Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Side 42
'42
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRIL 1988.
Jarðarfarir Merming
Sigríður Ósk Einarsdóttir lést 24.
mars sl. Hún var fædd í Reykjavík
3. júlí 1914. Hún giftist Jóni H.
Bjamasyni en hann lést árið 1980.
Þeim hjónum varð fimm barna auð-
ið. Útfor Sigríðar verður gerð frá
Háteigskirkju í dag kl. 13.30.
Ásgeir Valur Einarsson veggfóörara-
meistari, Langholtsvegi 143, veröur
jarðsungin frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 5. apríl kl. 15.
Ásgeir Sigurðsson, Grundargötu 6,
ísaflrði, lést 26. mars. Útför hans fer
fram á ísafirði miðvikudaginn 6.
apríl.
Jóhanna Þ. Einarsdóttir frá Rúfeyj-
um verður jarðsett frá Hallgríms-
kirkju miðvikudaginn 6. apríl kl.
13.30. Jarðsett verður í Fossvogs-
kirkjugarði.
Hilmar Norðfjörð verður jarösung-
inn frá Dómkirkjunni miðvikudag-
inn 6. apríl kl. 15.
Hafsteinn Jónsson, áöur til heimilis
að Snæfellsási 9, Helhssandi, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 6. apríl kl. 15.
Þorbjöm Sigurgeirsson prófessor,
Digranesvegi 113, Kópavogi, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 6. apríl kl. 10.30.
Andlát
fást í símum 12829 og 673265.
„Merkilegasta saga
allra tíma“
Upprisan, páskaóratória eftir Þorkel Sigurbjömsson í Hallgrimskirkju
Laugardaginn fyrir páska var
boðað til stórviðburðar í HaU-
grímskirkju. Þar átti aö flytja nýja
páskaóratóríu, Upprisuna eftir
Þorkel Sigurbjömsson. Það var
Mótettukór kirkjunnar sem sá um
þennan flutning ásamt nokkrum
hljóðfæraleikurum, en stjórnandi
var Hörður Áskelsson kantor.
Kórinn er ljómandi góður og
Hörður er hörkustjómandi ,á sínu
sviði. Upphaf óratóríunnar og end-
ir vom best. Þar var 1000 ára gömul
Tónlist
Leifur Þórarinson
páskasekvensían í nýjum búningi
og það er alveg sama hvaö mönnum
dettur í hug aö fjasa um þetta
merkilega lag, það lifir. En það sem
var á miUi, söngur og þó sérstak-
lega tal „deklamasjón“, var mis-
heppnað og næstum álappalegt.
Margþæfður „minimalismi“ er
löngu orðinn óþolandi í höndum
gömlu drengjanna, Philips Glass
og Steve Reichs, og hann er heldur
ekkert áhugaverður þó Þorkell fari
um hann sínum músíkölsku hönd-
um. Þið fyrirgefið hvað maður er
svekktur á þessu en þama var tæpt
á „merkUegustu sögu aUra tírna"
og útkoman var núU.
En það er samt þakkarvert fram-
tak hjá Listvinafélagi HaUgríms-
kirkju að örva Ustamenn og
tónskáld tU trúarverka. Þessa óra-
tóríu mætti áreiðanlega taka upp
fyrir sjónvarp með góðum árangri.
En þá þyrfti góðan leikstjóra eins
og fyrri daginn og þar sem hér er
staddur á vegum Þjóðleikhússins
merkUegur ítaU, mætti hugsanlega
bregða strax á leik. Þessi leikstjóri
mun vera spesíaUsti í Commedia
dell’arte!
LÞ
Sigurður A. og lúðrasveit
Það var á skírdag sem Sigurður
A. varð sextugur. Mitt í afmæUs-
fagnaðinum, eftir að Þrándur
afhenti tölvuna og Ragnar sagði
gamansöguna, já, reyndar í miðri
þakkarræðu afmæUsbamsins, brá
ég mér stundarkom á tónleika í
Fríkirkjunni.
Þar vom samankomnir margir
bestu blikkblásarar landsins, t.d.
