Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýstngar - Áskrift - Dreif:ng: Simi 27022.
Frjálst,óháð dagblað
í'
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988.
Atvinnuástand á Akranesi:
Fundað
með þing-
- mönnum
Bæjarstjórn Akraness boöaði til
fundar meö þingmönnum Vestur-
lands á Akranesi á laugardaginn. Þar
var rætt um atvinnuástand bæjarins
sem mörgum þykir ákaílega ótryggt'
og geröu forráðamenn helstu at-
vinnufyrirtækja grein fyrir rekstri
fyrirtækja sinna.
„Atvinnuástandið er auövitaö ekki
glæsilegt," sagöi Ingibjörg Pálma-
dóttir, formaöur bæjarstjórnar, en
hún sagöi aö fundurinn hefði fyrst.
og fremst verið kynningarfundur.
Um undirtektir þingmanna sagði
Irigibjörg að þeir hefðu ekki lofað
Mr neinu enda væri ástandið á Akranesi
ekkert einsdæmi. „Þingmennirnir
voru ekki meö neinar „patent“lausn-
ir en fundurinn var _ gagnlegur,“
sagði Ingibjörg. Atvinnúlausum hef-
ur fjögaö mikið aö undanfórnu og
óttast Akurnesingar fólksflótta ef
fram heldur sem horfir.
-SMJ
Akureyri:
~ Einn að
flýta sér
Gylfi Kristjánsson, DV, AkureyrL
Hann var að flýta sér, ökumaöur-
inn sem Akureyrarlögreglan tók á
Ólafsfjaröarvegi á fóstudagskvöldið.
Hraði bifreiðar hans mældist 128 km
og fékk ökumaðurinn hvíld frá störf-
um samstundis.
Hann fór hins vegar hægar, öku-
maðurinn sem lögreglan á Akureyri
tók skömmu áður á Drottningar-
braut. Bifreið hans var fost í snjó-
skafli og var stútur undir stýri.
v—< Vélsleðamenn á Garðsárdal sendu
út hjálparbeiðni á laugardag vegna
veðurs og vegna þess aö þeir voru
orðnir bensínlitlir. Hjálparsveit
skáta fór á móts við þá og leysti
málið.
LffU^ggingar
ih
AI.ÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
I.ÁGMÚLI 5 - RFYKJAVlk
Smi ASK4I
LOKI
Þetta er sannkallaö
gulltippi!
Slæm staða Kaupfélagsins í Búðardal:
KOKSWaiBmO"
leikar aldrei
Hiioiii ©o nu
segir kaupfélagsstjórínn
Miklir rekstrarerfiðleikar steðja
nú að Kaupfélagi Hvammsfjarðar í
Búðardal og var lausafjárstaða
vegna sauðfjárslátrunar neikvæð
um 38 milljónir króna um áramót,
samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Ólafi Sveinssyni kaup-
félagsstjóra.
Sagði Ólafur að kaupfélagiö hefði
átt í rekstrarerfiðleikum undanfar-
in ár en aldrei meiri en nú og sagöi
Ólafur að ástæöan væri framferöi
ríkisins gagnvart sláturleyfishöf-
um en lokauppgjör hefur ekki farið
fram. Ólafur sagði aö sauðfjárslátr-
un væri stór þáttur í rekstri
kaupfélagsins og hefði 38 milljónir
króna vantaö til þess að jafnvægi
væri á þeim reikningi um áramót.
Fleiri. vandræðamál steöja að
kaupfélaginu þar sem Olíufélagið
hf„ Esso, hefur tekið yfir rekstur
bensín- og olíusölu sem verið hefur
í höndum kaupfélagsins vegna
mikilla skulda. Ekki vildi Ólafur
gefa upp skuldastöðu kaupfélags-
ins við Olíufélagið hf„ en sam-
kvæmt upplýsingum DV nema þær
á annan tug milljóna. Þá var bíla-
verkstæöi kaupfélagsins lokað í
fyrra og talið er aö rekstur tré-
smlöaverkstæöisins stefni í veru-
legt tap á þessu ári. Ólafur sagði
aö enn ætti eftir að koma 1 ljós
hver afkoma trésmíöaverkstæðis-
ins heföi orðið 1987 en það hún
lægi fyrir yrðu ákvarðanir teknar
með framhald þeirrar starfsemi.
