Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. Viðskipti Fimmmenningar á Selfossi stofna alls 10 lyriitæki - og það sama daginn „Þetta eru fyrirtæki sem eiga að starfa. Sum þeirra eru þegar vel á veg komin. Ætlun okkar er að efla atvinnulífið hér á Selfossi, ekki veitir af,“ segir Eriendur Hálfdánarson, formaöur í stjórn 10 fyrirtækja sem hann, ásamt fjórum öðrum Selfyss- ingum, hefur stofnað nýlega. Stofnun fyrirtækjanna var auglýst í Lögbirtingablaðinu 3. mars síðast- liðinn. Þar kemur fram að þau hafa öll sama tilgang sem er umboðsrekst- ur, lánastarfsemij rekstur fasteigna, inn- og útflutningur, fiskeldi, fiski- rækt og önnur skyld starfsemi. Öll eru fyrirtækin stofnuð á sama degi, eða 14. nóvember á síðasta ári. Þau fjögur sem stofna fyrirtækin ásamt Erlendi eru Elínborg Karls- dóttir, Guðmundur Sigurðsson, Þóra Þetta er Selfoss. Þar stofnuðu fimmmenningar tíu fyrirtæki á sama degi á dögunum. Oll hafa fyrirtækin sama til- gang samkvæmt Lögbirtingarblaðinu. Grétarsdóttir og Sigurður Guð- mundsson. „Stofnun fyrirtækjanna er fyrsta skrefið, aðeins byrjunin. Við ætlum að fá fleira fólk í lið með okkur til að efla fyrirtækin og atvinnustarf- semina héma,“ segir Erlendur. - Én er ekki óvenjulegt að stofna 10 fyrirtæki, öll með sama tilgangi, á sama degi, heföi ekki dugað að stofna eitt? „Ekki tel ég það,“ segir Erlendur Hálfdánarson. Þess má geta að Er- lendur var bæjarstjóri á Selfossi á árunum 1974 til 1982. Hann starfar nú hjá Brunabótafélagi íslands á Sel- fossi. Fyrirtækin tíu heita Magn, Snæ- kollur, Dugur, Rof, Dáð, Berserkir, Gagn, íslensk-spænska verslunarfé- lagið, Hafranes og Hrísar. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverötryggð Sparisjódsbækur ób. 19 20 Ib.Ab Sparireikningar 3ja mán uppsogn 19 23 Ab.Sb 6mán. uppsogn 20 25 Ab 12 mán. uppsogn 21 28 Ab 18mán.uppsogn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb Sértékkareikningar 9 23 * Ab Innlán verötryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsogn 3.5 4 Ab.Úb, Lb.Vb, Bb.Sp Innlán með sérkjörum 19 28 Lb.Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 5,75 7 Vb.Sb Sterlingspund 7.75 8.25 Úb Vestur-þýskmork 2 3 Ab Danskar krónur 7,75-9 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv) 29.5 32 Sp Vióskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 31 35 Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(vfirdr ) 32,5 36 Sp Utlan verötryggö Skuldabréf 9.5-9.75 Allir nema Útlán til framleiðslu Ub isl. krónur 30.5 34 Bb SDR 7.75 8.25 Lb.Bb. Sb Bandarikjadalir 8.75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp Sterlingspund 11 11.5 Úb.Bb, Sb.Sp Vestur-þýsk mork 5 5.75 3.5 Úb Húsnæðislán Lifeyrissjóðslán 5 9 Dráttarvextir 45.6 3.8 á mán. MEDALVEXTIR överðtr. feb. 88 35.6 Verðtr. feb. 88 9.5 ViSITÖLUR Lánskjaravisitala mars 1968stig Byggingavisitala mars 343 stig Byggingavisitala mars 107.3stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1 . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Avoxtunarbréf 1.3927 Einingabréf 1 2,670 Einingabréf 2 1.555 Einingabréf 3 1.688 Fjolþjóðabréf 1.342 Geng'sbréf 1.0295 Kjarabréf 2,672 Lifeynsbréf 1.342 Markbréf 1.387 Sjóðsbréf 1 1.253 Sjóðsbréf 2 1.365 Tekjubréf 1,365 HLUTABRÉF • Soluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv . Almennar tryggingar 130kr. Eimskip 384 kr. Flugleiðir 255 kr. Hampiðjan 138kr. Iðnaðarbankinn 155kr. Skagstrendingurhf. 189 kr Verslunarbankinn 135kr. Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánarl upplýsingar um peningamarkað- Inn blrtast i DV á fimmtudögum. Ingvarssynir og Benedikt Blöndal stofna Isbjörninn hf. Bræðumlr Jón Ingvarsson og Vilhjálmur Ingvarsson ásamt eig- inkonum og Benedikt Blöndal, lögmanni og reyndar nýskipuðum hæstaréttardómara, hafa stofnað fyrirtæki undir heitinu fsbjörninn hf., en þeir Jón og Vilhjálmur áttu aö hluta og stjómuðu, sem kunnugt er, sjávarútvegsfyrirtækinu ís- bjöminn. Þaö fyrirtæki sameinað- ist BÚR og úr varð Grandi hf. Tilgangur nýja ísbjamarins er samkvæmt Lögbirtingablaðinu fj árfestingarstarfsemi, bygging og rekstur fasteigna, verslun, lána- starfsemi og annar skyldur at- vinnurekstur. Illutafé hins nýja ísbjamar er ein miiljón króna. Hlutafé er allt inn- borgað. Framkvæmdastjóri með prókúmumboð er Vilhjálmur Ingvarsson. Gengið var frá stofnun