Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. 13 dv Útlönd Flugstjórinn neytti kókaíns fyrir flug Flugmennimir reynslulittir Awia Bjarnason, DV, Denver: Rannsóknarréttarhöldunum vegna flugslyssins, er DC-9 far- þegaþota fórst í flugtaki á Stapleton flugvellinum i Den- ver í nóvember sl, er nú lokiö. Úrskurðar um orsök slyssins er ekki aö vænta fyrr en í árs- lok. Í síðari hluta réttarhaldanna komu meðal annars í ljós eftir- farandi atriði. Aðstoðarflug- maðurinn, 26 ára, stjómaði þoturmi í flugfakinu. Hann átti að baki aðeins 36 flugtíma á DC-9 þotu og sex vikna starfs- tíma Iflá Continental flugfélag- inu. Flugsfjórinn, 43 ára, hafði mikla reynslu sem flugvélvirki og aðstoðarflugmaður. Hann fékk réttindi til að stjórna DC-9 þotu aðeins sex vikum fyrir sly- sið og átti að baki aðeins 33 flugtíma sem flugstjóri. Flug- stjórinn og aðstoðarflugmaður- inn vora meðal þeirra tuttugu og átta sem fórust af þeim átta- tíu og tveimur sem um borð voru. Aðstoðarflugmaðurinn hafði ekkert flogið á tímahilinu frá apríl til október sl. þegar hann hóf þjálfun fyrir flug á DC-9 þotum hjá Continental flugfé- laginu. Reglur bandarísku flugstjórnarinnar kveða á urn að ekki megi lfða meira en 90 dagar milli þess sem flugmenn fljúga án sérstaks æfingaflugs og stjórnendur sumra flugfé- laga bára að þeir vildu ekki láta líða meira en þrjár vikur milli þess sem flugmenn þeirra færu í loftið án æfingaflugs. Aðstóðarflugmanninum gekk illa í flugtaki og lendingum í svokölluöu „flugvé]arlíki“ á þjálfunartímabilinu og eín tii- raun hans til lendingar var stöðvuð. Hún hefði ella endað með „flugslysi'L Hann lauk þó 24 stunda æfingaþjálfun og flaug f tólf stundir sem fullgild- ur aðstoðarflugmaður áöur en slysið varð. Hann hafði þó ekk- ert flogið síðustu 24 dagana fyrir slysið. Mörg skaðabótamál hafa ve- rið þingfest vegna flugslyssins. Þau bíða þó þar til fyrir liggur úrskurður um hvað olli slysinu, Veröi það úrskurður um „mannleg mistök'* er talið að flugfélagið verði dæmt til að greiða gífurlegar skaðabætur. Slysið hefur þegar oröið til þess að rnörg flugfélög hafa sett reglur sem tryggja að tveir lítt reyndir flugmenn geti aldrei lent saman í áhöfn. Fyrir slysið hafði aðeins eitt af tíu stærstu flugfélögum Bandaríkjanna shkar reglur í gilcli. Airna Bjamason, DV, Denver: Það var sem sprengju hefði verið varpað í heimi bandarískra flugmála um helgina þegar öryggisráð- sam- göngumála birti niðurstöður rann- sóknar sem sýndi að flugstjóri flugvélar, sem fórst í Colorado þann 19. janúar síðastliðinn, hafði neytt kókaíns. Með flugvélinni fórust níu manns, þar á meðal báðir flugmenn- irnir. Átta komust lífs af. Þetta er í fyrsta sinn í flugsögu Bandaríkjanna að sannast hefur að flugmaður vélar, sem fórst, hafi neytt eiturefna. Flugstjórinn, sem var 36 ára, átti 4500 flugtíma að baki og skorti því ekki reynsluna. Aðstoðar- flugmaðurinn átti um 9000 flugtíma að baki. Niðurstöður krufninga á lík- ama hans verða birtar í næstu viku. Ekki hefur verið gefið upp hvor þeirra er talinn hafa verið við stjórn vélarinnar þegar hún skall til jarðar á hæðarhrygg fjórtán mílur frá flug- vellinum i Durango sem hún stefndi að. Vélin var að