Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1988, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1988, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988. ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988. 21 Iþróttir Iþróttir Veikefni möig „Vegna ummæla Arnar Magn- ússonar í blaöinu á dögunum um aö yngri handknattleiksmönnum sé ekki nægilega vel sinnt vil ég benda á að aldrei hefur verið jafn- mikiö unnið í unglingamálum hjá HSÍ og einmitt nú,“ sagði Friðrik Guðmundsson, formaður ungl- ingalandsliðsnefndar HSÍ, í samtali við DV. „Við höfum verið með 16 ára, 18 ára, 19 ára og 21 árs landslið við æfingar og keppni, heima og erlendis, síðasta árið og til við- bótar haía margir leikmenn þessara yngstu liöa fengiö tæki- færi í keppnisferðum og mótum með b-landsliðinu. Verkefnin hafa aldrei verið jafiimörg og okkar yngstu landsliðsmenn veröa vel undirbúnir þegar þeirra tími í a-landsliði rennur upp,“ sagði Friörik. -VS Kaiserslautem: Lárus frískur ogskoraði Sigurdur Bjömascm, DV, Þýskalandi Lárus Guðmundsson skoraöi fimmta og sföasta mark Kaisers- lautern er liðið lagði Saarbriic- ken, 5-1, í æfingaleik um síðustu helgi. Hann var þá fyrir stuttu kominn inn á sem varamaður, lék siðustu 20 mínúturnar. í öðrum æfingaleik, gegn Darmstadt, lék Lárus síóari hálfleikinn. Sá en- daði 2-2 og jafnaöi Schulz fyrir Kaiserslautern 20 sekúndum fyr- ir leikslok. Stuttgart tapaði, 1-2, fyrir ná- grönnum sínum Stuttgarter Kickers sem eru efstir í 2. deild. Hotic gerði bæði mörk Kickers en Klinsmann mark Stuttgart. Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með Stuttgart vegna meiðslanna á öxl sem hann varð fyrir í æfingaferð- inni til Costa Rica á dögunum. Holland - knattspyma: Eric Gerets semurvtð PSV Eric Gerets, belgiski landsliös- bakvöröurinn, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við hollensku meistaraefiiin PSV Eindhoven. Gerets er 33ja ára og hefur um árabil verið talinn í hópi bestu bakvarða heims en mútumál og keppnisbann, sem fylgdi í kjölfariö fyrir fiórum árum, setti svartan blett á farsæl- anferil. PSV hefur átt einstöku gengi að fagna í vetur og aðeins tapaö einu stigi í 20 leikjum í hollensku 1. deiidinni. Fyrir stuttu gekk hollenski landsliðsmaðurinn Ronald Koeman frá nýjum 4ra ára samningi við félagið þannig að framtíðin virðist ekki síður lofa góðu en nútíðin. -VS Knattspymulandslið Breta: Knattspymulandslið Englendinga og Skota á faraldsfæti á næstunni - Enskir spila í ísrael, skoskir í S-Arabíu Knattspymulandslið Englendinga og Skota verða á faraldsfæti á næst- unni en þá hverfa lið þjóðanna frá Bretlandi, Enskir halda til ísrael en Skoskir til Saudi-Arabíu. Leikur Englendinga í ísrael er sá fyrsti af sex sem þjóðin hyggst spila fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins í V-Þýskalandi í sumar. Lið Englend- inga sem mætir ísraelum þann 17. febrúar hefur verið valið og skipa eftirtaldir menn hópinn: Markverðir: Peter Shilton og Chris Woods. Varnarmenn: Viv Anderson, Gary Stevens, Stuart Pearce, Kenny