Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
5
Fréttir
■ m ■ ■ ■ jtf
Keimlik merki Bessastaða
hrepps og ferðaskrifstofu
SKjaldarmerid Bessastaöahrepps og merki Ferðaskrifstofu Reykjavíkur hafa vakiö athygli runa merkjanna hjá sveitarstjóra Bessastaöahrepps og framkvæmdastjóra Feröaskrifstofu
fyrir að vera mjög svipuð útlits. Bæði merkin eru hringlaga, blá að lit og með hvitum röndum, Reykjavíkur. Kom þá í ijós að skjaldarmerki Bessastaöahrepps er eldra. Merkin eru hins vegar
þótt ekki sé það til vandræða hversu keiralik þau eru. DV leitaði upplýsinga um aldur og upp- hönnuð sitt í hvoru landinu og virðist því vera um skemmtilega tilvRjun að ræða. -JBj
Táknar tjarnir og fuglalíf
Bessastaðahrepps
- segir svertarsfjóri
„Þetta kemur mér mikið á óvart því að
skjaldarmerki Bessastaðahrepps hefur ve-
rið kynnt mjög vel í fréttabréfi sveitarfélaga
og er því orðið fast,“ sagði Sigurður Valur
Ásbjarnarson, sveitarstjóri Bessastaða-
hrepps, í samtali við DV.
Sigurður Valur hafði ekki séð merki
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur þegar DV
ræddi við hann. Hann upplýsti að skjaldar-
merki Bessastaðahrepps hefði litið dagsins
ljós eftir að hugmyndasamkeppni um merk-
ið var hrundiö af stað í desember 1984. Þann
28. mars 1985 var merkið svo tekið í notkun.
44 tillögur bárust í hugmyndasamkeppnina
og var sigurvegarinn og höfundur skjaldar-
merkisins Hildur Rögnvaldsdóttir, íbúi í
Bessastaðahreppi.
Sigurður Valur sagði rendurnar þijár í
skjaldarmerkinu tákna þijár tjarnir sem
eru í hreppnum en fuglinn er tákn hins
mikla fuglalífs sem er í Bessastaðahreppi.
-JBj
BESSASTAÐAHREPPUR
SKRIFSTOFA, BJARNASTÖÐUM SÍMI: 51950
221 BESSASTAÐAHREPPUR
Skjaldarmerki Bessastaðahrepps var hannað árið 1985 og táknar tjarnir og fuglalíf í
Bessastaðahreppi.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16 101 REYKJAVÍK
Merki Ferðaskrifstofu Reykjavíkur var hannað fyrir tæpu ári í Danmörku. Ef því er snúið
á hlið má greinilega sjá bókstafinn R.
Merkin ekki hvort fyrir öðru
- segir framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Reykjavíkur
„Merkið okkar er hannaö úti í Danmörku
og er þetta því alger tilviljun. Þeir úti hafa
náttúrlega ekki nokkra hugmynd um
hvernig skjaldarmerki Bessastaðahrepps
lítur út. En merkin eru alls ekki þaö lík aö
þetta sé eitthvað til að gera veður út af og
er ég viss um að þau munu ekki verða hvort
fyrir öðru. Raunar er þetta bara svolítið
skondið," sagði Inga Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Reykjavíkur,
í samtali við DV.
Inga sagði danskan hönnuð hafa hannað
merkið í apríl á síðasta ári en feröaskrifstof-
an tók til starfa í júní. Hún benti svo á atriði
sem gera merkin gjörólík. „Hönnuðurinn
ætlaði upphaflega að láta stafina F og R
myndast í merkinu. Ef því er snúið viö má
greinilega sjá errið en einhverra hluta
vegna hefur hann hætt við effið og lagt
merkið á hliðina. Kannski hefur honum
þótt það fallegra þannig,“ sagði Inga.
-JBj
iAEim hCAAD Kl I 1/AllDin Dll
RS MANNS HUGUUFI
Já, Peugeot 309 er Ijúfur bíll sem sameinar nútfmatœkni
við einstaklega skemmtilega og góða hönnun.
Fjöðrun og aksturseiginleikar í Peugeot gœðaflokki
sem gerir 309 sérlega hentugan fyrir íslenskar
aðstœður. Þessi rúmgóði og lipri fjölskyldubíll hefur
sannað kosti sína í umferðinni.
Peugeot 309, verð frá 476.200,»
Bilar til afgreiðslu sfrax.
65 til 130 ha. vélar
5 gíra eða sjálfskiptur
• Framhjóladrif
• 309 er rúmgóður
fjölskyldubfll
• Sérlega skemmtilega
hannaður
• Einstök fjöðrun og
aksturseiginleikar
• Eyðslugrannur
• Vönduð innrétting
Ýmis aukabúnaður fáan-
legur, s.s.:
• Allœsing (central lock)
• Aflstýri
• Upphituð sœti
• Rafmagnsrúðu-
upphalarar
• og margt margt fleira
Alft niður í 26%
óifeolgun og
efgctngírtn riiá
greiðo é qllf eð
2V5t árt
Komið, roynslu
ciKið og kynnist
Peiigeof
öPÍ© VIRKA DÁGA
KL. 9» 6
LAUGARDAGA
KL. 1 —5
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 Sími 42600