ætla að tflkynna um út-
skrift fangans fyrirfram þar sem
áformað er að hann verði þar sjálfur
viðstaddur ásamt öðrum nemendum
skólans.
í samtah við DV vildi Þór Vigfús-
son, skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurlands, ekki gefa upplýsingar
um þetta mál en gat þess að fréttatfl-
kynning yrði send frá skólanum þar
sem greint yrði frá útskriftinni. Á
milli 20 og 30 manns útskrifast frá
fjölbrautaskólanum nú í vetur.
-ój