Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Síða 26
42
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988.
Menning
Sinfónísk afslöppun
Vín - Búdapest - Prag, perlur Mið-
Evrópu og höfuðborgirnar í
Habsborgaraveldinu austurríska.
Þaðan kom músíkin á sinfóníutón-
leikunum í gærkvöldi, Moldá eftir
Smetana, Sinfonia consertante eftir
Mozart, Tvær myndir eftir Bartók
og Galöntudansarnir eftir Zoltán
Kodály. Og stjórnandinn var líka
ættaður úr þeirri veröld, Thomas
Koncz frá Búdapest.
Tónleikarnir hófust á Moldá og
það var nett spil og skemmtiiegt.
Þá kom sinfónían með fjórum val-
inkunnum einleikurum, Kristjáni
Stephensen á óbó,. Einari Jóhann-
essyni á klarínett, Joseph Ogni-
bene á hom og Hans Ploder á
fagott. Allt eru þetta fyrstu menn
Tóiúist
Leifur Þórarinsson
í sinni deild og leikur þeirra eftir
því. En heldur fannst manni Moz-
artsvipurinn þó daufur og best
mætti trúa að þetta ágæta tónverk
væri eftir einhvem allt annan.
Hvurn þá? Mannheimskólinn leyn-
ir sér ekki. Nú en kannski var
Mozart bara í óstuði. Hann var það
stundum. Ekki oft.
Myndir Bartóks eru frá 1910 þeg-
ar þessi Ijúfi snillingur var enn í
Ungverski hljómsveitarstjórinn
Thomas Koncz á sinfóníutónleik-
um í gærkvöldi.
mótun og hafði ekki heyrt Le sacre.
Þama er talsvert af Debussy en
farið að losna um áhrifin frá Ric-
hard Strauss. Þetta hijómaði lag-
lega en ekki sérlega spennandi
undir tónsprota Koncz sem virðist
vera vandaður stjómandi án sér-
legra meíninga. Og Galöntudans-
arnir, sem eru í eðli sínu þjóðlegt
glansnúmer án þess að þykjast
vera neitt sérstakt, komu miklu
fjöri í mannskapinn, bæði á sviði
og í sal. Satt að segja var þetta nú
allt saman heldur þunnur þrett-
ándi. En það er ekki hægt að vera
á hápunkti alla daga, sýknt og heO-
agt; einhvern tímann verða menn
að „slappa" af.
LÞ
Fréttir
Mikill taprekstur á meðferðarstöðvunum:
Sameinuðust til að forðast gjaldþrot
Skilyrði að ekki allir eigendur Vonar tækju þátt í hinu nýja fyrirtæki
Jarðarfarir
Hallgrímur Jónsson frá Dynjanda,
er lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 12. fe-
brúar, verður jarðsunginn frá ísa-
Jjarðarkapellu laugardaginn 20.
febrúar kl. 15.
Kveöjuathöfn um Kristínu Samúels-
dóttur frá Súðavík, til heimilis á
Sléttahraunr 23, Hafnarfirði, verður
í Hafnaríjarðarkirkju laugardaginn
20. febrúar kl. 14. Jarösett verður frá
Súðavíkurkirkju.
Útför Ingibjargar G. Einarsdóttur
fer fram í Isafjarðarkapellu laugar-
daginn 20. febrúar kl. 10.30.
Jarðarfor Stefáns Stefánssonar frá
Vík í Mýrdal fer fram frá Víkur-
kirkju laugardaginn 20. febrúar kl.
14.
Stefán Jón Karlsson, Brekastíg 31,
Vestmannaeyjum, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju laugardaginn 20.
febrúar kl. 14.
Ágústa Helgadóttir, Hávallagötu 37,
Reykjavík, lést á heimili sínu þann
12. febrúar. Útforin hefur farið fram.
Ingólfur Nikulás Bjarnason frá
Teigagerði í Reyðarfirði, lést 14. fe-
brúar í Gimli, Manitoba. Hann var
fæddur 11. febrúar 1899. Hann fluttist
ungur til Kanada og bjó þar síðan.
