Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. Fréttír Hvammstangi: Fógeti innsiglaði kjötgeymslur - haikaleg og ósanngjöm aðgerð, segir verslunarstjórinn Sýslumaður Vestur-Húnavatns- sýslu innsiglaöi á föstudag kjöt- geymslur í Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga. Var það gert að kröfu Búnaðarbankans. Bankamenn bera við misferli í birgðastöðu. Ekki hefur fengist staðfest um hve mikið magn er að ræða en Jón ísberg sýslumaður sagði að gildar ástæður þyrftu að vera fyrir slíkri aðgerð. Karl Sigurgeirsson verslunar- stjóri sagðist líta svo á að ekki hefði verið brotið gegn Búnaðarbankan- um. „Við erum sakaðir um að eiga ekki birgðir fyrir veðum, sem er rangt. Bankinn var með gamlar birgðatölur. Ég hef ekki lokiö við gerð skýrslna fyrir febrúar. Þær munu sýna að við höfum ekkert af okkur brotið. Þetta er harkaleg og ósanngjörn aðgerð. Ég mun láta lögfræðing minn skoða þetta mál. Það verður ekki hjá því komist að við munum bíða álitshnekki vegna þessa,“ sagði Karl. Karl segir ennfremur að ekkert hefði verið við sig rætt áður en til aðgerðarinnar var gripið. Hann segir líka að Búnaöarbankinn hafi neitað sér um eðlilegt rekstrarlán síðastliöið haust. Lán sem allir slát- urleyflshafar fá. Karl segist þá haía tilkynnt bankanum að sú ákvörðun leiddi til vanskila af sinni hálfu. „í fyrra var sagt að þaö vantaði mörg hundruð tonn af kjöti. Þrátt fyrir það var ekki einni einustu birgöageymslu lokað,“ sagði Karl Sigurgeirsson. -sme Könnun Félagsvísindastofnunar: Stjarnan nýtur jafn- mestrar hlustunar - meira horft á Sjónvarpið en Stöð 2 Utvarpsstöðin Stjarnan er með mun meiri hlustun en útvarpsstöðv- arnar Bylgjan og Ljósvakinn og mesta hlustun allra útvarpsstöðva á hlustunarsvæði sínu ef undan eru skildir fréttatímar Ríkisútvarpsins í hádegi og á kvöldin. Þá er mun meira horft á fréttatíma Sjónvarpsins en Stöðvar 2 þá daga sem könnun á notkun ljósvakafjölmiölanna var gerö en könnunina gerði Félagsvís- indastofnun fyrir Rás 1, Rás 2, ‘ Stjörnuna, Bylgjuna, Ljósvakann, Sjónvarpið og Stöð 2. Ef litið er á útvarpshlustun á svæöi áðurnefndra útvarpsstöðva laugar- daginn 5. mars kemur í ljós að Rás 1 nýtur mes'trar hlustunar, eöa um 4%, fram til 8.30 þann morgun en síðan tekur Stjarnan við og nær allt að 7% hlustun rétt fyrir hádegið. Þá taka forystuna fréttir Rásar 1 en að þeim loknum nýtur Stjaman aftur mestr- ar hlustunar, 10 til 13%, og heldur því fram aö kvöldfréttum Rásar 1. Fréttatímar Ríkisútvarpsins njóta mestra vinsælda útvarpsefnis og ná á bilinu 18 til 20% hlustun. Rás 2 og Bylgjan njóta minni hlustunar þenn- an dag og fer Bylgjan mest í 8% hlustun en Rás 2 fer í 5%. Ljósvakinn nýtur mjög lítillar hlustunar eða á bilinu 0 til 1%. Ef litið er á svæði beggja sjón- varpsstöðvanna sama dag, laugar- daginn 5. mars, þá kemur í ljós að fréttir Sjónvarpsins eru vinsælasta efnið meö um 45% áhorfun og næst- vinsælasta efnið er Fyrirmyndarfaö- ir með tæp, 45%. Þáttur Stöðvar 2, 19:19, nær um 33% áhorfun og er vin- sælasta sjónvarpsefnið þar á bæ. Á ensku knattspymuna horfðu um 8% áhorfenda þennan laugardag og á NBA körfuboltann á Stöð 2 horfðu um 7% áþorfenda en sá þáttur er sýndur á eftir knattspyrnunni. Að loknum körfuboltanum eykst áhorf- un á Stöð 2 og hún nær mestri horfun þegar þátturinn 19:19 hefst en um klukkan 20 taka fréttir Sjónvarpsins viö. Á þáttinn Fríða og