Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. 9 DV Deila um eyjar Kínverjar og Vietnamar saka nú hverjir aöra um aö hafa byrjað átök sem hófust á mánudags- morgun um mikilvægar og hugsanlega auðugar eyjar í Suö- ur-Kíríahafi. Vestrænir stjórnarerindrekar í Bangkok lýstu undrun sinni á átökum þessum í gær og sögöu að deilur landanna um eyjarnar heiðu legið niðri mánuðum sam- an. Kínversk herskip hófu á mánu- dagsmorgun skothríð á tvö víetnömsk flutningaskip við Spratlys-eyjarnar, sem bæði eru taldar hernaðarlega mikilvægar og hugsanlega auöugar af olíu. Vietnamar svöruðu skothríð Kínveija i sömu mynt að eigin sögn í sjálfsvöm. Spratlys-eyjar og svæðið um- hverfis þær hafa lengi verið deiluefni ríkja í þessum heims- hluta og auk Kinvetja og Viet- nama hafa Taiwan, Malaysia og Filippseyjar gert tilkall til yfir- ráöa þar. Myrtu tólf Uppreisnarmenn úr röðum Tamila myrtu í gærkvöldi tólf manns í þorpi einu á austurhluta Sri Lanka, að sögn talsmanna stjórnarhers landsins. Meðal hinna myrtu vom sex konur og eitt bam. Aö sögn hersins réðust um tutt- ugu af skæruliöum Tamila á þorpið Galmetiyawe skömmu fyrir sólsetur í gærkvöldi. Réðust þeir þar á almenna borgara og felldu tólf þeirra, þar á meöal hóp af fólki sem var aö baða sig í á. Þaö sem af er þessum mánuði hafa Tamilar fellt um sjötíu al- menna borgara á austurhluta Sri-Lanka. Boli hafði betur Spænskir nautabanar em heimsþekktir fyrir hstir sínar og sýna nú herskörum áhorfenda á leikvöngum Spánar yfirburði sína yfir nautgripum um hverja helgi. Einstöku sinnum er það þó boli sem hefur betur og svo fór síðastiiðinn sunnudag í Madrid þegar Miguel Marcos hlaut eld- skím sína sem nautabani. Boh hafði Miguel undir og tókst aö særa hann á fótlegg þannig að Miguel var úr leik, að minnsta kosti um sinn. Útlönd Hart barist í lllinois Tahð er líklegt að George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, muni vinna sigur í forkosningum repú- blikana í Iilinois-fylki í dag en Robert dole, öldungadehdarþingmaður og helsti kepinautur hans, hefur þó eng- an veginn geíið baráttu sína upp á bátinn. Hörð barátta stendur einnig í for- kosningum demókrata í fylkinu enda eru tveir frambjóðenda þar búsettir í Illinois og berjast því á heimavehi. Era það þeir Jesse Jackson, sem enn hefur möguleika til að hafa veruleg áhrif á útkomu flokksþings demó- krata síðar á árinu og Paul Simon, sem gæti unnið sigur í Ilhnois, en er í raun nær vonlaus um að hljóta út- nefningu sem forsetaefni. Skoðanakannanir benda flestar til þess að mjótt sé á munum milh Jack- son og Simon. Simon hefur viður- kennt að kosningarnar í Illinois gætu orðið „síðasta andvarp" kosninga- baráttu hans. Hefur hann sagt að ef hann verði að sætta sig við annað sætið í Ilhnois muni hann endurmeta framboð sitt. Þótt þeir Jackson og Simon berjist um fyrsta sætið, að því er virðist, hefur Mikhael Dukakis, fylkisstjóri Massachusetts, unnið mikið á í 111- inois undanfarna daga og gæti vel hafnað í öðru sæti. Albert Goré nýtur ekki mikils fylgis í fylkinu og Ric- hard Gephardt hætti kosningabar- áttu sinni þar fyrir nokkru til þess að einbeita sér að Michigan-fylki. ' Af repúbhkönum eru engir fram- bjóðendur aðrir en Bush og Dole verulega í sviðsljósinu í Illinois. George Bush stefnir í sigur i forkosningunum i lllinois í dag og takist hon- um að vinna þar má telja fullvist að hann verði forsetaframbjóðandi repúblikana i kosningunum í haust. Simamynd Reuter Ólga vegna launalaga Páll Vilhjáinisson, DV, Osló: Norska stjórnkerfinu er líkt við fasísk yfirvöld á Ítalíu undir stjórn Mussolinis og verkalýðsfélög boða skæruverkfoll og andófsfundi. Þetta eru afleiðingar lagafrum- varps sem nú er til meðferðar á Stórþinginu. Frumvarpiö bannar allar launa- hækkanir í norsku atvinnulífi