Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988.
17
„Horse for rent“!
Á þetta skilti var letrað á engilsaxnesku að þarna væri hestur til leigu.
Mörgum feröamönnum, sem
fóru til aö skoða Gullfoss og Geysi
síðastliöiö sumar, varö starsýnt á
skilti sem haföi veriö komið upp
viö þjóðveginn, ekki aUlangt frá
Laugarvatni. Á þetta skilti var rit-
að á engilsaxnesku aö þama væri
hestur til leigu. Hentu menn gaman
að þessu og þeir sem eitthvað vora
inni í íslenskri sögu veltu því fyrir
sér hvort þar væri endurborinn
Sleipnir, Yngri-Rauður eða Fagri-
Skjóni sem þarna væri boðinn til
leigu.
Fjórða stærsta greinin
Á undanfómum áratugum hefur
þjónusta við ferðamenn hér á landi
og tekjur af þessari starfsemi vaxið
hröðum skrefum. Á síðasta ári
voru tekjur af innlendum og er-
lendum ferðamönnum samtals um
9 milljarðar en þá komu hingað.til
lands um 125.000 erlendir ferða-
menn. Áætlað hefur verið að fjöldi
erlendra ferðamanna, sem vilja
koma hingað til lands, geti allt að
því þrefaldast til næstu aldamóta.
Þessi þróun er heldur ekkert bund-
in við ísland. Ferðalög og ferða-
mennska eru nú þegar orðin íjórða
stærsta grein viðskipta í heiminum
og fara ört vaxandi.
Ef þetta reynist rétt og ef við vilj-
um munum við á næstu árum
upplifa hér álíka byltingu í ferða-
málum og þá búseturöskun sem
varð hér á landi frá síðustu alda-
mótum. Samt bendir margt til þess
að við séum engan veginn undir
þaö búin að taka á móti miklu fleiri
erlendum ferðamönnum.
KjaUaiinn
Gestur Ólafsson
skipulagsfræðingur og arkitekt
Ef við viljum geta samt alhr
landsmenn notið góðs af þessari
þróun og án þess að þaö umhverfi
og þau landgæði, sem feröamenn
sækjast eftir, verði eyðilögð. Þetta
gerist þó ekki af sjálfu sér og án
þess að til þessara mála sé varið
talsverðum tíma og fjármunum og
án þess að mótuð sé sameiginleg
stefna þeirra aðila sem þama koma
við sögu.
„Ferðamálahænan“
í lögum um skipan ferðamála er
ákvæði þess efnis að 10% af sölu
fríhafnarinnar á Keflavíkurvelli
skuli renna til ferðamála. Því fer
samt fjarri að við þetta hafi verið
staöið. Þeir sem ráða þessum mál-
um þekkja eflaust margar þjóðsög-
ur um hænur sem verpa gulleggj-
um. Þess er þó hvergi getiö í
þessum sögum að hænurnar hafi
getað orpið án þess að fá eitthað
að éta. „Ferðamálahænan" ís-
lenska mun heldur ekki verpa þvi
eggi sem margir vonast til án þess
að vel sé að henni búið.
Auðvitað er það ekki ábyrg af-
staða að henda á lofti einhveijar
tölur og upplýsingar og vona að
ósýnilegar hendur, almættið og
einkaframtakið leiði þetta mál far-
sællega fram á veginn, frekar en
sjávarútveginn. Það sem skiptir
máli fyrir bæði erlenda og innlenda
ferðamenn er sú heildarreynsla
sem þeir fá við að ferðast hér á
landi.
Með samstilltu átaki
Einkaaðilar geta ekki ráðið eöa
haft áhrif á nema hluta af þessari
heildarreynslu. Hinn hlutinn er í
höndum fjölmargra opinberra að-
ila, sveitarfélaga og ríkis. Ef við
ætlum að mæta þessari þróun á
viðunandi hátt er ekki nægilegt að
gera átak á einu eða tveimur svið-
um. Mestur árangur næst með
samhæfðu átaki sem flestra hlutað-
eigandi aðila.
I öllum landshlutum nema á höf-
uðborgarsvæðinu eru nú starfandi
ferðamálasamtök sem hafa unnið
mikið og gott starf á þessu sviði á
liðnum árum. Þó er þörf fyrir slík
samtök sennilega hvergi meiri en
á höfuðborgarsvæðinu þar sem
röskur helmingur þjóðarinnar býr.
Á síðasta aðalfundi Samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu var
samhljóöa samþykkt að stofna slík
samtök.
Þessara samtaka bíöa mörg verk-
efni enda eru í öllum sveitarfélög-
um hér á landi nær óþijótandi
möguleikar til ferðamennsku, úti-
vistar og útiveru, en þvi aðeins að
við berum gæfu til að vinna saman
að þessum málum. Ef við gerum
það ekki getum við heldur ekki
vonast til þess að fá mörg gullegg
í okkar hlut.
Þá getum við hvert og eitt sett
upp skilti við þjóðveginn - „horse
for rent“!
Gestur Ólafsson.
„Ef viö ætlum að mæta þessari þróun
á viöunandi hátt er ekki nægilegt aö
gera átak á einu eða tveimur sviðum.“
Eftir aöeins „venjubundnar"
fréttir af óeirðum í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs allra síðustu
ár bárust fréttir af því nú skömmu
fyrir áramót að óeirðir hefðu brot-
ist út í Gaza í Palestínu, svæði sem
hefur verið tiltölulega rólegt á fram
til þessa sé miðað við önnur svæði
á þessum slóðum.