dýrið hoxfa um 10% áhorfenda en sá þáttur var sýndur um leið og Fyrirmyndarfaðir í Sjónvarpinu. Þennan laugardag var meira horft á Sjónvarpið en Stöð 2, allt til klukkan 24:30, en þá tók Stöð 2 forystuna. Stríðið er - segir Páll Þorsteinsson „Það er greinilegt að við þurfum að bæta okkur og það verða gerðar hér breytingar. Sókn er langbesta vörnin og við ætlum að sækja. Stríð- ið er ekki búið,“ sagði Páll Þorsteins- son, nýráöinn útvarpsstjóri Bylgjunnar og Ljósvakans, í samtali við DV þegar hann var spurður að því hver yrðu viðbrögð útvarps- stöðvanna viö niðurstöðu könnunar Félagsvísindastofnunar á útvarps- hlustun. Páll sagði að þetta væri sjöunda könnunin sem gerð hefði verið frá ekki búið , útvarpsstjorí Bylgjunnar því að Bylgjan hóf starfsemi sína og í fyrsta skipti sem stöðin kæmi illa út úr hlustendakönnun. Spurningu um það hvort Ljósvak- inn yrði lagður niður í framhaldi af niðurstöðu könnunarinnar, en sam- kvæmt henni nýtur Ljósvakinn nær engrar hlustunar, sagði Páll að engin ákvörðun hefði verið tekin um það. Hins vegar yrði gripiö til aögerða og fólki kynntar væntanlegar breyting- ar á Bylgjunni og Ljósvakanum á næstu dögum. Háskóli Islands: Stúdentakosningar í dag U', _i TTÍ-1. '1. T.l 1 I • ' 1 1 :_ M11 1/AOÍnn Stúdentar í Háskóla íslands Kjósa í stúdentaráð og háskólaráð Háskóla íslands í dag. Tvær fylkingar stúd- enta bjóða sig fram í ár: Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, og Röskva, samtök félagshyggjufólks í Háskóla íslands. Stúdentaráð skipa 30 manns og er helmingur þeirra nú kosinn til tveggja ára. Af þessum 30 manna hópi eru 26 kosnir til stúdentaráös en 4 nemendur eru kosnir af sérstök- um lista til háskólaráðs. Háskóla- ráðsmenn sitja einnig í stúdentaráði. -JBj Forráðamenn Stjörnunnar „helltu upp á sig“ kampavíni í tilefni nióurstöðu skoðanakönnunarinnar og hér sést Ólafur Hauksson útvarpsstjóri skenkja þeim Gunnlaugi Helgasyni, Þorgeiri Ástvaldssyni og Axel Ólafssyni veigarn- ar í gær. DV-mynd KAE Ekkert braðl í tannlæknadeild - seglr Guðjón Axelsson deíldarförseti „Auövitaö er tannlæknanám dýrt nám. Það þarf miklnn tækja- kost og marga kennara á hvem nemanda. Það er síðan mun dýrara að reka lítinn skóla en stóran. Það er því ekkert undrunarefni aö tannlæknadeildin sé dýrasta deild- in viö Háskólann sé miðað við höfðatölu. Þaö getur lika vel verið að nám þar sé dýrara en erlendis án þess að við höfum kannaö það neitt sérstaklega," sagði Guðjón Axelsson, deildarforstei tann- læknadeildar Háksólans, þegar DV bar undir hann frétt blaðsins í gær þar sem kemur fram aö tann- læknanám er hér helmingi dýrara en í eínkaskólum í Bandaríkjun- um. „Það er náttúrlega ákvörðun fyr- ir stjórnvöld hvort þau vilji loka deildinni og senda nemendur til útlanda í nám. Á sama hátt og þaö var ákvörðun sljómvalda aö stofn- setja deildina á sínum tíma og byggja yfir hana síöar. Það er eng- inn vandi aö fá pláss í erlendum Háskólum eins og er. Nú er víðast hvar offramleiðsla á tannlæknum. Norömenn hafa meira aö segja aug- lýst eftir tannlæknanemum. En þaö var ekki svo fyrir fáeinum árum. En hér á deildinni er ekkert bruölaö. Allir kennaramir þurfa til dæmis aö deila einum ritara. Rekstur deildarinnar er einnig kostnaðarsamur. Það fara þannig 6 milljónir á ári einungis í rekstur. Og þó það sé vel búiö að kennsl- unni, þá er aöstaða til rannsókna engin. Víðast hvar