Björn Sveinbjörnsson hæstaréttar-
dómari lést 10. febrúar sl. Hann var
fæddur 1. september 1919 að Heggs-
stöðum í Borgarfirði, sonur Svein-
bjöms Björnssonar og Margrétar
Hjálmsdóttur. Björn lauk lögfræöi-
pf-ófi frá Háskóla íslands 1945. Síðar
sama ár gerðist hann fulltrúi sýslu-
mannsins í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og bæjarfógetans í Hafnarfirði
þar sem hann starfaði í tuttugu ár.
Bjöm stofnaði lögmannsstofu í
Reykjavík ásamt nokkrum lögmönn-
um sem hann rak uns hann var
skipaður hæstaréttardómari frá 1.
ágúst 1973. Eftirlifandi eiginkona
hans er Rósa Loftsdóttir. Útför
Bjöms verður gerð frá Hafnarfjarð-
arkirkju í dag kl. 13.30.
Guðlaug Helgadóttir lést 8. febrúar
fl'. Hún fæddist 9. nóvember 1913 í
Reykjavík, dóttir hjónanna Helga
Guðmundssonar og Eyrúnar Helga-
dóttur. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Ragnar Elíasson. Þau hjón
eignuðust tvær dætur. Útför Guð-
laugar verður gerð frá Bústaðakirkju
í dag kl. 13.30.
Vigfús Sverrir Guðmundsson lést
13. febrúar sl. Hann fæddist í Vest-
mannaeyjum 4. ágúst 1932. Foreldrar
hans voru Stefanía Einarsdóttir og
Gpðmundur Vigfússon. Vigfús lauk
prófi frá Verslunarskóla íslands en
24 ára gamall missti hann heilsuna
og var óvinnufær upp frá því. Eftirlif-
andi kona hans er Kristín Davíðs-
dóttir. Útför Vigfúsar verður gerð frá
kapellu kirkjugarðs Hafnarfjarðar ’í
dag kl. 13.30.
Tilkynningar
Ferðastyrkirtil íslenskra
fræði- og vísindamanna
íslandsnefnd Letterstedtska sjóðsins hef-
ur ákveðið að veita ferðastyrki á árinu
1988 til islenskra fræði- og vísindamanna
sem ferðast vilja til Norðurlanda á árinu
í rannsóknarskyni. Tekið skal fram að
ekki er um eiginlega námsferðastyrki að
ræða heldur koma þeir einir til greina
sem lokið hafa námi en hyggja á frekari
rannsóknir eða þekkingarleit á sínu
sviði. Umsóknir skal senda til íslands-
nefndar Letterstedtska sjóðsins, c/o Þór
Magnússon, Þjóðminjasafni íslands,
pósthólf 1489, 121 Reykjavík, fyrir 15.
’mars 1988. Veitir hann einnig nánari
upplýsingar.
Barnsins vegna
Sunnudaginn 21. febrúar verður efnt til
fyrirlesturs og umræðu í safnaðarheimili
Neskirkju um „samskipti foreldra og
barna". Hugo Þórisson sálfræðingur reif-
ar máhð. Fyrirlesturinn hefst þegar aö
lokinni guðþjónustu eða kl. 15.15. Að er-
indi loknu verður fyrirspumum svarað
og boöið til almennra umræðna. Fyrir-
lesturinn er öllum opinn.
Fjöruferð í Garðatjörn
Vettvangsferð Náttúruvemdarfélags
Suðvesturlands laugardaginn 20. febrúar
kl. 13 til 14.30 verður íjöruferð á stór-
straumsfjöru. Farið verður í fjöruna
suður af Göröum á Álftanesi en á stór-
straumsfjöru ættu að koma upp bakkar
gömlu Garöatjamarinnar, merkilegt
dæmi um hve mikið landsig og landbrot
hefur verið á Álftanesi síðustu aldimar.
Erlingur Hauksson sjávarlíffræðingur
aðstoðar fólk við að leita uppi og þekkja
lífvemr í fjörunni og svara spurningum.
Jón Jónsson jarðfræðingur mun fjalla
um landsig og íandbrot á þessum slóðum.
Fólk mæti við Garðakirkju kl. 13 eða get-
ur slegist í hópinn seinna. Allir em
velkomnir.
Flóamarkaður FEF
Flóamarkaður Félags einstæðra foreldra
verður haldinn laugardagana 20. og 27.
febrúar kl. 14-17 að Skeljanesi 6, kjallara.
Mikið úrval af gömlum og góðum fatnaði
ásamt öðra. Komið og gerið kjarakaup.
