Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. 15 Er Rás 2 heilög kýr? Hver segir að ríkið eigi að reka tvær útvarpsrásir? Nú þegar eru til að minnsta kosti tvær útvarps- stöðar, Stjarnan og Bylgjan, sem geta tekið við hlutverki Rásar 2 rík- isútvarpsins. Á rétt rúmu ári hafa einkaaðílar sýnt að þeir geta rekið útvarps- og sjónvarpsstöðvar með sóma. A sama tíma þenst ríkisútvarpið hins vegar út og afnotagjöldin tvöfald- ast. Þetta er öfugþróun. Ríkisút- varpið heíði átt að draga sig smám saman í hlé og leyfa einkaaðilunum að taka við hlutverkinu í stað þess að fara út í grimma samkeppni á kostnað skattgreiðenda. Útvarpsstöðvum hefur ijölgað ört á skömmum tíma. Það eitt sýnir auðvitað mikla grósku frá því að útvarpsrekstur var gefinn frjáls. Kjallariim Ólafur Hauksson útvarpsstjóri Stjörnunnar „Það er hins vegar til annað ráð en að leggja Rás 2 niður, eins og það að selja einkaaðilum, til dæmis hæstbjóðanda, dreifkerfi stöðvarinnar.“ Gróskan væri enn meiri ef ríkisút- varpið stæði ekki í veginum. Ekkert lögmál Það er ekkert lögmál að ríkið eigi að reka fjölmiðla. Ríkisútvarp er ekkert betra en einkaútvarp. Ríkis- útvarpið getur hins vegar gert ýmislegt sem einkaaðilar geta ekki gert vegna þess að það hefur pen- ingana til þess. Reyndar ekki eigin peninga heldur peninga skattgreið- enda. Oft er bent á hina vel mönnuðu fréttastofu ríkisútvarpsins sem ástæðu þess að ríkið eigi að stunda útvarpsrekstur. Það er að sjálf- sögðu hreint rugl. Auðvitað er enginn vandi að hafa öfluga frétta- stofu þegar helmingurinn af tekj- unum kemur beint úr vasa skattgreiðenda. En hvers eiga skattgreiðendur að gjalda? Meirihluti heimila á landinu greiðir nær 13 þúsund króna skatt til ríkisútvarpsins á ári. Einkastöðvar eru tilbúnar til að aflétta þessu oki af almenningi. Þær geta tekið við hlutverki ríkis- útvarpsins og fýrsta skrefið er Rás 2. Rás 2 er hrærigrautur Rás 2 er engin heilög kýr. Upphaf- lega var hún hugsuð sem tónlist- arrás. Nú er hún eins konar hrærigrautur dægurþrasara og fólks sem hefur enga tilfinningu ’ „Stóra húsið við Efstaleiti og mannmarga fréttastofan duga ekki til“, segir í greininni. - Nýja útvarpshúsið í forgrunni. fyrir tónhstarsmekk almenn- ings. Hlustendakannanir segja það sem segja þarf um Rás 2. Á þeim stöðum, sem fólk getur vahð um Stjörnuna og Bylgjuna, auk Rásar 2, er alls staðar meira hlustað á einkastöðvarnar. En auðvitað hef- ur Rás 2 nokkuð marga hlustendur þar sem ekkert annað er að hafa. Skiljanlega. Það er hins begar til annað ráð en að leggja Rás 2 niður, eins og það að selja einkaaðilum, til dæmis hæstbjóðanda, dreifikerfi stöðvar- innar. Þannig yrði tryggt að þjónusta við landsbyggðina mundi ekki falla niður heldur fyrst og fremst batna. Ríkisútvarpið verður að draga sig í hlé Sumir benda á aö einkastöðvarn- ar geti sett upp eigið dreifikerfi. Þær ná reyndar nú þegar til meira en 80 prósent landsmanna. En af- gangurinn af dreifikerfinu er dýr, margfalt dýrari en það sem komið er, og á meðan ríkisútvarpið er styrkt með skattpeningum er ekki beint auðvelt að keppa við það í þessum efnum. Ríkisútvarpið'verð- ur því að draga sig í hlé. Markús Örn Antonsson ríkisút- varpsstjóri fullyrðir að RÚV muni tapa auglýsingatekjum ef Rás 2 verði ekki lengur fyrir hendi. Hann bendir á að ríkisrásirnar tvær fái fjölda auglýsinga vegna þess að þær séu samtengdar. Þessar aug- lýsingar yrðu vart fyrir hendi ef aðeins Rás 1 væri eftir. Ástæða er til að staldra við orð Markúsar. Hann hefur ekki trú á því að Rás 1 nái nægri hlustun til að fá auglýsingar. Stóra húsið við Efstaleiti og mannmarga fréttastof- an duga ekki th. Ljóst er að endurskoða þarf hlutverk gömlu gufunnar. En er ástæða til að standa í vegi fyrir þróuninni af þeirri einni ástæðu að ekki megi stugga við risaeðlunni við Efstaleiti? Ólafur Hauksson Ráðamenn og ráðhúsgróði Mikið hefur verið rætt og ritað um hina fyrirhuguðu ráðhúsbygg- ingu í Reykjavík og ef til vill er ekki á það bætandi. Hins vegar hef ég ekki séð neitt koma fram varð- andi aðalatriðið í þessum bygging- arframkvæmdum, hvatinn að þeim er ekkert annað en bisness. Ráð- húsbyggingin er leið fyrir hags- munaaðilana á bak við borgar- stjórnina til þess að hagnast á kostnað hins almenna borgarbúa. Þetta eru verktakar, bisness- og fjármálamenn sem kippa í spottana á strengjabrúðum sínum, meiri- hluta borgarstjórnar. Forgangsröðin Engin alvarleg umræða hefur farið- fram um það hvort ráðhús- byggingin er yfirleitt nauðsynleg hér í borg sem er yfirfull af skrif- stofuhöllum. Og jafnvel þótt við gæfum okkur það að þörf sé fyrir slíka framkvæmd þá er hægt að spytja hvort hún sé forgangsverk- efnið fyrir fólkið sem býr í borg- inni. Eru þessar framkvæmdir mikilvægari en að leysa dagvistun- armálin eða að bæta úr því neyðar- ástandi sem ríkir í húsnæðismál- um borgarbúa m.a. vegna skorts á leiguhúsnæði? Nei, auðvitað er ráðhúsið ekki reist til þess að þjóna hagsmunum borgarbúa. Borgarbúum er fyrst og fremst ætlað að borga bruðlið. Kjallarinn Bjarni Hákonarson í landsráði Flokks mannsins ferlíki í Reykjavíkurtjörn?' Ef við viljum skilja kjarna málsins ættum við að byrja á að spyrja: Hverjir eru það sem græða á þessum fram- kvæmdum? Þeir sem græða á ráðhúsbyggingunni eru fram- kvæmdaaðilarnir, verktakarnir og bisnessmennirnir í hægri öílunum. Einnig hinir svokölluðu vinstri- flokkar í minnihluta borgarstjórn- ar sem halda að þeir geti slegið sér upp pólitískt með því að tönnlast á að þetta sé höll Davíðs borgarstjóra í „Davíðsborg". Minnihlutinnheld- ur aö með þessu áróðursbragði takist honum að fella Davíð í næstu borgarstjórnarkosningum! Málpípan Það er annars alveg dæmalaust hvað „vinstri pólitík" borgar- „En eitt er mér alveg hulin ráðgáta í öllu þessu byggingarstandi, þ.e. hvers vegna ráðhúsbyggingin þarf endilega að vera svona ljót og hvernig má græða á því.“ Hverjir græða? stjórnarminnihlutans er grunn- En hvers vegna þá þessi áhugi á hyggin. Það eina sem honum dettur ráðhúsbyggingunni, þessu mikla í hug er að hefja ímynd „strengja- Fyrirhugað ráöhús. Framtíðarverkefni næstu áratugi viö aö breyta þvi eða flytja eða breyta umhverfinu í kring? brúðunnar" Davíðs upp til skýj- anna eins og hann geri sér ekki grein fyrir því að auðvitað er Davíð ekkert annað en málpípa fyrir sína yfirboðara, flokkseigendafélagiö. Hann og Þorsteinn Pálsson gætu stofnað hagsmunafélag strengja- brúða og boðið kollegum sínum úr öörum flokkum með sér, því að auðvitað eru stjórnmálamenn rétt- indalausir ef þeir eru ekki hlýðnir og nógu duglegir við að svíkja sam- viskuna. Hagsmunir fólksins? En að öllu gríni slepptu þá er ekki svo erfitt að skilja hvernig for- gangsverkefnin eru valin. Flokks- eigendurnir eru góðir bisnessmenn og þeir eru fljótir að reikna það út að þeir græða miklu meira á glæsi- höllum og dýrum tæknilausnum, eins og að byggja í vatni, lieldur en á ódýru leiguhúsnæði og látlausum dagvistunarheimilum. En óneitan- lega væri það nú skemmtilegra ef hægt væri að verja þeim 500 millj- ónum, sem höllin á að kosta, til þess aö bæta úr þessum brýnu hagsmunamálum fólksins. Framtíðarbruðl En eitt er mér alveg ráðgáta í öllu þessu byggingarstandi, þ.e. hvers vegna ráðhúsbyggingin þarf endi- lega aö vera svona ljót og hvernig má græða á þ »'í. Og þó, ef maður athugar dæmið nánar þá er þetta kannski ekki svo slæm hugmynd til að græða á, því að ef tekst að gera húsið nógu ljótt og láta það stinga nógu mikið í stúf við um- hverfið er þarna komið framtíðar- verkefni næstu áratugi við að breyta ráðhúsinu eða flytja það eða breyta bara öllum gömlu húsunum í kring í samræmi við það. Hreyfingin En nú spyr ég landsmenn: Hvern- ig líður ykkur aö láta plata ykkur svona? Langar ykkur ekki til að segja „hingað og ekki lengra“ og gera eitthvað í málunum? Ég veit ekki hvað ykkur finnst en mér stendur stuggur af því að þurfa að standa undir svona bruðli á öllum sviðum og vera bjargarlaus gagn- vart því. Ég held að við ættum að mynda sterka samstöðu meðal fólksins gegn þessu bisnessveldi og handhöfum þess. Hreyfingu sem setur hagsmuni fólksins og manngildi númer eitt og hafnar kerfisflokkunum eins og þeir leggja sig. Þessi hreyfing húm- anista er þegar farin af stað og heitir Flokkur mannsins. Bjarni Hákonarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.