Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. Jarðarfarir Merming Fullt af fallegum söng Bíókjallarinn, nýtt veitingahús Matsölustaöurinn Café Rosenberg, Lækj- argötu 2, hefur nú tekiö á sig nýtt rekstr- arform og nefnist „Bíókjallarinn", 1 Kvosinni (undir Lækjartungli). Bíókjall- arinn er hugsaöur sem líflegt veitingahús sem leggur aðaláherslu á lifandi tónlist, léttan matseðil og ijúft andrúmsloft. Stað- urinn fiefur tekið smábreytingum til að nálgast markmið sitt, m.a. hefur verið smíðaður hljómsveitarpallur (svið) og sett upp tilheyrandi hljóðkerfi auk þess sem barir hafa verið stækkaðir og yfir- bragð gert frjálslegra. Hluti Bíókjallarans er nú einnig samtengdur Lækjartungli á fyrstu hæð. Bíókjallarinn rúmar 150 manns. Hægt verður að taka húsið á leigu undir veislur og einkasamkvæmi á þeim tíma sem rekstur liggur niðri. Fyrir- hugað er að hafa lifandi tónlist fjóra til fimm daga í viku hverri (sunnudagskvöld til fimmtudagskvölds). Opið verður öll kvöld frá kl. 18-01, á fóstudögum og laug- ardögum til kl. 03 e.m. Út marsmánuð spila hljómsveitirnar „Sáhn hans Jóns míns" og „Bíó tríóið“. Aldurstakmark í Bíókjallaranum er 20 ára og enginn að- gangseyrir. Kammersveit Reykjavíkur var með tónleika í Listasafni íslands í gær- kvöldi. Að þessu sinni var reyndar Blásarakvintett Reykjavíkur með bróðurpartinn af tónleikunum, lék tvö verk, Sumartónlist op. 31 eftir Bandaríkjamanninn Samuel Bar- ber og Tíu þætti fyrir tréblásara eftir György Ligeti. Eftir hlé var svo Kvintett fyrir óbó, klarínett, fiölu, víólu og kontrabassa eftir Prokofief, sem Kristján Stephens- en, Óskar Ingólfsson, Laufey Sigurðardóttir, Helga Þórarins- dóttir og Richard Korn léku á sín hljóöfæri. Þetta voru sem sagt býsna fjöl- breyttir tónleikar sem féllu vel við yndislegt umhverfi. Sumartónlist Barbers er léttlýrisk og skemmtileg smátónsmíð sem gerir meiri kröfur. til flytjenda en áheyrenda. Leikur þeirra félaga, Bernharðs, Daða, Einars, Josephs og Hafsteins var Tónlist Leifur Þórarinsson mörgum gráðum fyrir ofan venju- lega góða fagmennsku, samspilið sprellifandi og fullt af fallegum söng. í verki Ligetis, sem gerir enn meiri kröfur til flytjenda og tals- verðar kröfur til áheyrenda, mátti svo heyra kvintettleik sem jafnast á viö það allra besta sem von er á í heiminum. Prokofief mun hafa samið sitt verk árið 1924, þegar hann var enn framsækinn og leitandi tónsmiður, búsettur í París. Skiljanlega má þar heyra ýmislegt ættað úr Le Sacre og Sögu hermannsins eftir Stravin- sky en allt er það sett fram með „prokofiönskum“ léttleika og snið- Jón Eiriksson, fyrrverandi skip- stjóri, lést 7. mars. Hann fæddist á Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd 12. júlí 1893 og voru foreldrar hans hjónin Eiríkur Jónsson og Sólveig Guðfinna Benjamínsdóttir. Jón lauk námi í bifvélavirkjun og síðar út- skrifaðist hann frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík. Ævistarf hans varð sjómennska, aðallega á togur- um. Jón hætti sjómennsku fyrir tuttugu og fimm árum. Eftir að hann kom í land starfaði hann við bygg- ingavinnu meöan heilsan leyfði. Hann giftist Dagbjörtu Vilhjálms- dóttur en hún lést árið 1978. Þau hjónin eignuðust sex börn og eru þrjú á lífi. Útför Jóns verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 15. Guðlaugur Bjarnason lést þann 18. febrúar sl. í Vancouver í Kanada. Bálfór hefur farið fram. Minningar- athöfn fer fram í Hafnarfjarðar- kirkju miðvikudaginn 16. mars kl. 13.30. Ingi Pétursson lést 27. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram. Inga Bergrós Bjarnadóttir, Hring- braut 79, Kelfavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 16. mars kl. 14. Ragnar Brúnó Guðmundssön, sem andaðist 4. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. mars kl. 15. Útfór Helenu Svanhvítar Sigurðar- dóttur, sem lést 3. mars sl., fór fram föstudaginn 11. mars. Jón Þórðarson, Fálkagötu 9, verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag, þriöjudaginn 15. mars, kl. 15. Fídes Þórðardóttir, Hamrahlíð 17, verður jarðsungin frá Fossvogskap- ellu miðvikudaginn 16. mars kl. 15. Útfór Þórðar Loftssonar frá Bakka fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 17. þ.m. kl. 13.30. Minningarathöfn um Guðríði Krist- insdóttur fer fram fimmtudaginn 17. mars kl. 15 frá Seltjarnarneskirkju. Andlát Ástríður Jóhannesdóttir, Torfalæk, lést á Héraðshælinu á Blönduósi sunnudaginn 13. mars. Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, Framries- vegi 61, lést í hjartadeild Landspítal- ans 11. mars. Ragnar Kristjánsson fyrrv. yfirtoll- vörður lést í Landakotsspítala 13. mars. Pétur Torfason bóndi, Höfn, Mela- sveit, lést af slysförum föstudaginn 11. mars. Baldur Sveinsson, Hrafnistu, áður Rauðalæk 18, Reykjavík, lést á Hrafnistu sunnudaginn 13. mars. Tóiúeikar Friðartónleikar í Háskólabíói Miðvikudaginn 16. mars nk. heldur hinn þekkti yogameistari Sri Chinmoy friðar- tónleika í Háskólabíói kl. 20.30. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Á þessum tónleikum hugleiðir Sri Chinmoy frið óg leikur eigin tónlist á ýmis hljóðfæri. í dag eru starfandi yfir 80 hugleiðslumiðstöðv- ar víða um heim sem njóta leiðsagnar Sri Chinmoy. Eitt meginatriði í boöskap hans er að innri friður einstaklingsins sé nauðsynleg forsenda fyrir heimsfriði. Nemendatónleikar Tónlistar- skólans i Reykjavík Hinir árlegu nemendatónleikar Tónlist- arskólans í Reykjavík verða að Kjarvals- stöðum í dag, 16. mars, kl. 21. Fjöldi nemenda kemur fram á tónleikunum og efnisskráin er fiölbreytt að venju. Flutt verður Tríó í Es-dúr eftir Beethoven, Keisarakvartettinn eftir Haydn, sönglög eftir Schubert og Strauss og einleiksverk fyrir píanó, flautu, fiðlu og lágfiðlu. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og ■aðgangur er ókeypis. ugheitum. Fimmmenningarnir, sem það léku, fóru á kostum og skildu við áheyrendur í elskulegri stemmningu. Þetta var ljómandi kvöld en ekki hefði skaðað að hafa fleiri sali safnsins opna og gefa kost á kaffi- sopa í hléinu. LÞ Blásarakvintett Reykjavikur. Háskólatónleikar Áttundu háskólatónleikar á vormisseri verða haldnir í Norræna húsinu mið- vikudaginn 16. mars kl. 12.30-13. Á tónleikunum munu Sverrir Guðjónsson kontratenór og Snorri Örn Snorrason lútuleikari flytja ensk, spönsk, þýsk og ítölsk lög frá endurreisnartímabilinu. Á efnisskránni eru einnig þrjú íslensk þjóð- lög. Ti]J<yimingar Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag, þriðjudag. Kl. 14 félagsvlst, kl. 17 söngæf- ing, kl. 19.30 bridge. Til foreldra um kristinfræði í grunnskóla. Námsgagnastofnun hefur gefið út tvö hefti sem ætlað er að kynna foreldrum námsefni og kennslu kristinna fræða í 1.