Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRlL 1988.
Sandkom
Allir á lyfjum
Efmarkamá
orð fjártnála-
ráöherra sitja
læknaráAlmr-
eyridaginnút
ogdaginninn
viðaðskriía
lyfseðiaogætla
mættiaðallir
Akureyringar
gangiumgö-
tumarbryöj-
andilyfí
sæiuvímu. En
þeir sem vita betur vita að sjálfsögðu
betur. Akureyringp* eru ekki frekar
í vímu vegna lyfjaáts en kjósendur í
kjördæmi Jóns Baldvins nema síöur
sé. Læknar á Akureyri halda vonandi
áfram að skrifa lyfseðla fyrir sjúk
gamalmenni eins og þeir hafa gert
hingað tU þrátt fyrir hótanirráð-
herrans um rannsókn erlendra
sérfræöinga á störfum þeirra. En
væri ekki upplagt fyrir ráðherrann
að láta þessa sérfræðinga sína koma
við í höfuðborginni og lita á ástandið
þar. í Reykjavík getur gamalt fólk
ekki lengur gengið um götumar af
ótta við árásir eiturlyfjaneytenda
sem eru í peningaleit eða hreinlega
að fa útrás fyrir hvatir sinar. Úti á
landsbyggðinni er hlegið eina ferðina
enn að fjármálaráðherra, enda vita
þeir sem þar búa að mannlífið þar
er heilbrigðara en í Reykj avík hvað
sem líður lyfjagjöfutn til sjúkra og
aldraðra.
Dýrarfram-
kvæmdir
Breytingará
hlutaannarrar
hæðarbæjar-
skrifstofunnar
áAkureyri
reyndust
kostnaðarsam-
ari en reiknað
hafðiverið
með, Innrétt-
ingum var
breytt, skipt
umofnaograf-
lagnirend-
urnýjaðar og svo var teppalagt. Iætta
kostaði víst hátt i 4 milljónirkróna.
Hönnunin ein kostaði um eina milij-
ón króna og akyldi víst engan undra
aö bæjarstjórinn skuli hafa beðið um
nánariskýringar.
„Bein" útsending
Beinarútsend-
ingarísjón-
varpiaf
iþróttaviðburð-
umeruákaf-
legavinsælt
efniogtalsvert
hefurveriðum
slikarútsend-
ingarað
undanfórnu.
Stöð2hefiu-
gengiðvask-
legaframíað
sýna stórleiki í handknattleik beint
(svo dæmi séu nefnd af þeim bænum)
og á dögunum ætlaði Ríkissjónvarpið
að sýna beint úrslitaleik bikarkeppni
karla í blaki. Útsendingin hófst en
þegar spennan var aö ná hámarki var
tilkynnt að hlé yrði gert á útsending-
unni og tekið til viö „beina“ útsend-
ingu klukkustund síðar. Þetta era
frumleg vinn ubrögö og önnur en við-
höfö eru þcgar ensk knattspyma er
í beinni útsendingu, enda sennilegt
að súíþrótt höiöi meiratil sumra en
blak.
Ekkertöðruvísi
Eittþeirra
ráöa.sem
reyndhafave-
riðtiiaðselja
bændablaöiö
Tímann.erað
flennauppá
forsíöublaðs-
insfyrirsagnir
yfirallasíðuna
semeigaaö
„selja“. Ein slik
birtistþará
dögunum og hljóðaöi svona: „Rífur
kjaft á leiöinni út“. í tilvísunarfrétt á
forsíðu var fullyrt aö Ingvi Hrafn
fréttastjóri væri á leiðinni frá sjón-
varpinu og ætlaöi að yfirgefa stofn-
unina rífandl kjalt á leiðinni út Það
vantar ekki ferskleikann á forsiöuna
þótt minna fari fyrir honum þegar
blaðinuerflett.
Umsjón GyHI Kristjánsson
Fréttir
Metaðsókn um páskana á skíðasvæðunum:
Nær tíu þúsund komu
á einum degi í Bláfjöll
- einnig metaðsókn á skíðasvæði Austfirðinga
Mikil blíða var á skíðasvæðunum
í Bláfjöllum á fóstudaginn langa og
komu þangað 9-10 þúsund manns
þann dag. Muna menn ekki eftir öðr-
um eins fjölda skíðagesta.
Vegna þessarar miklu aðsóknar
myndaðist mikið bifreiðaöngþveiti á
leiðinni frá höfuðborgarsvæðinu til
Bláíjalla og hélst það ástand frá
klukkan 13 til 18 á fóstudaginn.
Á laugardag og páskadag var leið-
inlegra veður og minni aðsókn.
Veður var það leiðinlegt á laugardag
að loka varð skíðasvæðunum klukk-
an 16.
Aðsókn á skíðasvæði KR-inga í
Skálafelli var ekki nema rétt í meðal-
lagi enda var veður öllu leiðinlegra
þar en í Bláfjöllum.
Austfirðingar voru heppnir með
veður um páskahelgina, sérstaklega
voru laugardagur og páskadagur
góðir hjá þeim. Metaðsókn var í
Oddsskarði, skíðasvæðinu við Nes-
kaupstað, og komst fjöldinn líklega
yfir 1000 manns á páskadag. Aust-
firðingar notuðu tækifærið og voru
með Austurlandsmeistaramót í svigi
og stórsvigi og hefur það eflaust haft
áhrif á aðsóknina.
