Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRlL 1988.
35
________________________________________________________________Lífcstm
Viðhorf fólks til billjards hefur breyst mikið
Til skamms tíma var heldur litiö
niður á billjardáhugamenn. Billj-
ard, sem heitir raunar ballskák eöa
knattborðsleikur á íslensku, var af
mörgum talinn afþreying iðjuleys-
ingja og letingja. Enda var það svo
hér á landi að lítið var lagt upp úr
að hafa billjardstofur snotrar og
vistlegar og töluverður drykkju-
skapur fylgdi oft iðkuninni.
Ýmsir þeir, sem nú eru komnir á
miðjan aldur, minnast þess er þeir
voru að byija að neyta áfengis og
vildu ekki láta foreldrana vita af
því, en skorti húsnæði til þess að
stunda sumblið, að þeir fóru oft á
Tíðarandi
„billann" og tóku með sér leka í
poka. Þá var það heldur ekki til
siðs að unglingar kæmu saman í
miðbænum til að kneyfa áfengi.
Vinsælasta sjónvarpsefnið
Nú hefur álit manna á ballskák
breyst. Þetta er að verða viður-
kennd keppnisíþrótt, virðuleg og
fín í þokkabót. Billjardstofur eru
aö verða vistlegar og snyrtiiegar í
aUa staði, í sumum tilfeUum er .um
hreinan munað að ræöa. Áfengi
hefur víðast hvar verið útilokað frá
biUjardstofunum og þeir sem
keppa, dómarar og keppnisstjórar
eru prúðbúnir og virðulegir með
afbrigðum.
Nú er farið að sýna bUljardmót í
beinum útsendingum í sjónvarpi
hér á landi, en víða erlendis hefur
baUskák verið með vinsælasta
sjónvarpsefninu um árabU. í Bret-
landi til dæmis, er billjard langvin-
sælasta sjónvarpsefnið. Árið 1985
voru útsendingartímar BBC á bUlj-
ard 150 fleiri en á knattspyrnu og
tahð var að um 18 miUjónir manna
hafi fylgst með úrslitaleiknum á
heimsmeistaramótinu í snóker sem
sent var út beint.
Nákvæmni, útsjónarsemi og
hugarró
Þannig hefur álit manna á þessu
skemmtilega tómstundagamni
breyst til muna á síðustu árum.
Enda geta þeir vitnað um það, sem
eitthvað hafa reynt sig í íþróttinni,
að billjard útheimtir mikla ná-
kvæmni, útreikninga, útsjónar-
semi og hugarró og því út í hött að
tengja leikinn við drykkjuskap og
óreglu.
Billjardborð hafa verið ákaflega
dýr og háir tollar á þeim. Þess
vegna hafa fáir einkaaðilar átt þess
kost að eignast slika gripi og hafa
á heimih sínu. Auk þess eru borðin
stór, þung og fyrirferðarmikil og
útheimta mikið pláss.
Helmingslækkun á billjard-
borðum
Nú eru hins vegar komin á mark-
aðinn tUtölulega lítil, létt og þægi-
leg borð, sem auðveldlega má setja
upp eða leggja til hUðar eftir því
hvort verið er að nota þau eöa ekki.
Þá lækkuðu tollar á borðunum
stórlega viö síðustu tollabreytingar
og allt að helmingslækkun varð því
á útsöluverði þeirra. Þetta hefur
orðið til þess að æ algengara er
orðið aö sjá billjardborð í heima-
húsum. Þau eru kannski ekki alveg
eins góð og keppnisborðin en þaö
má svo sannarlega vel notast við
þau.
BaUskák er íþrótt sem öll fjöl-
skyldan getur lagt stund á og haft
gaman af. Sérstaklega núna eftir að
biUjardstofur eru orðnar vistlegar
stofnanir, að ekki sé talað um að
hægt er að kaupa borð og setja þau
upp í stofunni heima þegar ein-
hvem langar tU að taka leik.
-ATA
Allt að 18 mánaða VOLVO- kjör
NOTAÐIR BlLAR
Volvo 340 GL, árg. 1987, 82 hö, 5
gira, 4ra dyra, ekinn 7.000 km,
beige/metallic, rafm. í rúöum. Verö
625.000.
Volvo 245 GL árg. 1983, ekinn
59.000 km, blár/metallic, sjállsk.,
vökvast., eins og nýr. Verö 560.000.
Volvo 740 GL árg. 1985, 112 hö,
sjálfsk., m/OD, 4ra dyra, ekinn
26.000 km, silfur/metallic. Verö
785.000, toppeintak. Ath. skipti á
ódýrari.
Suzuki Swift árg. 1986, ekinn 20.000
km, rauður, sjálfsk., sumar- og vetr-
ardekk. Verö 330.000. Ath. skulda-
bréf.
VOLVOSALURINN SKEIFUNNI 15 SÍMI 691600
Volvo 740 GLE árg. 1986, ekinn
12.000 km, silfur/metallic, beinsk.,
5 gira, vökvastýri, centrallæsingar,
rafdrifnar rúður og speglar, plussá-
klæöi, topplúga, læst drif o.m.fl.
Verö 1.150.000. Ath. skipti á ódýrari.
Volvo 340 GL, árg. 1986, 82 hö, 5
gira, 5 dyra, ekinn 33.000 km, Ijós-
blár. Verö 525.000.
Volvo 740 GL árg. 1987, 117 hö,
sjálfsk., m/OD, 4ra dyra, ekinn
16.000 km, steingrár. Verð
1.000.000. Ath. skipti á ódýrari.
Volvo 240 GL árg. 1984, 112 hö,
sjálfsk., m/OD, 4ra dyra, blár/
metalllc, plussáklæöi, centrallæs-
ingar. Verö 560.000. Ath. skipti á
ódýrari.
Volvo 245 GL árg. 1987, 116 hö,
sjálfsk., m/OD, 5 dyra, ekinn 19.000
km, blár/metallic. Verö 990.000.
Ath. skipti á ódýrari.
<••• ■■■■
Audi 100 cc, árg. 1984, 5 gira, 4ra
dyra, ekinn 96.000 km, hvitur. Verö
650.000, toppeintak. Ath. skipti.
Opið alla daga frá kl. 9.00 til 18.00.
Laugardaga frá kl. 10.00 til 16.00.