-6. bekk grunnskóla. Heftin nefnast „Til foreldra um kristin fræði í grunnskóía". Höfundur þeirra er Sigurður Pálsson, fyrrv. námsstjóri í kristnum fræðum og ritstjóri íslensku útgáfunnar á kristin- fræðinámsefninu. Fyrra heftið er fyrir foreldra bama í 1.-3. bekk og fjallar um námsefni þessara aldurshópa - lífið, ljós- ið og veginn. Seinna heftinu er svo ætlað að fylgja heiminum, krossinum og kirkj- unni, þ.e.a.s. námsefni 4.-6. bekkjar. Heftin fjalla m.a. um tilgang og markmið kristinfræðikermslu, hlutverk gmnn- skólans í þessari kennslu og samstarf við heimilin. Að lokum er námsefnið sjálft kynnt svo og þau kennslufræðilegu við- horf sem liggja því til grundvallar. Tapað fundið Gullarmband tapaðist Marglitt gullarmband tapaðist annað- hvort á Hótel íslandi, Hollywood eða þar á milli þann 17. janúar sl. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 76151. Fundir Kvenfélag Kópavogs Aðalfundur félagsins verður fimmtudag- inn 17. mars í félagsheimilinu kl. 20.30. Mætiö vel. Ný matvöruverslun á Rifi á Snæfellsnesi Föstudaginn 12. febrúar sl. var opnuð ný matvömverslun á Rifi á Snæfellsnesi. Verslunin heitir Virkiö og er yfir 300 fer- metrar að gólftleti. Virkið er til húsa í stórri og glæsilegri nýbyggingu i nánd við Rifshöfn og er án efa kærkomin við- bót í matvöruverslun íbúa á Rifi og Hellissandi. Eigendur verslunarinnar eru Sturla Fjeldsted og Kristín Þórðar- dóttir sem mörg undanfarin ár hafa rekið söluskálann Tröð á Heilissandi. Ný hársnyrtistofa í Hafnarstræti Nýlega var opnuð hársnyrtistofa írisar að Hafnarstræti 16. Þar er boðið upp á alla almenna hársnyrtiþjónustu fyrir dömur og herra. Opiö er kl. 9-18 alla virka daga og kl. 10-14 laugardaga. Eigandi er íris Gústafsdóttir en auk þess starfar þar Fanney Sigurgeirsdóttir. Kvikmyndir Stjömubíó/Kveðjustund: Rómantík við Gaza-svæðið Kveójustund (Every time you say good- bye) Gerð eftir sögu Moshe Mizrahi. Leikstjóri: Moshe Mizrahi. Aóalhlutverk: Tom Hanks og Cristina Marsillach. Þær eru sjaldséðar kvikmyndirn- ar um ást frá borginni Jerúsalem en ein slík er nú á tjaldi Stjörnubí- ós um þessar mundir. Grínleikar- inn Tom Hanks fer þar með hlutverk hermanns í seinni heims- styrjöldinni og gerir allt annað en að grínast í þeirri mynd, hann er í hlutverki sínu háalvarlegur ró- mantíksur elskuhugi sem stekkur varla bros. Myndin greinir frá setu breskra hermannana í ísrael. Þar eiga þeir nokkrir saman góðar stundir milh stríða og sletta ærlega úr klaufun- um, komast í kynni við kvenmenn og verða sumir hverjir ástfangnir. David (Tom Hanks) er einn þessara hermanna sem kemst í kynni við ísraelska stúlku og verður ást- fanginn. En þaö er ekki tekið út með sældinni að falla fyrir gyð- ingastúlku eða fyrir gyðingastúlku að falla fyrir erlendum hermanni. Tveir ólíkir menningarheimar rek- ast á og er það gert að aðalumfjöll- unarefni myndarinnar. Fjölskylda stúlkunnar hamlar henni að verða ástfangin af erlendum hermanni og hún stendur frammi fyrir því að þurfa að velja hann eða fjöl- skyldu sína. í einum hluta myndarinnar sést í Gaza-svæðið umtalaöa sem þarna hefur yfirbragð rómantíkur. Það er eitthvað annað en sögur herma í dag. Kveðjustund er sem sagt fróðleg mynd um árekstur óhkra menn- ingarheima, með ágætum leik og yfirbragði, en ívið einhæf með vest- rænu sjónarhomi. Einkum er gaman að sjá Tom Hanks spreyta sig á alvarlegu hlutverki þar sem hann sýnir og sannar að hann er ekki alltaf broslegur. -GKr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.