San- som, Dave Watson, Mark Wright og Tony Adams. Miðjumenn: Bryan Robson, Peter Reid, Trevor Steven, Steve McMahon og Neil Webb Framheijar: Peter Beardsley, John Barnes, Chris Waddle, Clive Allen og Cerylle Regis. Skotar spila einnig sinn leik 17. fe- brúar en í Riyadh í Saudi-Arabiu. Verður lið þeirra skosku skipað þess- um mönnum: Markverðir: Jim Leighton, Henry Smith og Andy Goram. Varnarmenn: Steve Clarke, Murdo MacLeod, Maurice Malpas, Steve Nichol, Willie Miller, Alex McLeish og Richard Gough. Miðjumenn: Roy Aitken, Jim Bett, John Collins, John Colquhgun, Gary McKay, Paul McStay. Framherjar: Ally McCoist, Brian McClair, Maurice Johnson og Grae- me Sharp. -JÖG HANDBOLTAMYND ÁRSINS Þessi mynd var kjörin best handknattleiks- mynda á nýliðnu ári. Sá sem mundaði vélina heitir Júlíus Sigurjónsson, Ijósmyndari i Morgunblaðinu. Myndin er úr ieik íslendinga og Spánverja sem fór fram í Prilep i Júgóslaviu. Hestamennska: Glæstur ísdans stiginn á Ásljöm - Hafnfirðingar héldu á mót á Ásljöm Hestamennska blómstrar víða um land um þessar mundir og hesta- menn eru farnir að huga að þjálfun gæðinga sinna fyrir komandi mót. Félagar í hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði riðu á vaðið á sunnu- daginn og héldu mót á Ástjöm. Þar er traustur ís og var keppt í tölti og skeiði. Keppt var í tveimur ilokkum í tölti og voru böm/unglingar annars vegar en fullorðnir hins vegar. Magnús Björn Sveinsson stóð efstur í flokki barna/unglinga með hryssuna Andrá, Sindri Sigurðsson var annar með Hrannar og Pétur Pétursson þriðji með Skugga. Elsa Magnús- dóttir sló öllum við í flokki fullorð- inna og sigraði á Skagfjörö. Sævar Leifsson var annar með hryssuna Ísdísi og Sölvi Jónsson þriðji með Byi. Skeiðhestamir fóru tvær umferðir og reyndist Glanni, sem Ingólfur Magnússon sat, skjótastur. Blossi, sem Páll Ólafsson sat, var annar og Þeyr, sem Ágúst Oddsson sat, og Logi, sem Pálmi Adolfsson sat, vom jafnir í þriðja sæti. Þeyr vann þriðja sætið í bráðabanakeppni. E.J. Margir bíða nú ólympíuleikanna með óþreyju. Þeir hefjast á laugardag en þá munu skíðastökkvarar verða fjarri stökkpallinum - fylgjast með setningu leikanna á sama hátt og aðrir keppendur. Vetrarólympíuleikarnir: Borgin Calgary bíður nú eflir heiminum - meira að segfa veðrið getur vart staðið í veginum Gisli Guðmundsson, DV, Kanada: Allt hefur fallið í þann jarðveg sem skipuleggjendur ólympíuleikanna í Cal- gary hafa óskað eftir eða því sem næst. Þaö eina sem hefur vantað til að full- komna myndina er sjálfur snjórinn, lífgjafi leikanna. Til að leysa þann vanda hefur verið flutt tæki, sem kostar 154 milljónir íslenskra króna, á mótsstað til Mount Allen sem framleiða á snjó. Fyrir ári var haldið mikið skíðamót á keppnisstað leikanna og gekk það mjög erfiölega, snjóleysi og þíða hindruðu að hægt væri að nota snjóframleiðslutækið og lítið var af þessu flosi af hendi náttú- runnar. Þurfti því hvað eftir annað að fresta keppni. En kuldakafli í byriun þessa árs hefur bjargað málum og þá jafnframt leikun- um, vandinn