Gildra örvæntingar
í byrjun 20. aldar hófst landnám
gyðinga í Palestínu. Þá strax og
þegar gyðingar börðust gegn aröb-
um 1947-9 hröktu þeir með ofbeldi
og hermdarverkum meirihluta
araba burt úr landi þeirra en hluti
varð eftir sem illa launuð undir-
stétt í hinu nýja ríki sem gyðingar
stofnuðu, ísrael.
Tvö svæði Palestínu lentu þó ekki
strax undir ísrael. Það eru Vestur-
bakkinn svokallaði, sem var undir
stjórn Jórdaníu til 1967 er ísraelar
hertóku hann, og Gazasvæðið sem
var undir stjórn Egyptalands til
sama tíma og var ekki skilað með
Sínaískaganum sem líka var her-
tekinn en skilað fyrir nokkrum
árum.
Gazasvæðið er örsmátt, innan við
40 km langt og örmjótt, en þar búa
samt 630 þúsund manns. Þessi vett-
vangur harmléiks er einhveijar
elstu og stærstu flóttamannabúðir
í heimi og fáir blettir á jörðunni
munu þéttbýlli. Fyrstu barnabörn
flóttamannanna, sem þangað komu
fyrir 40 árum, hafa nú fæðst og
börnin eru uppkomin. Þau sjá ekk-
ert framundan, enga framtíð.
Þeirra vopn hafa verið grjót á með-
an þau hafa verið skotin, barin,
dreift táragasi yfir þau eða þau
handtekin sem meintir óeirðasegg-
ir. Grimmd hers og lörgreglu hefur
verið svo mikil að jafnvel Banda-
ríkjastjórnvöldum, hliðhollum
ísrael, hefur blöskrað. Heimurinn
hefur gleymt þeim í yfirbót sinni
gagnvart gyðingum.
Kynþáttastefna Ísraelsríkis
Heimurinn keppist við að for-
dæma í orði kynþáttastefnu S-
Afríku en dáðist að dugnaði
valdið til þess. Það er þó fátt sem
hvetur ísrael til þess að láta undan
í einhveiju því að það hefur alla tíð
notið eindregins stuðnings Banda-
ríkjanna og Vestur-Evrópuríkja
meðan þessi ríki í orði, og sum á
borði, hafa reynt að spoma við
kynþáttastefnunni í S-Afríku.
Menningarleg samvinna viö Vest-
ur-Evrópu veitir kynþáttaofbeld-
inu í Ísraelsríki mikilvægan
stuðning.
Eigum við að halda áfram að
fylgjast róleg með því hvernig ísra-
elsk stjórnvöld kúga araba? Er ekki
allur- heimurinn ábyrgur fyrir
þeirri gildru örvæntingar sem íbú-
ar Gaza eru í?
Það minnsta sem við getum gert
er að taka afstöðu meö réttlætinu
og á móti ranglætinu.
Ingólfur A. Jóhannesson
í Bandaríkjunum
gyðinga við að reka araba úr landi
sínu og sigra þá í styrjöldum.
í rauninni er stefna Ísraelsríkis
einhver grófasta kynþáttastefna
sem til er: arabar ýmist reknir í
burtu eða látnir vinna verst laun-
uðu verkin. Þeir fyrrum hermdar-
verkamenn, sem stjórnað hafa
Ísraelsríki lengst af síðustu tíu til
15 árin, beita því ofbeldi sem þeir
telja nauðsynlegt til að tryggja
óbreytt ástand og er jafnsama um
arabísk mannslíf og suður-afrísk-
um um svört. Þeir hafa elt á
röndum hina arabísku flóttamenn
um nágrannalöndin (hver man t.d.
ekki eftir fjöldamorðunum í flótta-
mannabúðunum í Beirút fyrir
fáum árum?) Einasti munurinn á
kynþáttastefnu S-Afríku og ísraels
er sá að í S-Afríku kúgar minni-
hluti meirihluta en 1 Palestínu er
það meirhluti sem kúgar minni-
hluta. Skiptir einhverju máli á hve
mörgum mannréttindi eru brotin?
Er pólitísk lausn framundan?
Heimspressan kallar araba í ísra-
elsríki og á herteknu svæðunum
tveimur „lýðfræðilega tíma-
Gildran í Gaza
Frá Gaza-svæöinu 11. jan. sl.
orð gegn israelum.
- hópur Palestínumanna nálægt flóttamannabúðunum við Jabalia kyrjar slag-
Kjallariim
Ingólfur Á.
Jóhannesson,
sagnfræðingur og nemi
í Wisconsinháskóla
„Ef finna á pplitíska lausn á þessu
máli verður Israelsríki að brjóta odd
af oflæti sínu. Það eru ráðamenn þess
og konur sem hafa valdið til þess“.
sprengju". Með því er átt viö að
þessu fólki fjölgar mun hraöar en
gyðingum í ísrael, svo hratt að ef
saman eru teknir arabar sem eru
borgarar í Ísraelsríki og íbúar þess-
ara tveggja herteknu svæða þá er
þetta fólk núna um 39% af heild-
aríbúafjölda Palestínu hinnar
gömlu en gyðingar um 61%. Sam-
tals um 5,7 millj. íbúa. Því er hins
vegar spáð að eftir um það bil 15
ár verði arabar og gyðingar jafn-
margir. Hinn kúgaði minnihluti
verður þá orðinn að kúguöum
meirihluta nema eitthvað róttækt
gerist.
Ef finna á pólitíska lausn á þessu
máli verður Ísraelsríki að bijóta
odd af oflæti sínu. Það eru ráða-
menn þess og konur sem hafa