Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
3
Fréttir
Páskaferðin breyttist
í bjórgunarleiðangur
- fjórir Bronco-jeppar bensínlausir á Hofsjökli
„Þaö má segja aö öll páskahelgin
hafi farið í þessa björgunarleiðangra.
Viö höfum orðiö aö breyta feröaáætl-
un okkar og nánast haldið til á
Hveravöllum á milli þess sem við
höfum verið að bjarga fólki,“ sagði
Kjartan Sigurðsson sem hefur dval-
ist inni á hálendinu yfir páskana.
Hann er í 22 manna hópi sem ferð-
ast á 11 jeppum og var upphafleg
ætlun þeirra að fara inn á Vatnajök-
ul en vegna anna við að bjarga öðrum
varö að breyta því. Á fóstudaginn
langa fóru fjórir jeppar úr hópnum
og aöstoðuðu jeppa sem fallið hafði
niöur um sprungu á Langjökli.
Á páskadag fóru síðan sjö jeppar
úr hópnum inn á Hofsjökul að að-
stoða fólk á fjórum Bronco-jeppum
sem voru orðnir bensínlausir. Þegar
hjálpin barst voru þeir með aðeins
um 20 lítra af bensíni. Varu Bronco-
jeppamir ferjaðir inn á Hveravelli,
þaðan sem þeir fóru til Reykjavíkur.
Að sögn Kjartans virtust þeir vera
illa búnir í ferðalag sem þetta og alls
ekki hafa nægilegá reynslu í jökla-
ferðum. Hefðu t.d. staðarákvarðanir
þeirra verið mjög ónákvæmar.
-SMJ
Gildi hf. á Hótel Sögu:
ÖI9u faglærðu fólki sagt upp
Öllu faglærðu fólki, matsveinum
og þjónum, hefur verið sagt upp á
Hótel Sögu frá og með 1. maí.
í samtali við Vilhelm Vestmann,
framkvæmdastjóra Gildis hf., sem
sér um rekstur veitinga- og ráð-
stefnuhalds á Hótel Sögu, kom fram
að uppsagnimar væru vegna skipu-
lagsbreytinga á rekstri. Samkeppnin
á þessu sviði væri mjög hörð og fyrir-
sjáanlegur einhvef samdráttur.
Vilhelm bjóst við að líkt væri ástatt
með öðram fyrirtækjum á sama
sviði. Hann sagði að um nokkra
fækkun yrði óhjákvæmilega að ræða
í sumar en flestir yrðu þó endurráðn-
ir.
Síðan fyrirtækið Gfldi hf. hóf starf-
semi, árið 1982, hefur shkum upp-
sögnum einu sinni verið beitt áður,
árið 1983. Vilhelm sagði ennfremur
að ólögleg veitingastarfsemi félags-
heimilanna væri samkeppni sem-
erfitt væri að ráða við þar sem þau
væra látin afskiptalaus af ríkisvald-
inu og ekkert eftirlit væri með þeim.
Félagsheimilin, sem era 50-80 og
rúma um 5000 manns í sæti, tækju
óneitanlega mikið frá veitingahús-
unum.
-ÍS
TVeir véleleðamenn týndust á Botnsheiði:
Gistu í skafli
á meðan
bjöigunar-
sveitin leitaði
Björgunarsveit frá Akranesi leit-
aði aðfaranótt páskadags tveggja
manna sem fariö höfðu á tveim
vélsleöum upp af Svínadal og oröiö
að gista í skafli vegna veðurs.
Piltarnir tveir, sem eru bræður,
22 og 18 ára, eru mjög kunnugir á
þessum slóðum enda búsettir í ná-
grenninu. Þeir lögðu af stað um kl.
hálfþijú á laugardaginn og sögöust
ætla aö vera komnir heim um
kvöldmatarleytið. Þegar ekkert
hafði til þeirra spurst á tilsettum
tíma var haft samband við björgun-
arsveitina Hjálpina á Akranesi og
fóra 12 vélsleöar og einn snjóbíll frá
þeim til leitar.
Meimimir fmidust síðan heiiir á
húfi um kl. hálfsex um morguninn
en þeir höfðu þá látið fyrirberast í
skafli í Geldingadal á Botnsheiöi
þegar veður hafði versnaö. Þegar
þeir fundust var búiö að gera ráð-
stafanir til að kalla út meira lið.
Vora piltamir villtir en vel haldnir
þó að búnaður þeirra hafi veriö
miöaður við stutta ferð.
-SMJ
...yst sem innst..!
Fæst í verslunum um land allt.
wmmmmmrnm
.
llilll
♦
Heildsölubirgðir:
DAVIÐ S. JONSSON & CO. H.F.
Otr. t)*iSJ IU tMf
» CKki fyrír.hcíK
l-í
T RIKISU
tfST*LEr
,03 RtVIU
Eitt umslag
..engin bið!
Starfsfólk Útvegsbankans segir biðröðum stríð á hendur!
Þú færð þér umslag og lætur reikningana þína í það.
Pú skilar umslaginu í næstu afgreiðslu bankans.
Við greiðum og millifærum samdægurs.
hú færð síðan kvittanirnar sendar heim í pósti.
Komdu og kynntu þér málið.
Sóaðu ekki lengur tíma þínum í biðraðir.
Þú getur gengið frá umslaginu heima.
Það borgar sig að skipta við Útvegsbankann!
mé!~ öo SK
□p k
^ - -
«s*&Oþj6nUm&
U'T V E G SJB-A.N.k~~~
HtCLUfí HRADÞJONUSTU UTV6GSÖANKANS.
í posa.
• Gj»J<T lyw 6*5^« pfOnuitu \,0r
^jrvwro, mö vorfaX’á t>*r*Lan* >
Orv ,
Op utvegsbanki Islands hf