félagsins 12. desember. Þá er stofnun Hafsíldar hf. á Seyðisfirði einnig auglýst í sama Lögbirtingablaði. Stofnendur eru bræðurnir Jón og Vilhjálmur Ingv- arssynir, Benedikt Blöndal lög- maður og Seyðisfirðingamir Jónas Hallgrímsson og Theódór Blöndal. Hlutafé Hafsíldar er 10 milijónir króna. ísbjörninn átti og rak fiskimjöls- verksmiðju á Seyðisfirði um árabil og er Hafsíld arftaki þeirrar verk- smiðju. Tilgangur Hafsíldar er annars að reka síldar- og loðnu- bræðslu, fiskverkun, verslun, skipaútgerð, fiskveiðar, rekstur fasteigna og annan skyldan at- vinnurekstur. -JGH Fórnaivextir? „Fórnarvextir eru þær tekjur sem menn fórna með því að ráð- stafa fé sínu á einn hátt frekar en annan,“ segir í fréttariti Fjárfest- ingafélagsins, Verðbréfamarkaðn- um, um hugtakið fórnarvexti sem algengt er í fiármálalífinu en fólk gefur lítinn gaum. Blaðið tekur dæmi um bifreiða- kaup. „Maður hyggst kaupa sér bíl á eina milljón og til þess að losna við fiármagnskostnað ákveður hann aö staðgreiða bílinn.“ Þessi maður ber samt vexti, fóm- arvexti. Hefði hann ekki keypt bílinn hefði hann getað keypt verð- bréf sem bera rúmlega 13 prósent raunvexti. Fórnarvextir hans eru 13 prósent. Tæki hann lán fyrir bílnum á 9,5 prósent vöxtum og keypti verðbréf með 13 prósent raunvöxtum fyrir sína eigin milljón yrðu fórnarvext- ir hans 9,5 prósent. -JGH Lausnin á viðskiptahallanum: Draga úr eriendum lántökum frekar en að fella gengið - segir Ólafur Bjömsson, fyrrum hagfræðiprófessor Olafur Bjömsson, hagfræðingur og fyrrum prófessor við Háskóla ís- lands, segist telja það misráðiö aö fella gengið til að minnka viðskipta- hallann. Betri leið sé að draga kröft- uglega úr lántökum erlendis og þar með fiárfestingum innanlands og taka á sig þau óþægindi sem því geti fylgt eins og atvinnuleysi. „Ef gengisfelling hefði aðeins þau einu áhrif að innflutningur minnkaði væri sú leið best til að draga úr viö- skiptahallanum. En það vita allir að þannig er dæmið ekki. Gengisfelling hefur áhrif á verðbólguna eins og við íslendingar þekkjum manna best. Þess vegna er besti kosturinn aö mínu mati að halda genginu fóstu áfram,“ segir Ólafur Björnsson. Að sögn Ólafs myndi fiárfesting dragast stórlega saman í kjölfarið á minni erlendum lántökum. „Þetta þýðir færri framkvæmdir sem að vísu getur leitt til atvinnuleysis. Og spurningin er sú hvort það sýni fólki ekki best alvóru málanna.“ „Ég get þess vegna tekið undir það sem Jón Baldvin Hannibalsson fiár- málaráðherra hefur sagt um að nauðsynlegt sé að standa fast á fast- gengisstefnunni því ef fólk trúi að svo verði gert er það líklegast til að draga úr óraunhæfum kaupkröfum Ólafur Björnsson, hagfræðingur og prófessor við Háskóla íslands í ára- tugi. þar sem atvinnuleysi sé þaö sem fólk vill síst,“ segir Ölafur Bjömsson, fyrrum hagfræðiprófessor. -JGH íslenski fiskurinn eriendis: Ég hef ekki trú á miklum verðlækkunum - segir Friðrik Pálsson, forsfjóri SH Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, segir að töluvert annað útlit sé á helstu fiskmörkuðum okkar í Bandaríkjunum og Englandi en á sama tíma í fyrra. Markaðirnir séu þyngri og eftirspurn minni. „Ef framboð verður svipað og menn hafa spáð tel ég ekki ástæðu til að óttast miklar verðlækkanir," segir Fríðrik um það hvort við blasi stórfelldar verðlækkanir ytra á næstunni. Að sögn Friðriks hækkaði verðið fram á mitt síðasta ár. „Þær breyt: Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. ingar, sem hafa orðið síöan, eru heldur til iækkunar." Friðrik segist vita að nokkur birgðasöfnun eigi sér stað hjá keppinautum íslensku fisksölufyr- irtækjanna erlendis. „Það segir okkur að markaðurinn er orðinn erfiður. Á meðan eftirspurnin reis sem hæst jókst eftirspurn keppina- uta okkar og þeir hækkuðu verðið en nú hafa þeir lækkað það.“ Engin birgðasöfnun hefur oröið hjá íslensku fisksölufyrirtækjun- um, sem þýðir að íslenski fiskurinn er ennþá eftirsóttur. Hann selst á hærra verði en fiskur keppinaut- anna. Að sögn Friðriks á fiskur í Banda- ríkjunum og Bretlandi í harðri samkeppni við kjúklinga og nauta- kjöt. „Á meðan gæði íslenska fisksins eru jafnmikil og raun ber vitni stendur hann vel að vígi í samkeppninni. En þetta eru harðir markaðir og það má aldrei slaka á í gæðum og áreiðanleika," segir Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.