koma frá Denver. Farþegarnir, sem komust af, sögðu í yfirheyrslum að ekkert hefði verið athugavert við flugið áður en slysið varð. Lögregluyfirvöld í Durango til- kynntu skömmu eftir slysið að flugmennirnir hefðu ekki verið und- ir áhrifum áfengis eða annarra efna. Nákvæmari rannsókn fór hins vegar fram að skipan flugmálastjórnarinn- ar og þá fundust leifar kókaíns í blóði og þvagi flugstjórans. Töldu vísinda- mennirnir magnið sýna að hann heföi neytt eiturlyfsins þremur til tuttugu og fjórum stundum áður en slysið varð. Búist er við hörðum viðbrögðum flugmálastjórnarinnar vegna þessa máls. James Burnley, ráðherra sam- göngumála, hefur tilkynnt að í undirbúningi sé áætlun um skyndi- kannanir á því hvort flugliðar neyttu kókaíns eða annarra eiturefna. Eiga slíkar kannanir að ná til um fimm hundruð þúsund flugmanna, flug- freyja og þjóna, vélvirkja og annarra starfsmanna flugfélaga sem bera ábyrgð á lífi flugfarþega. Þessi ummæli ráðherrans hafa valdið úlfaþyt í röðum flugmanna og þeir hafa mótmælt harðlega. Á síð- asta ári byrjaði samgönguráðuneytið að gera skyndikannanir varðandi notkun eiturlyfja meðal starfsmanna í þýðingarmiklum öryggisstörfum. Af tólf hundruð, sem prófaðir voru, reyndust átta hafa neytt eiturlyfja. Sönnunin um kókaínneyslu hins látna flugmanns hefur riljað upp nið- urstöður rannsókna sem dagblað í Rittsburg gerði meðal starfsfólks á sautján slysavarðstofum víðsvegar um Bandaríkin í september 1986. Fyrir þær rannsóknir fengu starfs- menn blaðsins Pulitzer-verðlaunin það ár. Læknar og hjúkrunarfræðingar þessara slysavarðstofa staðhæfðu að þeir tækju oft á móti starfsfólki flug- félaga sem hefði innbyrt of stóra skammta af eiturlyfjum. Starfsfólk á slysavarðstofum getur ekki skýrt flugfélögum frá því hvaða fólk þetta er vegna þagnarskyldu. Blaðið komst líka að því í þessari umfangsmiklu rannsókn sinni að sextíu og níu flugmenn höfðu farið í meðferð vegna kókaínneyslu án þess að bandarísku flugmálastjórninni væri kunnugt um það. Blaðiö lauk skrifum sínum um eiturlyfjanotkun flugmanna á þá leið „að á sama tíma og allir flugfarþegar verða að sæta ítarlegri öryggis- og tollskoðun geti áhafnir flugvéla löglega sneitt hjá allri skoðun. Þó liggi fyrir vaxandi vitneskja um að sumir þessara flug- liða séu á kafi í neyslu eiturlyíja og/ eða flutningi eiturlyfja." VANTARÞIG HURÐIR? Stálhurðir: þykkt 50 mm. Einangrun: Polyurethane "Ú gildi 0,32 W/m2, 7 litir. Með og án mótordrifs. Sendum menn til uppsetningar um land allt. ASTRA AUSTURSTRÖND 8, SÍMI 612244 Urval Tímarit fyrir alla HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA MEÐAL EFNIS: Skop 2 • Drengurinn sem gat ekki talað 3 • Fóstureyðingum fækkar • ef konur hætta að taka pillu- hlé 9 • Handriðjð á stiganum 19 • Kína: Holskefla af reiðhjólum 22 • Husun í orðum 28 • Gríski harmleikurinn 30 • Fimm leyndarmál um lofnaryndi • (sem konur vildu að • karlar vissu) 37 • Vísindi fyrir almenning: • Darwin gegn Biblíunni fyrir hæstarétti 43 • Hótelið logar 49 • Þáttur af Stuttu-Siggu 74 • Síðasti möguleiki Vladimirs 83 • Draumar sem rættust 89 • Völundarhús 96 • , 'í. í &. i i I L I k

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.