mun ekki endurtaka sig. Æfingar íþróttamanna frá Kanda og Bandaríkjunum hafa aftur á móti verið með minnsta móti á svæðinu sjálfu og þá sérstaklega æfingar í bruni. Lauralee Bauwie, talsmaður ólympíu- nefndarinnar, segir að þrátt fyrir að stuttur tími hafi fengist til æfinga og undirbúnings séu nú allar skíðabrautir tilbúnar. Búið er að framleiöa eins metra djúpan snjó við rætur Mount Allen og segir Bauwie það nægjanlegt þó að hita- stig muni hækka til muna á meðan á leikunum stendur. í borginni Calgary, sem býður til vetr- arleikanna í þetta sinnið, hefur enn ekki fallið nema örfárra sentímetra snjólag á þessum*vetri. En hvað sem því líður þá bíður borgin eftir heiminum, hún er til- búin til að hefja stærstu vetrarleika sögunnar. Afrekalistl - goH: Staöan á heimsafrekalistan- um 1 golfi er nú þessi eftir mótin i síðustu viku: 1 Greg Norman (Ást.).....1.318 2 Sev Ballasteros (Spá.).i.169 3 Bemhard Langer (V-Þý.)1.087 4 Sandy Lyle (Bre.)........993 5 Curtis Stranga (Ban.)..916 6 ian Woosnam(Bre.)......862 7 Payne Stewart (Ban.)...693 8 Ben Crenshaw (Ban.)....666 9NickFaldo(Bre.).......646 10 Rodger Davis (Ást.).640 -JÖG Atli til Hollands Atli Már Bjarnason sigraði á 5. og síðasta stiga- móti Billiardsambandsins sem fram fór um síðustu helgi. Atli Már vann samanlagðan sigur á stigamótunum og hlaut 203,12 stig. Brynjar Valdimarsson hlaut 174,60 stig, Ásgeir Guðbjarts- son 150,03 stig og Tómas Marteinsson 120,65 stig. Atli Már tryggði sér því réttinn til aö leika, ásamt íslandsmeistaranum, á Evrópumóti áhugamanna sem fram fer í Hollandi í sumar. ■ -SK Sundmót í París: Albatrosinn í miklu stuði í Parísariaug - V-Þjóðverjinn Michael Gross fór á kostum Alþjóðlegt sundmót fór fram í París um helgina og tóku margir af sterk- ustu sundmönnum í heiminum þátt í mótinu. Þetta er röð móta sem stendur nú yfir í Evrópu í þessum mánuði en í tveimur slíkum tekur Eðvarö Þór Eðvarðsson þátt, í Aust- ur-Berlín og Bonn í næstu viku. Mjög góður árangur náðist í mörgum greinum á mótinu í París en keppt var í 25 metra laug. Vekur það at- hygli því rúmir sjö mánuðir eru í ólympíuleikana í Seoul og sundmenn því ekki í toppþjálfun. • Vestur-þýski sundkóngurinn Michael Gross kom talvert við sögu á mótinu en hann sló sitt gamla met í 200 metra skriðsundi sem var frá árinu 1982. Gross synti vegalengdina á 1.44,14 mínútum. Þetta er besti tími ,sem náðst hefur í heiminum en fæst ekki staðfest sem heimsmet vegna þess að keppt var í 25 metra laug. • Michael Gross. Gross sigraði einnig í 100 metra flugsundi á 53,48 sekúndum og í 200 metra flugsundi á 1.58,33. Gross er í góðu formi þessá dagana og verður erfitt að ganga framhjá honum í vest- ur-þýska landsliðinu sem keppir á ólympíuleikunum en Uðið verður endanlega valið í maí. En þá verður öllum meiriháttar sundmótum í Evr- ópu lokið. • jóðkunningi Eðvarðs Þór í bak- sunaskeppni á undanfórnum árum, Vestur-Þjóðveijinn Frank Hoffmeist- er, sigraði í 200 metra baksundi á tímanum 1.59,20 sekúndum sem er frábær tími. Annar í sundinu var Marek