Ásgeir Steingrímsson og Láms
Sveinsson trompettleikari, Oddur
Bjöms og Bjöm R. á básúnur, Joe
Ognibene og Emil á hom og margir
Ueiri. Og þessir yndislegu lúðra-
þeytarar, ásamt einum eða tveim
slagverksmönnum, komu öUum
viðstöddum í stórhátíðarskap hafi
þeir þá ekki verið í því fyrir. Þarna
mátti heyra kansónu eftir GabrieU,
Motettur efdr Brahms, Sorgarmars
eftir Grieg og gleðimúsík eftur
Dukas o.U. Fátt hljómar fegurra en
velblásið bUkk og ég var að hugsa
um á leiðinni í partíið aftur að mik-
ið er sú þjóð efnuð sem hefur svona
Uð á sínum snæmm. Og ekki er
hún á Uæðiskeri með hann Sigurð
A. Magnússon í bakhöndinni. Ég
rétt náði að hrista á honum kruml-
una og kyssa hann á vangann, en
mikið hlakka ég til að sjá hvaö
kemur úr tölvunni á sjötugsaldrin-
um.
LÞ
Antonía K. Einarsdóttir, Hafnarnesi,
Fáskrúðsfirði, andaðist á EUiheimU-
inu Grund aðfaranótt 30. mars.
Lára Loftsdóttir, Austurbyggð 6,
Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri að morgni þriðju-
dagsins 29. mars.
Halldór Einarsson, Vesturvegi 13,
Þórshöfn, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu Akureyri 29. mars.
Helgi Kristinn Gíslason, Skúlagötu
64, lést í öldrunardeild Landspítal-
ans, Hátúni lOb, að kvöldi föstudags-
ins langa.
Gestur Magnússon cand. mag.,
Drápuhhð 41, lést í Landakotsspítala
á sldrdag, 31. mars.
Tilkyimingar
Trúnaðarbréf afhent
Hinn 22. mars 1988 afhenti Benedikt
Gröndal sendiherra, Akihito krónprins
Japans, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Japan með aðsetri í Reykjavík.
Minningarkort Sambands
dýraverndunarfélaga íslands
Gránufjélagið - leikhús
er um þessar mundir að sýna sjónleikinn
„Endatafl" eftir nóbelsskáldið Samuel
Beckett. Þýðinguna hefur Árni Ibsen gert
og leikstjóri er Kári Halidór Þórsson.
„Endatafl" er sýnt í leikhúsi Gránufjé-
lagsins að Laugavegi 32 og verður næsta
sýning í kvöld, 5. apríl, kl. 21. Aðgöngu-
miða er hægt að panta allan sólarhring-
inn í síma 14200. Leikarar í „Endatafli"
eru fjórir, þau Rósa Guðný Þórsdóttir,
Barði Guðmundson, Hjálmar Hjálmars-
son og Kári Halldór Þórsson.
Almanakshappdrætti Lands-
samtakanna Þroskahjálpar
Vinningurinn í mars kom á nr. 19931,
áður útdregin númer: janúar 23423 og
febrúar 11677.
Námskeið
Samnorrænt námskeið fyrir
aldraða
Lýðháskólinn í Sund í Þrændalögum
býður upp á samnorræna sumardvöl
dagana 1.-14. ágúst í sumar. Ferðin verð-
ur skipulögð á vegiun starfs aldraðra í
Hallgrímskirkju í Reykjavík. Brottfór er
áformuð 27. júli, en heimkoma 16.-18.
ágúst. Dagamir fyrir og eftir námskeiðið
verða nýttir til dvalar í Osló og/ eða skoð-
unarferða eftir þvi sem unnt er. Flug og
dvalarkostnaður í Sund verður samkv.
síðustu upplýsingum rúmlega 37 þúsund
krónur og eru þá innifaldar allar kynnis-
ferðir frá skólanum. Við þetta bætist svo
ferðakostnaður milli Osló og Þrándheims
ásamt gistingu í Osló. Allt að 25 geta kom-
ist með í þessa ferð. Innritun þarf að
gerast sem allra fyrst og ljúka fyrir
páska. Hana annast Dómhildur Jóns-
dóttir í Hallgrímskirkju, og veitir hún
allar nánari upplýsingar.
