Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988. 9 Uflönd HHIer aflijúp aður á ný „Það er mikið talað um að sætta sig við fortíðina en það segir okkur eng- inn hvernig þetta gerðist eða hver voru heimspekileg markmið Hitlers. Mig langaði að sýna hversu vafasöm rökfærsla hans var,“ segir austur- ríski leikarinn Herbert Lederer um sérkennilega sýningu sem hann stendur nú fyrir í Vínarborg. Lederer hefur sett á svið eins manns sýningu sem fjallar um Adolf Hitler. Sýningin byggist nær einung- is á orðum Hitlers sjálfs, ræðum hans og herfræðilegum tílskipunum. Byggt er á atburðum úr lífx Hitlers, ýmist enduruppfærslum á skjalfest- um viðburðum eða stílfærðum hugmyndum listamannsins á því sem ekki er vitað með fullri vissu. Ferlinum fylgt Þótt Lederer segist ekki endilega hafa ætlað að skapa raunsanna mynd af Adolf Hitler sem persónu fylgir sýningin ferli þessa leiðtoga þýsku þjóðarinnar á þann veg að varpað getur nokkru ljósi á þróun persónunnar og þau áhrif sem hann endanlega hafði. í upphafi sýningar sjá áhorfendur Hitler nakinn að æfa hermanna- kveðju og er hemaðarleg tónlist leikin xmdir. Sýningin þræðir svo líf Hitlers. Sýnt er þegar listaakademí- an í Vín hafnaði honum en Lederer telur það hafa verið eitt áhrifamesta atriðið í Ufi hans. Þá sýnir Lederer Hitler sem hermann í fyrri heims- styijöldinni, Wagneraðdáandann Hitler, Gyðingahataraim Hitler og loks Hitler á fyrstu dögum stjóm- málaafskipta sinna. Sýningunni lýkur svo með svip- myndum af eyðileggingu síðari heimsstyijaldarinnar. Innantóm bók Lederer hefur varið nokkrum ámm til rannsóknarstarfa til undir- búnings sýningar þessarar. Hann fór í því skyni í gegnum mikið af efni um nasismann, bæði bækur og skjöl. Meðal annars las Lederer bók Hitl- ers, 'ÍJein Kampf, þrisvar sinnum. „Bókin er vitsmunalega innantóm," segir hann, „leiðinleg og gróf, hún er þreytandi. Ég held ekki að hann hafi verið mjög vel gefinn en hann var snjall lýðskrumari." í meðferð Lederers hefur Hitler starandi augnaráð, rýtir þegar hann hlær og hreyfmgar hans em vélræn- ar. Lederer vill þó ekki leggja áherslu á hlægilegu hliðarnar á Adolf Hitler. Hertar aðgerðir gegn svarbi vinnu Haulcur L. Hauksson, DV, Kaupmannahofri: Danska tollstjóraembættið hefur komið upp um fjölda tilfella svokall- aðrar „svartrar vinnu“ þar sém unnið er án þess að skrifa reikning eða borga söluskatt. Aðgerðir tollstjóraembættisins til að koma upp um svarta vinnu hófust síðasta ár og samkvæmt talsmanni þess hefur einungis náðst í topp ísjakans í þessum efnum. Á hálfu ári komu tveir tollþjónar í Óðinsvéum upp um sautján tilfelli sem leiddu til greiðslu söluskatts upp á sex hundmð og sjötíu þúsund danskra króna og verxilegra sekta. Fólk í öllum starfsstéttum lendir í neti tollfólksins, allt frá hárskeran- um, sem khppir gamalmenni í frí- stundum, tíl bóndans er selur svín án reiknings. Þykir ekki ólíklegt að tilhneiging til svartrar vinnu orsak- ist af skattbyrðinni sem er sú næstmesta í heimi eða fimmtíu og tvö prósent. „Ég veit að í sýningunni er ýmislegt sem fólk hlær aö,“ segir hann, „en þar er einnig margt sem lætur manni renna kalt vatn milli skinns og hör- unds.“ w’ÍSSS •"x ' ' . Herbert Lederer í hlutverki Hitlers Simamynd Reuter TECHNICS GEISLA- SPILARAR. TÚNLISTAR- UPPLIFUN. Helstu fagtímarit heims keppast nú við að lofa nýju Technics geislaspilarana fyrir einstök hljómgœði og vandaða byggingu. Úh/arpsstöðvar um heim allan nota að sjólfsögðu Technics geislaspilara, enda er þar krafisf hómarks gœða og nókvœmni. Gerðu sömu kröfur, veldu örugga leiðsögn, lóttu Technics leiða þig inn í nýjan heim tónlistarupplifunar. Við kynnum hér fjóra afbragðs spilara með nœr ótakmarkaða möguleika. Það yrði allt of langt mól að fara að telja upp möguleika peirra hér. Þess í stað hvetjum við alla til að koma og kynnast af eigin raun hvernig alvöru geislaspilarar vinna og hljóma. SL-Pin. Kr. 18.950 stgr., SL-P220. -33 Með þráðlausri fjarstýr- ingu. Kr. 20.875 stgr. SL-P320. S W Með þráðlausri tjarstýr ingu. Kr. 25.720 stgr. ■ SL-P520. . W Með þráðlausri fjarstýr- ingu. Kr. 34.950 stgr. JAPISS SL-Pl 11 / svartur. SL-P220 / svartur / silfurlitaður. SL-P320 / svartur. BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SlMI 27133 SL-P520 / svartur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.