Ranis frá Tekkóslóvakíu á 2.00,79 og þriðji varð David Hold- erbach frá Frakklandi á 2.03,47. Þess má geta að Norðurlandamet Eðvarðs Þórs í 200 metra baksundi er 2.02,79. • Tamas Darnyi frá Ungveijalandi sigraði í 400 metra fjórsundi á 4.13,73 minútum en hann er Evrópumeistari í greininni frá EM í Strassborg í sum- ar. Darnyi er spáð mikilli velgengni á OL en margir vilja líkja honum við Mark Spitz sem vann sjö gullverð- laun á OL í Munchen 1972. -JKS Guðmundur í raðir Völsunga Unglingaiandsliðsmaðurinn Guöraundur Guðmundsson hyggst skipta um félag fyrir kom- andi tímabil. Stefnir Guðmundur norður yfir heiöar og er ætlun hans að spila með Völsungi frá Húsavík. - Guðmundur lék með annarrar deildar liði Breiðabliks úr Kópavogi á síðasta sumri. í spjalli viö DV í gær kvaö Guð- mundur félagaskiptin nánast á hreinu. Sagði hann það óneitan- lega freista sín aö leika í fyrstu deildinni og þá með Völsungi enda væri hópur þess félags sterkur og þjálfari liðsins góður. „Ég er mjög bjartsýnn á sumar- ið,“ sagði Guðmundur í spjallinu. Guðmundur, sem er 21 árs gam- all, er kvikur og sterkur miðju- maður og hefur hann leikið með unglingaliðum íslands, skipuð- mn leikmönnum yngri en 14 ára, ynpi 16, yngri en 18 og loks leik- mönnum yngri en 21 árs. Ef að iíkum lætur mun Guö- mundur því styrkja lið Völsunga verulega. -JÖG Magnús Bergs. Magnús Bergs bundinn Braunschweig „Ég trúi því ekki að þeir verði harð- ir á þessu. Atvinnuliöin halda alltaf að þau geti fengið peninga fyrir alla leikmenn - en ég hef ekki miklar áhyggjur þó þetta kosti svona þras,“ sagði Magnús Bergs, fyrrum at- vinnumaður í knattspyrnu, í samtali við DV. Magnús er enn bundinn Eintracht Braunschweig í Vestur- Þýskalandi, en hann hætti hjá félag- inu -vegna meiðsla fyrir þremur árum. Hann þjálfar Þrótt í Reykjavík í sumar og útíiokar ekki þann mögu- leika að hann leiki með liðinu ef aðstæður verða slíkar. „Vonandi kemur ekki til þess en það er betra að vera með alla pappíra í lagi. Meiðsli, sem ég varð fyrir í atvinnu- mennskunni, gætu líka komið í veg fyrir að ég leiki. Mér líst vel á sumar- ið þó Þróttur hafi misst marga góða leikmenn. Ég fæ það verkefni aö byggja upp nýtt lið og held að það verði mjög skemmtilegt,“ sagði Magnús. -VS Opið bréf til íþróttasíðu DV: Formaður IBR féll á prófinu Iþróttafréttamenn DV beittu sér fyrir þörfu máli þegar þeir vöktu athygli á húsaleiguokri sem íþróttafélögin í Reykjavík búa við frá hendi borgaryfirvalda. Undir- ritaður fylgdi þessu máli eftir í borgarráði með tillögu þess efnis að Reykiavíkurfélögin nytu sam- bærilegra kjara og íþróttafélögin í nágrannasveitarfélögunum. Var þeirri tillögu vísaö til íþrótta- og tómstundaráös sem síðan lét fara fram könnun á aðstæðum í sveitar- félögunum í nágrenni Reykjavíkur. Niðurstaöa hennar varð sú að á öllum stöðum búa íþróttafélög viö langtum betri aöstæður en Reykja- víkurfélögin þar sem þau losna viö að greiða húsaleip meðan íþrótta- félögin í Reykjavík verða að greiða 50% af leigugjaldi. Júlíus sítur báðum megin við borðíð