Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRlL 1988.
19
Fréttir
Aðkomufólk í Fiskverkun Sigurðar Ágústssonar Rifi. Væntanlegar eru tvær
dömur frá Portúgal til viðbótar. DV-myndir Ægir Þórðarson
Mikið um
aðkomufólk
á Hellis-
sandi og RHi
Steön Þór Sigurösson, DV, Hellissandi:
Þrátt fyrir lélegar gæftir á netaver-
tíðinni fram til þessa er mikið um
aðkomufólk á vertíð hér á Hellis-
sandi og Rifi. M.a. er hér fjöldi
stúlkna frá Ástralíu og þessir herra-
menn, sem hér eru, bíða þess að þeim
til aðstoðar komi stúlkur frá Portúg-
al. Það má segja að mannlífið sé
fjölskrúðugt hér um þessar mundir
og óstaðfestar fregnir herma aö auk
ensk-íslenskra/íslensk-enskra orða-
bóka séu menn famir að leita sér að
portúgölskum orðabókum. Vantar
þá fátt annað en fiskinn, sem kunn-
ugir segja að komi strax eftir páska.
Mikil fjölgun
farþega
um Homa-
fjarðar-
flugvöll
Júiía Imsland, DV, Höfir
Mikil aukning varð í farþegaflutn-
ingum hjá Flugleiðum og Flugfélagi
Austurlands um Hornafjarðarflug-
völl í janúar og febrúar sl. og var
tala farþega 217 fleiri en á sama tíma
í fyrra. Mikið er um að fólk kaupi
helgarpakka til Reykjavíkur og inni-
heldur pakkinn flugfar og gistingu á
hóteh í tvær nætur ásamt morgun-
verði. Pakkinn kostar fyrir tvo 8.157
krónur en ef hjón bregða sér í bæinn
án helgarpakka kostar farið fyrir þau
12.820 krónur með fjölskylduafslætti.
Nú bíða Homfirðingar þess hvað
gert verði í flugbrautarmálum vall-
arins en samkvæmt gerðri áætlun
átti að leggja braut norðaustur/
suðvestur. Vignir Þorbjömsson
umdæmisstjóri sagði að sú braut
mundi gjörbreyta aðstöðu gagnvart
flugi til Hafnar því að mikið væri um
tafir og lokun vallarsins vegna óhag-
stæöra vindátta á þá einu braut sem
er.
■—11 him' 1 irnmi
NÝTTVÖRULOFT
NÝJAR HUGMYNDIR
NÝ LEIÐ TIL SPARNAÐAR
Valdar eru
3-6
tölur frá
0-36
Rúllettunni
snúið
Ef tala, sem
var valin,
kemur upp
þá er
Tilvalið til
fermingar-
gjafa.
Fatnaður!
Sjónvörp!
Video!
Hljómtæki!
Orbylgju-
ofnar,
húsbúnaður
og margt
fleira.
99% afsláttur af öllum þeim vörum
sem ákveðið var að kaupa, hvort sem
það er sjónvarp, sófasett eða peysa.
Reynið rúllettuna
Auðvelt að vinna - ekki hægt að tapa
Rúlletta frá Las Vegas
Vöruloftið.
Skipholti 33