Ólafur Sveinsson sagði ennfrem-
ur að rekstur kaupfélagsins hefði
verið í stöðugri endurskoðun frá
árinu 1984 og hefði þaö boriö þann
árangur að arðsemi fyrirtækisins
batnaði um 3% áriö 1986. Mestir
erfiðleikar í rekstri kaupfélagsins
stafa af óhagstæðum vöxtum og
rekstri sláturhússins en búast má
viö þvi að uppgjör vegna slátrunar
komi um mánaöamót. í framhaldi
af því og ársuppgjöri liggur staðan
fyrir að sögn kaupfélagsstjórans.
Félagarnir i ÍK tóku vel á móti Úlfari Óttarssyni þegar hann mætti til leiks í innanhussknattspyrnumóti í Laugar-
dalshöllinni i gær. Úlfar var enn ekki búinn að átta sig almennilega á þvi að hann væri þremur milljónum króna
ríkari en félagarnir kepptust viö að benda honum á skemmtilegar leiðir til að koma peningunum í lóg.
DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Austlæg
átt um
land allt
Á morgun verður austlæg átt
um land allt, stinningskaldi eða
allhvasst syðst á landinu og um
landið norðanvert, annars kaldi.
Snjókoma eöa slydda verður suð-
vestanlands en él á annnesjum
fyrir norðan. í öörum landshlut-
um verður skýjað að mestu en
úrkomulítið.
Vigdís ræðir
við Reagan
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, mun hitta Ronald Reagan
Bandarikjaforseta að máli í Hvíta
húsinu þann 26. þessa mánaðar. Vig-
dís heldur til Bandaríkjanna þann
23. þessa mánaðar. Mun forsetinn
opna fyrir hönd Norðurlanda listiðn-
aðarsýningu í American Craft
Museum í New York. Verður sýning-
in opnuð 27. þessa mánaðar. Hún er
haldin á vegum norrænu ráðherra-
nefndarinnar og verða þar sýnd verk
35 listamanna alls staðar af Norðurl-
öndum.
í fylgd með forseta íslands verður
Kornelíus Sigmundsson forsetarit-
ari. -JSS
Höfuðboigarsvæðið:
Víða mikil
hálka en
óhappalítið
Mikil hálka er nú víða á höfuð-
borgarsvæðinu. Þrátt fyrir hálkuna
hafa orðiö fáir árekstrar og slys í
umferðinni hafa veriö með minnsta
móti.
í Reykjavík urðu 19 árekstrar á síð-
asta sólarhring. Engin slys urðu á
fólki í árekstrunum.
-sme
Einn með tólf rétta:
Ólýsanleg
tilfínning
að vera
orðinn milli
- segir Úlfar Óttarsson
„Það er ólýsanleg tilfinning að vera
allt í einu orðinn milh. Ég er í skóla
og hef þar af leiðandi alltaf verið
peningalaus. Ég er ekki búinn að átta
mig almennilega á þessu,“ sagði Úlf-
ar Óttarsson, tvítugur menntskæl-
ingur, en hann var einn með tólf rétta
í getraunum á laugardaginn og varð
þannig þremur milljónum króna rík-
ari.
„Ég var bara með einn gulan seðil
svo að ég átti ekki von á miklu enda
tippaði ég bara út í loftið að þessu
sinni. Eini leikurinn sem ég var viss
um var Liverpool-leikurinn enda
mikill aðdáandi þess liðs. Ég gat svo
ekkert fylgst með úrslitum leikjanna
á laugardaginn því ég var í fjöl-
skylduboöi til klukkan tvö um nótt-
ina. Þegar ég kom heim um nóttina
hringdi ég í gamni í símsvarann hjá
Getraunum og þá komst ég að því
að ég hafði dottið í lukkupottinn. Það
varð dálítið erfitt að sofna um nótt-
ina,“ sagði Úlfar.
Úlfar sagðist vera á leiðinni til
Skotlands í æfingaferð með knatt-
spyrnuhöi ÍK og komi vinningurinn
tÚ með að hjálpa sér að fjármagna
þá ferð.
„Ég hef nú ekki náð alveg að eyða
peningunum í huganum ennþá. Mig
langar þó til að kaupa bíl og svo hef
ég hugleitt að kaupa skuldabréf.
Ætli maður geri sér ekki líka glaðan
dag með félögunum," sagði Úlfar
Óttarsson.
-ATA