Leið 5 að endastöð.
Ferðamarkaður Útsýnar
á Broadway
Ferðaskrifstofan Útsýn gengst fyrir um-
fangsmiklum ferðamarkaði sunnudag-
inn 21. febrúar kl. 14-18 í Broadway.
Fulltrúar frá áfangastöðum Útsýnar á
Spáni, í Portúgal og á Kýpur verða á
staönum og svara fyrirspumum við-
skiptavina Útsýnar. Auk þess em Flug-
leiðir, Arnarflug og SAS þátttakendur í
ferðakynningunni þannig að unnt verðpr
að fá allar upplýsingar á einum stað frá
50 sérhæfðum starfsmönnum í ferðaþjón-
ustu. Auk þess verða gestum boðnar
veitingar og ókeypis happdrættismiðar í
glæsilegu ferðavinningahappdrætti.
Neskirkja -félagsstarf
aldraðra
Samvemstund verður á morgun, laugar-
dag, kl. 15 í safnaðarheimili kirkjunnar.
Gestur verður Jón E. Guðmundsson,
kennari og áhugamaður um brúðuleik-
hús.
Erindi um sögu
prjóns í Svíþjóð
Sunnudaginn 21. febrúar 1988 ki. 17 mun
Inga Wintzell, þjóðháttafræðingur og
safnvörður við Nordiska museet í Stokk-
hólmi, flytja erindi með litskyggnum, í
boði Norræna hússins og Þjóðminjasafns
íslands, í fundarsal Norræna hússins.
Nefnist erindið „Prjónað í blíðu og stríðu.
Sitthvað um sögu pijóns í Svíþjóð" (Att
sticka í nöd och lust. Historiskt om
stickning í Sverige).
Fundir
Fræðslufundur um
íþróttir aldraðra
Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra
boðar til fræðslufundar að Hrafnistu í
Hafnarfirði nk. laugardag, 20. febrúar,
kl. 14. Erindi flytja: Anna Jónsdóttir fé-
lagsráðgjafi: Aldraðir í nútímasamfélagi.
Páll Gíslason læknir: Slagæöasjúkdómar
fóta. Þátttakendum gefst kostur á að
skoða glæsilega sundlaug Hrafnistu og
líkamsræktaraðstöðu. Allt áhugafólk um
likamsrækt og íþróttir aldraðra velkom-
ið.
Eigendur Islensku meðferðar-
stöðvarinnar og Vonar h/f sameinuð-
ust um stofnun nýs fyrirtækis,
Meðferð h/f um síðustu mánaðamót.
Nýja fyrirtækið mun taka yfir áfeng-
ismeðferð beggja fyrirtækjanna
þeirra eldri. Það tekur ekki yfir
skuldir móðurfyrirtækja sinna, en
Meðferð h/f fær í sinn hlut viðskipta-
vild beggja og tekur yfir rekstur
íslensku meðferðarstöðvarinnar aö
Fitjum á Kjalarnesi.
Rekstur beggja meðferðastöðvanna
hefur gengið illa upp á síðkastið.
Sjúkrarými þeirra hafa ekki verið
nýtt nema að litlu leyti. Eign Vonar
að Bárugötu var boðin upp fyrir
skömmu og keyptu tveir af eigendum
fyrirtækisins, Grétar Haraldsson
lögfræðingur og Kristján Ómar
Krisljánsson verlsunarmaður, hana
á uppboðinu fyrir 17 milljónir króna.
Þrátt fyrir að grynnkað hafi á skuld-
um fyrirtækisins við sölu eignarinn-
ar munu þær nú vera töluverðar.
Starfsmenn Vonar h/f hafa enn ekki
greitt starfsmönnum sínum laun fyr-
ir janúarmánuð og skulda auk þess
lífeyrisiðgjöld og stéttarfélagsgjöld.
Þrátt fyrir slæma stöðu fyrirtækisins
sem rekur nú nánast enga starfsemi
mun ekki ætlun eigenda þess að setja
það í skipti.
Skuldir íslensku meðferðarstöðv-
arinnar eru einnig miklar, eða um
10 milljónir króna, að sögn Skúla
Thoroddsen lögfræðings og eins af
eiganda fyrirtækisins. Meðferðar-
stöðin var sameignarfélag og eru
eigendur hennar því persónulega
ábyrgir fyrir skuldum fyrirtækisins.
