Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988.
41
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sylvester
Stallone
er ofsalega reiður út í Arn-
old Schwarzenegger vegna
viðtals sem birtist við hann
í Plaboy fyrir stuttu. Þar lýsti
hann því yfir að aumingja
Sylvester Stallone væri al-
veg misheppnaður náungi,
állt sem hann snerti á færi
í handaskolun hjá honum.
Það stóð ekki á viðbrögðum
hjá Stallone. „Næst þegar
við hittumst verður þú gerð-
ur að buffi, Swarchenegger
minn." Hætt er við að það
reynist Stallone érfitt því
Arnold er engin smásmíði.
Burt Reynolds
hafði allsérkennilegt áhuga-
mál. Hann er mjög hrifinn
að fisktegund sem heitir
koi, og er ákaflega dýr.
Hann er ekki hrifinn af
bragðinu af honum, heldur
finnst honum hann ákaflega
skemmtilegt gæludýr. Þess
vegna hafði hann koi fiska
fyrir jafnvirði 120 þúsund
króna í tjörn í garði sínum.
Honum brá mjög um dag-
inn þegar hann réð sér
rafmagnsmenn til viðgerða
hjá sér. Þeir misstu rafstreng
í tjörnina, og steiktu þá alla
saman.
Madonna
hætti nýlega við að skilja
við eiginmann sinn, Sean
Penn. Hún ætlar að gefa
honum annað tækifæri.
Hún hefur reyndar lítinn
tíma þessa dagana til að
sinna Penn því nú er mein-
ingin að opna veitingahúsa-
keðju um öll Bandaríkin
með eintómum grænmetis-
réttum því hún er græn-
metisæta sjálf.
Er hún ólétt?
Loks kom aö því sem Bretar og
aðrir hafa beðiö eftir; Sarah Fergu-
son er ólétt. Ef marka má fullyrðing-
ar dagblaðsins Sun í Bretlandi þá á
hertogaynjan af York von á sér í júlí.
Blaðafulltrúar úr Buckinghamhöll
hafa ekki viljað staðfesta þessa frétt.
Dagblaðið Sun heldur því fram að
drottningin hafl fyrirskipað að frétt-
unum yrði haidið leyndum svo lengi
sem mögulegt væri.
Sarah Ferguson er nú 28 ára göm-
ul. Þessa dagana er hún í leyfi á
skíðum í Sviss, á meðan Andrew
prins sinnir herskyldu sinni með Sarah Ferguson verður ekki svona grönn og glæsileg í júlí et marka má
konunglega sjóhernum. fréttir dagblaðsins Sun i Bretlandi.
HÆKKUN
IÐGJALDA TIL LÍFEYRISSJÓÐA
Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöld til
lífeyrissjóða í áföngum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af öllum
launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur
gilda þó um iðgjaldagreiðslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á
mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal
ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem
svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma-
kaup hlutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við-
bættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að
viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
1987
1988
1989
Hluti
starfsmanna:
1,0%
2,0%
3,0%
Hluti
atvinnurekenda:
1,5%
3,0%
4,5%
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur
með sama hætti 6%.
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
Lsj. byggingamanna • Lsj
Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar • Lsj
Lsj. Félags garðyrkjumanna • Lsj
Lsj. framreiðslumanna • Lsj
Lsj. málm- og skipasmiða • Lsj
Lsj. matreiðslumanna • Lsj
Lsj. rafiðnaðarmanna • Lsj
Lsj. Sóknar • Lsj
Lsi
verksmiðjufólks •
Vesturlands •
Bolungarvíkur •
Vestfirðinga •
verkamanna, Hvammstanga •
stéttarfélaga í Skagafirði •
■Iðju á Akureyri •
Sameining, Akureyri •
trésmiða á Akureyri
Lsj. Björg, Húsavík
Lsj. Austurlands
Lsj. Vestmanneyinga
Lsj. Rangæinga
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
Lsj. verkafólks í Grindavík
Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar