Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
Fréttir________________________dv
Níu ára drengur fórst og
tveir menn stórslösuðust
eftir að jeppi þeirra ók ofan í sjö metra gilskoming í FHjahnjúkum í Snæfelli
Komið var með slösuðu mennina með sjúkraflugi frá Egilsstöðum til Reykjavíkur á sunnudagsmorgun. Á myndinni sést þegar annar þeirra er færður
úr flugvélinni í sjúkrabifreið. DV-mynd S
Níu ára drengur úr Kópavogi beið
bana er jeppabifreið, er hann var
farþegi í, ók ofan í gilskoming í Fitja-
hnjúkum í Snæfelli á laugardags-
kvöldið. Drengurinn, VOhjálmur
Birgisson, var í bíl með fóður sínum
og öðrum manni en þeir hggja þungt
haldnir á gjörgæsludeild Borgarspít-
alans. Mennimir em úr lífshættu.
AUs vom fimm jeppar saman í leið-
angrinum, alhr af höfuðborgarsvæð-
inu. Allt er fólkið vant jöklaferðum
og var vel búið til fararinnar.
Ekki nokkur leiö
að varast skoruna
Að sögn Sveins Sigurbjarnarsonar,
ökumanns á snjóbílnum Tanna, sem
kom fyrstur á slysstað, var ógjörn-
ingur að sjá skoruna fyrr en að henni
var komið. Skoran, sem er 6-8 metra
djúp og 15 metra breið, var falin í
landslaginu og því ekki nokkur leið
að varast hana. Jeppinn var fyrstur
í rööinni og sáu hinir sem á eftir
komu strax hvað gerst hafði.
„Ég var í klukkustundar íjarlægð
frá slysstaðnum og til allrar lukku
vorum við með hjúkrunarkonu í
Tanna. Er við komum á staðinn var
búið að ná mönnunum upp og var
þaö mjög vel af sér vikið þar sem
erfitt er að flytja slasaða menn,“
sagði Sveinn. „Það var ekki svo
slæmt veður þegar slysið átti sér
stað, suðvestan bylur og smáskaf-
renningur. Mennirnir eru þaul-
reyndir íjallamenn."
Með Tanna í skála
Ferðafélagsins
Tanni flutti slösuðu mennina og lík
htla drengsins í skála Ferðafélags
Fljótdalshéraðs í Snæfelli sem er um
þrettán kílómetrum sunnan við slys-
staðinn. Veðrið versnaði með kvöld-
inu en slysiö átti sér stað um sjöleytið
á laugardagskvöld. Tanni var kom-
inn í skálann um klukkan þrjú um
nóttina og var þá beðið eftir þyrlu
Landhelgisgæslunnar.
Hinir slösuðu til Reykjavíkur
á sunnudag
Tilkynning barst til Landhelgis-
gæslunnar rúmlega sjö á laugardags-
kvöldið. Þyrlan lagði mjög fljótlega
af stað en þurfti að taka eldsneyti á
Keflavíkurflugvehi áður. Veðrið
versnaði mjög og gekk ferðin illa.
Þyrlan lenti á Hornafirði og þurfti
að bíða þar til klukkan fimm aö-
faranótt sunnudagsins. Hún lenti
síðan við skála í Snæfelh um sexleyt-
ið og var komin meö slösuðu
mennina til Egilsstaða um átta á
sunnudagsmorgun. Þar biðu flugvél-
ar sem fluttu hina slösuðu til Reykja-
víkur.
Aö sögn Sveins Sigurbjarnarsonar
var gífurleg jeppaumferð á fjöllunum
um helgina og taldi hann að þó ömur-
legt hefði verið að koma á slysstað
þar sem banaslys hefði orðið hafi þó
verið lán að fólkið var vel búið og
reynslumikið fjahafólk. „Einnig vor-
um við lánsöm að hjúkrunarkona
var með okkur. Hún gat gefiö ráð-
leggingar um hvemig meðhöndla átti
mennina en við vorum ekki meö
nein lyf með okkur,“ sagði hann.
-ELA
Tvö banaslys urðu á hálendinu um bænadagana: við Snæfell og Tröllaskaga. Þá þurftu björgun-
arsveitír að aðstoða fólk á fjórum öðrum stöðum: á Langjökli, við Hofsjökul, Norðan Tindfjalla-
jökuls og í Geldingadal. Þessir staðir eru allir sýndir á þessu korti.
Hjalparþurfí a Fróðárheiði
Fólk, sem var að ferðast um Fróð-
árheiði á Snæfehsnesi á laugardag-
inn, lenti í miklum hrakningum. Um
fimmleytið var skollin á blindhríö á
heiðinni og tepptist umferð algerlega
um hana fram til miðnættis. Margir
bílar voru á heiðinni þegar veðrið
skall á og urðu margir að láta fyrir
berast þar þangað til rofa tók til.
Björgunarsveitir frá Gnmdarfirði,
Hehissandi og Ólafsvík fóru upp á
heiðina til að aðstoða fólk. Þá var þar
tíl aðstoðar snjóbíll frá Akranesi.
Vanalega tekur um 25 mínútur að
keyra yfir Fróðárheiði en í sumum
tilvikum tók það 7 tíma á laugardag-
inn enda voru margir á litlum bílum
sem voru vanbúnir fyrir vetrarferða-
lög sem þessi.
-SMJ
Rita er gjörónýt eftir brunann en hér skoðar rannsóknarlögreglumaður
skemmdirnar. DV-mynd S
Grillstaður brann í Skipholtinu:
Reykskynjari í
næsta húsi
gerði viðvart
Grihstaðurinn Rita í Skipholtinu
gjöreyðilagðist í eldi aðfaranótt
fóstudagsins langa. Það var um kl.
hálffimm um nóttina sem boð kom
til slökkvihðsins um að reykskynjari
í veitingastaðnum Hrafninum, sem
er við hhðina á Ritu, hefði farið í
gang og sent boð til Securitas. Þegar
slökkvihðið kom á staðinn var mikil
eldur í Ritu en hann hafði þó ekki
náð að breiöast út. Greiölega gekk
að slökkva eldinn enda Rita ekki
stór.
Rita mun vera gjörónýt en eldurinn
náði ekki að breiöast út til næstu
staða. Töluverðar skemmdir urðu þó
í Hrafninum vegna vatns og reyks
og einnig þurfti að rífa niður milh-
vegg á milh Hrafnsins og Ritu til að
betur gengi að slökkva eldinn. Þá
mun reykurinn einnig hafa skemmt
eitthvað af vörubirgðum Henson fyr-
irtækisins sem er í sama húsi. Taíið
er að kviknað hafi í út frá rafmagns-
verkfæri sem gleymst hafi í gangi
þegar vinnu var lokið á skírdag í
Ritu.
-SMJ