Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988.
Sviðsljós
Olyginn
sagði...
Elísabet Taylor
er ein af þeim stjörnum sem
fór út í framleiðslu á ilmvötn-
um og framleiddi hún sér-
stakan ilm sem var gefið
nafnið „Passion". Það hefur
selst bara nokkuð ve. en nú
er Elísabet orðin hrædd um
söluhorfurnar. Ákveðið ilm-
atnsfyrirtæki setti fyrir stuttu á
markað ilmvatn sem heitir
„Fever". Elísabet telur að það
sé sami ilmur og hún fram-
leiddi og er nú komin í mál
við fyrirtækið.
Hugh Hefner
sem á Playboystórveldið hefur
í gegn um árin búið með
mörgum af þeim stelpum sem
prýtt hafa síður tímarits hans.
Hann var búinn að búa með
Carrie Leigh fyrirsætu í nokkur
ár en sparkaði henni um dag-
inn. Hann er búinn að fá sér
nýja sem heitir Kimberly
Cofirad en Carrie Leigh er
komin í mál við hann á þeim
grundvelli að hann hafi rænt
hana atvinnunni. Cimberly
Conrad er einmitt ein af þeim
sem setið hefur fyrir á síðum
Playboy.
Warren Beatty
sem verið hefur piparsveinn
frá ómunatíð tilkynnti um
daginn að hann hygðist
kvænast hinni þrjátíu ára leik-
konu Joyce Hyser. Fréttir
herma að Warren Beatty sé
farinn að finna fyrir því að
tíminn sé að renna út hjá sér
því hann er á fimmtugasta og
fyrsta aldursári. Auk þess hafi
Beatty þegar hann sá hve
hamingjusamlega kvæntur
samleikari hans úr Ishtar,
Dustin Hoffman, er hafi hann
ákveðið að láta loks verða af
þessu.
Þær eru óneitanlega glæsilegar, stúlkurnar sjö, iklæddar sundbolum, áður en krýningin fór fram.
DV-myndir KAE
Fegurst í Reykjavík
Á Hótel Borg var mikið um dýrðir
fyrir skömmu þegar sjö stúlkur
kepptu um titilinn ungfrú Reykjavík.
Fjöldi manns msetti til þess að fylgj-
ast með keppninni og voru vel á
annað hundrað manns á staönum.
Stúlkurnar 7 hafa verið í þjálfun síö-
asta einn og hálfan mánuö þar sem
þær hafa lært göngulag og sviðs-
framkomu hjá Bimu Magnúsdóttur
hjá dansstúdíói Sóleyjar.
Á meðan dómarar réðu ráöum sín-
um varðandi val fegurðardrottning-
ar Reykjavíkur flutti Ríó Tríóiö lagið
Fröken Reykjavík og þótti það vel
við hæfi. Dómnefndin úrskurðaði
síöan Guönýju Elísabetu Óladóttur
fegurðardrottningu Reykjavíkur og
fékk hún mörg glæsileg verðlaun.
Besta ljósmyndafyrirsætan var kos-
in Guðbjörg Gissurardóttir.
Ljósmyndari DV var á staðnum og
brá sér meðal annars baksviðs til
þess að ná myndum af öllu umstang-
inu.
Fyrir keppnina þarf málningin að
vera í lagi. Hér eru þær Anna Bent-
ína Hermannsen og Ásdis Sigurðar-
dóttir málaðar.
Guðný Elisabet Óladóttir hreppti titilinn að þessu si'nni.
Stúlkurnar óskuðu hver annarri
góðs gengis fyrir keppninna. Hér eru
Anna Bentína Hermannsen, Guðný
Elísabet Óladóttir og Margrét Hann-
esdóttir.
Það er nauðsynlegt að lima sund-
bolina fasta með plástrum svo að
þeir dragist ekki til. Það er Guðbjörg
Gissurardóttir sem hér fær „lím-
ingu“.
Það dugir ekkert annað en að vera
í góðu formi fyrir svona keppni. Ás-
dís Sigurðardóttir sýnir vöðvana og
Guðný Elísabet Óladóttir dregur inn
magann.
Mikið á
sig lagt
Menn leggja ótrúlega mikið
á sig til þess að komast í
heimsmetabók Guinness.
í Jakarta í Indónesíu lögðu
tveir bakarar, Joyce Aswan
og Nila Chandra, það á sig að
baka stórt hús úr hvorki
meira né minna en 51.090 kök-
um.
Húsið er 7,5 metra langt, 5,5
metra breitt og 5,75 metra
hátt. Við hliðina á því byggðu
þeir mjög fallegt líkan af fugli,
þjóðartákni Indónesa, úr ein-
Michael Jackson hefur verið á hljómleikaferð um Bandarikin undanfarið tómum sykri. Fyrir þetta
en hann tók sér hlé frá þvi og gerðist fylgdarmaður Lizu Minnelli á söng- afrek vonast bakaramir tveir
leikinn Phantom of the Opera sem sýndur er i Majestic leikhúsinu i New York. effjr ag komast í heimsmeta-
Simamynd Reuter bókina
r • .............................-—1» » ,
WmKT:. .....................V.';.-...:.:-.:;
--------------
......................... •
Kökuhúsið og sykurfuglinn hafa vakið verð-
skuldaða athygli í Jakarta í Indónesiu.
Simamynd Reuter