umfram þá einu krónu á tímann sem samtök atvinnurekenda og al- þýðusambandið komu sér saman um að launþegar skyldu fá. Minni- hlutastjórn Verkamannaflokksins leggur fram frumvarpið og nýtur stuðnings stærstu stjórnarand- stööuflokkanna. Á meðan hin breiða miðja í norskum stjórnmálum leggur blessun sína yfir launalögin er and- staðan við lögin bæði frá hægri og vinstri vængnum. Gagnrýnin er aðallega sú að lögin og kjarasamn- ingamir brjóti gegn frjálsum samningsrétti og að lýðræðinu sé hætta búin þegar ríkið taki hönd- um saman við stærstu samtök verkalýðsfélaga og atvinnurek- enda og geri bindandi samninga fyrir atvinnulífið allt. Formaður Hægri ílokksins, Carl I. Hagen, kvað sterkast að orði af andstæðingum laganna og sagði að lögin minntu á stjórn ítalskra fas- ista á milhstríðsárunum. Þótt fáir taki undir samlíkinguna eru þeir íleiri sem segja að í henni sé að finna sannleikskorn. ítalskir fasist- ar lögðu áherslu á stéttasamvinnu undir forystu ríkisvaldsins og náðu þannig kverkataki á atvinnulífinu. Mörg verkalýðsfélög, bæði innan og utan alþýðusambandsins, eru einnig óánægð. Forysta alþýðu- sambandsins er sökuð um að svíkja hagsmuni launafólks og setja tryggðina við ríkisstjórn Verka- mannaflokksins í öndvegi. Á fostudaginn efndu óánægð verkalýðsfélög til skyndiverkfaha sem meðal annars lömuðu opin- berar samgöngur í rúma tvo tíma. Jafnvel er búist við fleiri slíkum verkfollum. Gert er ráð fyrir að launalögin verði afgreidd frá Stórþinginu um eða eftir helgina. Um tima leit út fyrir aö Hægri flokkurinn myndi ekki styðja lögin nema gegn ákveðnum skilyrðum. Hægri flokkurinn virðist hafa skipt um skoðun eftir að samtök atvinnurek- enda gerðu grein fyrir afstöðu sinni. Næsta víst er því tahð að frum- varpið verði samþykkt á Stórþing- inu með mótatkvæðum Framfara- flokksins og Sósíalíska vinstri flokksins. Felldu leyniskyttu Breskir hermenn felldu í gær leyniskyttu úr röðum írska lýðveld- ishersins, IRA, á meðan yfir stóð hkfylgd þriggja félaga hans úr skæruhðasamtökunum, sem felldir voru á Gíbraltar í síðustu viku. Að sögn talsmanna breska hersins á Norður-írlandi hafði leyniskyttan skotið á varðsveit úr breska hernum í Belfast. Maðurinn er sá fyrsti sem fellur í óeirðum þeim sem staðið hafa á N- írlandi undanfarna átta daga, allt frá því að breskir hermenn fehdu þijá af skæruliðum írska lýðveldishers- ins á Gíbraltar. Lík þremenningana, tveggja karla og einnar konu, vora flutt til irlands og í gær tóku þúsundir karla, kvenna og barna sér stöðu meðfram strætum þeim sem líkfylgdin fór um. Fólkið bar flest svarta fána utan fáein ung- menni sem veifuðu breskum fána til að mótmæla líkfylgdinni. Þegar flugvélin, sem flutti líkin til írlands, lenti á flugvellinum í Dubhn tóku grímuklæddir skæruliðar úr lýðveldishernum sér stöðu í fátækra- hverfi kaþólskra í Belfast og skutu þar kveðjuskotum yfir myndum af þremenningunum. Áætlað er að grafa þremenningana í Belfast og búist var við miklum aðgerðum af hálfu syrgjenda. Breski herinn á N-Irlandi hefur varað skæruhða lýðveldishersins við því að komið geti til alvarlegra átaka ef reynt verður að skjóta kveðjuskot- um yfir líkkistum þremenninganna. Þremenningarnir, Mairead Farrell, Sean Savage og Daniel McCann, voru skotnir til bana af hermönnum úr sérsveitum breska hersins á Gíbralt- ar fyrir liðlega viku. Þau voru ÓVOjHlUÖ. / Félagar úr irska lýðveldishernum, IRA, skjóta kveðjuskotum yfir myndum af föllnum félögum sinum. Simamynd Reuter Þar sem PLUS° og MINUS mætast í frystihúsinu, vöruskemmu'nni' eða iðnaðarhúsnæðinu er lausnin að nota W/ÍLiönaöarplasthengi til varnar hita- og kuldatapi. Hljóðeinangrandi og gegnsæ. Leitið upplýsinga ASTRA Austurströnd 8 - sími 61-22-44

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.