erlendis hafa prófessorar aðstöðu til að stunda tannlækningar á deildinni. Það hefur hins vegar ekki fengist í gegn hér. Viö þurfum því að reka sjálfir okkar stofur út í bæ,“ sagöi Guðjón Axelsson. -gse Umboðsmaður Alþingis: Hart deilt um embættið Töluverðar umræður uröu á Al- þingi í gær um störf umboðsmanns Alþingis en þá var fyrsta umræða um tillögu til þingsályktunar um störf og starfshætti hans. Allir flokk- ar standa að tillögunni fyrir utan Borgaraflokkinn og gagnrýndi fyrsti flutningsmaður' tillögunnar, Þor- valdur Garðar Kristjánsson, þá borgaraflokksmenn og sagði að af- staða þeirra græfi undan tiltrú almennings á þetta embætti. Sagði Þorvaldur að mjög mikilvægt væri að fuU samstaða væri um embætti umboðsmannsins og afar áríðandi væri að friður og eining mætti ríkja um embættiö. Þorvaldur sagði að það að Ríkis- endurskoðun var sett undir stjórn Alþingis á síöasta ári hefði styrkt stöðu löggjafans gagnvart fram- kvæmdavaldinu og umboðsmaður Alþingis ætti eftir að gera það einnig. Álbert Guðmundsson sagði að þó hann væri í sjálfu sér hlynntur emb- ætti umboðsmanns Alþingis þá þætti honum verið að búa til enn eina valdastofnunina með þessari tillögu - því hefði Borgaraflokkurinn ekki stutt þetta mál. Sagði Albert að það væri verið að stofna til miklu meira embættis en í upphafi hefði staðið til. Því væri hægt að segja að hér hefðu gilt einkunnarorðin: „Báknið kjurt og meira bákn.“ -SMJ Matthías Andrésson tollvörður: „Mér var bannað aðveita persónu- lega þjónustu“ „Mér var bannað að vinna eftir- vinnu og eins að veita persónulega þjónustu. Eins var mér fyrirlagt að hægja á við vinnuna. Ég er með tölvu hérna sem ég á sjálfur. Með henni hef ég hjálpað mönnum við aö fylla út skýrslur þegar ég hef haft tíma til þess. Fyrir ,það fæ ég skammir,“ sagði Matthías Andrésson tollvörður í Hafnarfirði. Matthías segir að til sín hefðu kom- ið á fóstudag og mánudag menn frá ríkistollstjóra og Ríkisendurskoðun og þeir hafi bannað sér áðurnefnd atriði. Matthías telur að þetta sé gert til að gera tollembættið í Hafnarfirði ómerkilegt. Matthías segir að fjöldi vitna hafi orðið að orðaskiptum milli hans og sveitarinnar úr Reykjavík. Tilgangurinn sé sá að tefja afgreiðslu í Hafnarflrði til þess að viðskiptavin- ir, sem flúið hafa Reykjavík, snúi þangað aftur. í dag taka gildi nýjar reglur um tollamat á innfluttum notuðum bíl- um. „Þessi breyting gerir það að verkum að það tekur mun lengri tíma að afgreiða hvern bíl. Þetta hef ég og fleiri sagt áður en það er aldrei hlustað á okkur sem vinnum við þetta,“ sagði Matthías. í gærkvöldi vann' Matthías til klukkan átta í trássi við fyrirskipan- ir frá ríkistollstjóra. Það voru fleiri en hann sem unnu fram eftir í gær- kvöldi. Starfsmenn ríkistollstjóra voru við vinnu í Hafnarfirði fram eftir kvöldi í gær. -sme Önnur umræða um bjórinnínæstuviku Líklegast er talið aö bjórfrumvarp- ið komi til 2. umræöu á Alþingi í næstu viku en allsherjamefnd neðri deildar hefur nú málið til meðferðar. Trúlegt er að kvöldfund þurfi til að Ijúka annarri umræðu en eins og komið hefur í ljós við umræður um bjór á hinu háa Alþingi þá sprengir umræðutími vanalega af sér öll bönd þegar bjórinn er tekinn á dagskrá. Hafa bjórandstæöingar haft á orði að þeir hafi aflaö ser nýrra gagna í málinu sem þurfi drjúgan tíma til að koma frá. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.