Þessi könnun íþrótta- og tóm- stundaráös var tvítekin. Og niður- staðan varð sú sama. Af einhveij- um ástæðum hefur niöurstöðum þessarar kötmunar veriö stungiö undir stól þó að nú sé liðið hálft ár frá því að hún var framkvæmd. Formaður ráösins er Júlíus Haf- stein sem er i þeirri sérkennilegu aðstööu aö vera jafnframt formað- ur íþróttabandalags Reykjavíkur og situr því báðum megin við borð- iö þegar um þessi mál er ijallað. Löngum þótt erfitt að þjóna tveimur herrum Það hefur löngum þótt erfitt að þjóna tveimur herrum og sannaöist það eftirminnilega á Júlíusi Haf- stein á borgarstjórnarfundi sl. fimmtudag. Þar lagði Sigrún Magn- úsdóttir borgarfulitrúi fram tillögu þess efnis aö framlög Reykjavíkur- borgar til íþróttabandalags Reykja- víkur yrðu hækkuð um 10 millj. króna gagngert til að greiða niður húsaleigu Reykjavíkurfélaganna, en það er ekki einungis álit íþrótta- fréttamanna DV aö þessi húsa- leigukostnaður sé þungur baggi á félögunum heldur er þaö einnig álit félaganna sjálfra samkvæmt skýrslu IBR. Formaður ÍBR féll á prófinu Þaö hefði því átt að verða létt verk og auðvelt fyrir Július Haf- stein að greiöa atkvæði raeð slíkri tillögu. En formaður ÍBRféll á próf- inu. í nafnakalli við afgreiðslu þessarar tillögu sagöi hann NEI. Hann snerist m.ö.o. gegn óskum umbjóðenda sinna í ÍBR. Að hans dómi eru íþróttafélögin í Reykjavík ekki of góð til að greiða milijónir króna í húsaleigu fyrir afnot af íþróttasölum þó aö slíkt viðgangist hvergi í nágrannasveitarfélögun- um enda er þar litið á störf íþrótta- félaga sem þýöingarmesta þátt æskulýðsstarfsins á hveijum stað og litið á niðurfellingu húsaleigu sem styrk til íþróttafélaganna. Dæmalaus afstaða formanns IBR Þessi dæmalausa afstaða for- manns ÍBR vekur ýmsar spurning- ar um hæfni hans og dómgreind. Þaö þarf ekki sterkgreinda menn I til að sjá að það getur ekki farið saman aö vera forsvarsmaöur fjöldahreyfingarsem þarf að sækja undir Reykjavíkurborg með ýmsa fyrirgreiöslu og vera saamtímis sá forsvarsmaður borgarinnar sem fær slík mál til umfjöllunar. Þetta er'eins og að skrifast á við sjálfan sig og hlýtur að skapa viökomandi | einstaklingi sálarflækjur. Léttvæg rök Júlíusar Júlíus Hafstein hefur reynt að | veija sig meö því að Reykjavikur- borg greiði íþróttafélögum í | Reykjavík kennslustyTki, afreks- mannastyrki og utanferðastyrki, sem líta megi á sem ígildi húsa- leigustyrks. Þetta eru léttvæg rök I og veriö að blanda ólíkum lilutum saman. Með sama hætti mætti tína til að í nágrannasveitarfélögunum | tíðkast ekki aö taka jafnhátt leigu- gjald vegna kappleikja og gert er í I Reykjavík. Og raunar er það svo að félögin fá í mörgurn tilfellum aö | hirða allan ágóða af innkomu kapp- leikja. Eftir stendur að Reykjavík, eitt | sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu, innheimtir húsaleigu af I íþróttafélögum sínum. Vonandi halda íþróttafréttamenn DV áfram baráttu sinni gegn þessu ranglæti. j Þeir munu fá stuðning víða aö. Alfreð Þorsteinsson I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.