Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988. 3 Tryggðu sparifé þínu háa vexti á einfaldan og öruggan hátt með spariskírteinum ríkis- sjóðs og ríkisvíxlum Verdtryggd sparislcírteini Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs bjóðast nú í þremur flokkum og eru vextir á þeim allt að 8,5%. Söfnunarskírteini bera 8,5% vexti í 2 ár eða 3 ár og hefðbundin spariskírteini með 6 ára bindítíma og allt að 10 ára lánstíma bera 7,2% vexti. Að binditíma liðnum eru hefðbundnu spariskírteinin innleysanleg afþinni hálfu og er ríkissjóði einnig heim- ilt að segja þeim upp. Segi hvorugur skírt- einunum upp bera þau áfram7,2% ársvexti út lánstímann, sem getur lengst orðið 10 ár. Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs til sölu núna: Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi l.fl. D 2 ár 8,5% l.feb ’90 l.fl.D 3 ár 8,5% l.feb. ’91 l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb ’94—’98 Gengistryggd spariskírteini Ný gengistryggð spariskírteini ríkis- sjóðs eru bundin traustum erlendum gjaldmiðlum, sem verja fé þitt fyrir geng- issveiflum. Gengistryggð spariskírteini ríkissjóðs eru annars vegar bundin SDR (sérstökum dráttarréttindum) og hins vegar ECU (evrópskum reikningseiningum), sem eru samsett úr algengustu gjaldmiðlunum í alþjóðaviðskiptum. Binditíminn er 3 ár og í lok hans færðu greiddan höfuðstól miðað við gengi á innlausnardegi auk vaxtanna, sem eru 8,3%. Hægt er að velja um innlausnardag hvenær sem er næstu 6 mánuði eftir gjalddaga. Endurgreiðslan er miðuð við gengi þess dags. Gengistryggð spariskírteini ríkissjóðs til sölu núna: Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi 1—SDR 3 ár 8,3% 11. jan.- 10. júlí ’91 1-ECU 3 ár 8,3% 11. jan. - 10. júlí ’91 Rikisvíxlar Nú hefur ríkissjóður hafið sölu á ríkis- víxlum til fyrirtækja og einstaklinga. Helsti kostur ríkisvíxla er sá, að á sama tíma og skammtímafjármunir eru varð- veittir á öruggan hátt bera þeir nú 33,1% forvexti á ári. Það jafngildir 41,3% eftirá greiddum vöxtum á ári miðað við 90 daga lánstíma í senn. Ríkisvíxlar: Lánstími dagar Forvextir* Samsvarandi eftirá greiddir vextír Kaupverð 500.000 kr. víxils 45 33,1% 40,2% 479.312 kr. 60 33,1% 40,6% 472.417 kr. 75 33,1% 40,9% 465.521 kr. 90 33,1% 41,3% 458.625 kr. * 15.1.1988 Ríkisvíxlar bjóðast nú í 45 til 90 daga. Þú getur valið um gjalddaga innan þeirra marka. Lágmarks nafnverð þeirra er 500.000 kr., en getur verið hvaða fjárhæð sem er umfram það. (Kaupverð 500.000 kr. víxils miðað við 90 daga lánstíma er kr. 458.625.) Samsetning SDR (Hlutföll (% ) m.v. gengi 21/12 ’87). Samsetning ECU (Hlutföll (% ) m.v. gcngi 21/12 ’87). Dollarar •Annað 4,9 Mork 34,9 Fr. írk. Yen 18.7 23.5 Gyllini 11 Pund 19,2 Pund 12,7 45 dagar 60 dagar 75 dagar 90 dagar Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum, sem m.a. eru viðskiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðla- banka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar, svo og spariskírteinin, í síma 91- 699863, greiða með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síðan send í ábyrgðarpósti. GOn FÓLK / SÍA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.