Skúh sagði að í framtíðinni væri gert
ráð fyrir að nýja fyrirtæki 'greiddi
móðurfyrirtækjunum fyrir við-
skiptavild og menntun starfsmanna.
Enn væri ekki ákveðið hvemig að
þessum greiðslum yrði staðið, enda
væri ekki gert ráð að íþyngja Með-
ferð h/f meðan fyrirtækið væri að
koma undir sig fótunum.
íslenska meöferöarstöðin var
stofnuð á sínum tíma af fyrrverandi
starfsmönnum Vonar. Ein af ástæð-
unum fyrir því var samskiptaörðug-
leikar. Samkvæmt heimildum DV
settu eigendur íslensku meðferðar-
stöðvarinnar það sem skilyrði fyrir
samstarfi nú að vissir eigendur Von-
ar yrðu ekki aðilar að hinu nýja
fyrirtæki. -gse
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
Þórufelli 8, Rvík, lést 17. þ.m.
Þóröur Þorkelsson
Jakobfna Ingadóttir
Erllngur Lúöviksson
Svelnn Ingason
Hugrún Þóröardóttlr
Gylfl Ingason
Björn Ingason
og barnabörn
Kvikmyndir___________________________
Regnboginn/Morð í myrkri:
Danskurinn með langartær
2Mord i morket, byggð á samnefndri
sögu Dans Turéll
Framleiðandi: Nordisk Film
Leikstjóri: Sune Lund-Sörensen
Handrit: Erik Balling, Henning Bahs og
Sunde Lund-Sörensen
Aðalhlutverk: Michael Falch, Ove
Sprogee, Tommy Kenter, Ole Ernest og
Morten Grunwald
í skuggahverfum Kaupmanna-
hafnar hefur danska mafian
bækistöðvar sínar. Þar tíðkast alls
konar viðskipti og þar á meðal við-
skipti með eiturlyf eins og tíðrætt
hefur orðið um í fjölmiðlum á
seinni árum. Því má segja að saga
Dans Turéll, Morð í myrkri, eigi
sér stoð í raunveruleikanum.
Viðfangsefnið er sumsé undir-
heimar Kaupmannahafnar sem
meginpersónan, nafnlausi blaða-
maðurinn, hefur verið að rannsaka
undanfarin ár og er á allt öðru
máli en félagar hans úr lögregl-
unni. Atburðarásin þróast honum
í óhag er vinur hans, Óh kokkur,
ér myrtur. Hann verður bitbein
lögreglunnar og mafíunnar í senn,
lögreglan grunar hann um morö
en mafían um óf rhikla vitneskju.
Því verður hann að rannsaka hlut-
ina upp á eigin spýtur á flótta
undan lögreglunni. Þessi dramat-
íski söguþráður er víst þekktur út
um ahan heim. En hvemig unnið
er úr honum gegnir allt öðru máli.
í Morði í myrkri er það feikilega
vel gert, hvort sem um er að ræða
handrit, leikstjóm eða leik. Auk
þess snýst hin alvarlega tilvera tíð-
um upp í skemmtilega andhverfu
sína.
Kvikmyndaímynd blaöamanns-
ins er skammt undan. í hlutverk
hans, sem er í höndum Michaels
Falch, hefði varla verið hægt að
finna betri persónu. Hann kemst
vægast sagt frábærlega vel frá hlut-
verki sínu, að öðram leikurum
ólöstuðum sem standa sig með
stakri prýði. Myndin byggist á
hraðri atburðarás og stórgóðri
fléttu sem nær fullkomlega saman
undir lokin, að ekki sé talað um
vel unna sviðsmyndina. Það verður
því að segjast að Danskurinn stend-
ur mörgum reyndari þjóðum í
kvikmyndagerð miklu framar. Og
svona í lokin mætti benda á - þar
sem við íslendingar tölum oft um
frændur okkar Dani - að ekki væri
úr vegi að sjá í hverju „menning“
þessara tveggja þjóða er sameigin-
leg en til þess þarf að kynnast fleiru
en rjómanum af Kaupmannahöfn.
Að sjá undirheimamenninguna í
Morð í myrkri er því tilvahð tæki-
færi.
-GKr