Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988. Neytendur Þessar vörur hafa hækkaö um 15% að jafnaði Hækkanir skila sér Lækkanir ekki sjáanlegar í október síöastliönum könnuöum við verö 11 vörutegunda í sex stór- mörkuðum. Á dögunum var verö sömu vörutegunda skoöaö og borið saman við októberveröið í tilefni nýlegra verðbreytinga. Októberverð- ið var kannað vegna kauphækkana á þeim tíma. Því er þó ekki aö heilsa núna. Þó vörutegundirnar séu ekki margar er könnunin engan veginn tæmandi, hins vegar er auðveldlega hægt aö sjá töluveröar veröbreytingar á þess- um þremur mánuðum. Meöalverö þeirra tíu vörutegunda sem viö tókum nú fyrir hefur hækk- aö um 15,4% frá því í október. Kaupstaöur í Mjódd hefur hæsta heildarverð þessara tegunda og hef- ur hækkaö sínar vörur mest í prósentum eða um 23,9%. Nýibær hefur næsthæsta heildarveröið (7 vörutegundir af 10 yfir meðalverði) en hefur þó minnstu heildarpró- sentuhækkun. Skýringin á því er að í október var verð kiwiávaxta í Nýjabæ langt fyrir ofan verö annarra markaða. Verði kiwi hefur hins veg- ar lækkað þarna það mikið aö það nægir til að draga heildarprósentu- hækkun verslunarinnar svo mikið niður. í síðustu verökönnun var verð hag- stæðast í Fjarðarkaupi. Að þessu sinni munar heilli 71 kr. á verði kiwi þar og í Hagkaupi. Þaö má þvi segja að eingöngu þess vegna sé veröið lægra í Hagkaupi. Af einstökum vörutegundum má nefna að gulrófur hækka mest eða um 58% og kartöflur um 56%. Jógúrt hækkar um 17,2%, kiwi um 17,8%, Milupa um 14,8%, Morgunguli um 11,2% og appelsínur um 4,5%. Verð Diletto kafíis stendur nokKurn veg- inn í stað, sömuleiðis verð á tann- kremi og sjamþói. Þess ber þó að geta að samkvæmt hsta frá fjármálaráðuneytinu áttu hreinlætisvörur þessar að lækka um ein 25%. Því virðist sem um eintómar hækkanir sé aö ræða. í könnun þessari kemur fram að verðmunur á milli stórmarkaða hvað þessar vörutegundir snertir er tölu- verður. Verð þessara vara er hæst í Kaupstað í Mjódd 1.037,00 kr. en lægst í Hagkaupi 921,20 kr. Verðmis- munur á milli þessara stórmarkaöa er því 11%. -ÓTT Frávik frá meðalverði M Hversu oft yfir meðalverði □ Hversu oft undir meðalverði Nýjibær Kaupsstaður SS Austurveri Hagkaup Fjarðarkaup Mikligarður Hækkun síðan í október Meðalhækkun Kaupsstaður Fjarðarkaup SS Austurveri Mikligarður Hagkaup Nýjibær Mcðaltalshækkun í hvcrri vcrslun 30 %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.