Nægur snjór er á öllum þessum
stöðum og því útlit fyrir að skíðastað-
irnir verði opnir noldíum tíma enn.
-ÍS
Aðsóknar-
met tvíbætt
í Hlíðaifjalli
páska-
dagana
- 3500 gestir á laugardag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Mikill fjöldi skíðafólks sótti skíða-
brekkurnar í Hlíðarfjalli við Akur-
eyri heim um páskana og fyrra
aösóknarmet þar á einum degi var
tvíbætt.
Á fóstudaginn langa komu rúmlega
3000 manns í Hlíðarfjall en mesti
fjöldi sem hafði komið þangað á skíði
á einum degi áður var um 2000
manns. Á laugardag voru síðan enn
fleiri á ferðinni í glampandi sól og
blíðviðri og þá er talið að rúmlega
3500 manns hafi komið í Hliðaríjall.
Helmingur skíðagesta
aðkomufólk
Mikill hluti þessara skíðamanna
var aðkomufólk og taldi ívar Sig-
mundsson, forstöðumaður í Hlíðar-
fjalli, að a.m.k. um helmingur
skíöagesta þessa tvo daga heíði veriö
aökomufólk.
Engin óhöpp urðu í Hlíðarfjalli
þrátt fyrir þessa miklu aðsókn. Veö-
urguðirnir voru einnig mjög hlið-
•hollir skíðamönnum, blíðuveöur og
skíðafæri hiö ákjósanlegasta alla
dagana nema á páskadag en þá var
skafrenningur í Hlíðarfjalli og fátt
fólk á ferli þar.
Langar biðraðir voru við lyfturnar i Hiíðarfjalli enda aðsóknarmetiö slegið tvivegis um bænadagana.
DV-mynd GK, Akureyri
Svínabú á Kjalamesi sett
í einangmn vegna pestar
Svínabú á Kjalarnesi hefur verið
sett í einangrun vegna svínapestar.
Brynjólfur Sandholt dýralæknir
sagði DV að ekki væri kominn end-
anlegur úrskuröur um veikina en
mjög líklega væri þó um svínapest
að ræða.
Svínapest er veirusjúkdómur sem
leggst á svín og getur verið smitandi
og því hefði umrætt svínabú verið
sett í einangrun. Brynjólfur vildi
ekki segja til um hvaða svínabú á
Kjalarnesi væri um að ræða.
Að sögn Brynjólfs stafar mönnum
ekki hætta af svínapest, sem leggst
þungt á svín, og væri mönnum engin
hætta búin af neyslu kjöts sýktra
dýra. Umrætt svínabú var sett í ein-
angrun á miðvikudaginn fyrir páska
og nánast öruggt væri að ekkert sýkt
kjöt hefði komist á markaö.
Svínapest var vandamál á árunum
eftir stríð og er talið að hún hafi bor-
ist hingað til lands með kjöti sem
varnarliðsmenn fluttu inn hér á ár-
unum 1942-43. Ekki hefur orðið vart
þessarar veiki frá árinu 1950 fyrr en
nú, sagði Brynjólfur Sandholt.
Jeppi féll í sprangu á Langjökli:
Fóru út á stórhættulegt
sprungusvæði á jöklinum
- bjorgunarsveitarmenn vilja takmarka umferð um jöklana
„Það er Ijóst að jöklamir eru not-
aðir meira og minna sem þjóðbraut
og ef menn hafa ekki vara á sér þá
getur farið illa, Almennt eru þeir
menn vel búnir sem fara í ferðir sem
þessar en innan um eru auðvitað
menn sem ekki eiga að vera þama,“
sagði Þór Magnússon hjá Björgunar-
sveitinni Hjálpinni á Akranesi um
síaukin feröalög manna á jöklum
landsins.
Hjálparsveitarmenn á Vesturlandi
vom í viðbragðsstöðu yfir páskana
vegna ferðalaga manna inni á fjöllum
og á föstudaginn langa var búið aö
ræsa út menn frá Björgunarsveitinni
Oki í Borgamesi vegna jeppabíls
sem fallið hafði í spmngu á Lang-
jökli.
Þorvaldur Jónsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Oks, tók und-
ir orð Þórs og sagði að sívaxandi
umferð jeppamanna á jöklum lands-
ins væri áhyggjuefni.
Tveir vom í jeppanum sem féll nið-
ur í spmnguna en þeim tókst báðum
að komast út. Það var víst eins gott
því sprungan var hyldjúp. Jeppinn
var úr hópi þriggja jeppa sem lagt
höföu á jökuhnn. Höföu ferðalan-
gamir greinilega villst þvi þeir vom
komnir inn á stórhættulegt sprungu-
svæði upp af Flosaskarði á miili
Eiríksjökuls og Langjökuls. Þeim til
aðstoðar komu fjórir jeppar úr hópi
sem haldiö hafði til á Hveravöllum.
Tókst að ná bílnum upp en Björgun-
arsveitarmenn úr Borgamesi vom
komnir upp í Húsafell með mikinn
útbúnað, þar á meðal fimm snjóbíla
með búnað til að brúa spmngur og
ná bflnum upp.
-SMJ
*