Tónleikar
Tónleikar á Kjarvalsstöðum
í kvöld kl. 20.30 verða tónleikar með tón-
list Atla Heimis Sveinssonar á Kjarvals-
stöðum. Tilefni þessara tónleika er
ekkert sérstakt nema ef vera skyldi að
gefa tónlistarunnendum nokkra mynd
af fjölbreyttum ferli Atla og bregða
nokkru ljósi á kammerverk hans sl. tíu
ár. Á tónleikunum verða eingöngu flutt
verk eftir Atla Heimi.
Skákmótið í Okham:
íslensku
skákmönn-
unum hefur
gengið illa
íslensku skákmönnunum, þeim
Jóni L. Ámasyni, Þresti Þórhallssyni
og Hannesi Hlífari Stefánssyni hefur
gengið heldur illa á opna alþjóðlega
skákmótinu í Okham í Englandi sem
staðið hefur yfir um páskahelgina.
Eftir 8 umferðir af 9 vpru þeir Jón
L. og Þröstur í hópi 11 skákmanna
með 4,5 vinninga en Hannes var enn
aftar með 3,0 vinninga. Síðasta um-
ferð mótsins verður tefld í dag og
fyrir hana er lítt þekktur Englend-
ingur, Howell að nafni, í efsta sæti
með 7,0 vinninga. -S.dór
Til hamingju
Kammertónleikar í Bústaðakirkju
Alltaf færir Kammermúsík-
klúbburinn manni eitthvað fallegt
og gott. Þriðju tónleikar hans á
starfsárinu voru í Bústaðakirkju
sl. miðvikudag og komu þar fram
fjórir öndvegis músíkantar: Guðný
Guðmundsdóttir, Einar Jóhannes-
son, Gunnar Kvaran og amerísk
stúlka, Delana Thomsen, sem lék
listavel á píanó.
Efnisskráin var eftir Mozart,
Schumann og Brahms og hófst á
„Kegelstatt-tríóinu", fyrir klarín-
ettu, víólu og píanó. Einar bregst
aldrei í Mozart, hann hefur akk-
úrat þennan melankólíska húmor
sem til þarf. Og píanistinn svaraði
þessu einmitt mjög fallega. Hins
vegar var eins og Guðný væri ekki
alveg búin að ná tökunum á víól-
unni, það vantaði eins og herslu-
muninn í leik hennar. En hún bætti
sannarlega fyrir það í Márchen-
bilder, íjórum lögum fyrir víólu og
píanó eftir Schumann. Leikur
hennar var í senn innilegur og
skarpur og þær Delana náðu fram
óvenju elskulegum tilþrifum.
. Lokaverkið, Tríó op. 114 í a moll,
fyrir klarínettu, selló og píanó, eftir
Jóhannes Brahms, var þá engin
lágkúra. Gunnar Kvaran hóf upp
sellóið með miklum og músíkölsk-
um myndarbrag og síöan gekk allt
upp í einlægri kammermúsíser-
ingu eins og hún gerist best nú á
dögum. Til hamingju.
LÞ
Kvikmyndir
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Ingólfs Theodórssonar
netagerðarmeistara, Höföavegi 16, Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
SigriAur Siguröardóttir
bðrn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Laugarásbíó/Hrópað á frelsi
ÁhrHamikil skilaboð
Cry Freedom
FramlelðandhDavid Attenborough
Lelkstjórl: David Attenborough
Aðalhlutverk: Kevin Kline, Penelope
Wilton, Denzel Washington
Alls staðar í heiminum, hvert
sem htið er, eru mannréttindi brot-
in. Slíkir hlutir virðast fjarlægir og
fréttir af slíku vekja alltof sjaldan
næga athygli.
Suður-Áfríka er eitt þeirra ríkja
þar sem mannréttindi eru fótum
troðin og andstæðingar stjómar-
innar beittir miskunnarlausu
harðræði. Um það íjallar myndin
Hrópað á frelsi, nánar til tekið um
baráttumál andófsmannsins Ste-
ven Biko.
Handrit myndarinnar er eftir
bókum Donalds Woods, ritstjóra
nokkurs sem kynntist Biko náið.
Woods er einn hinna frjálslyndu
Suður-Afríkubúa og ritstjóri virts
dagblaðs. Hann kemst í kynni við
Biko og verður meira og meira var
við baráttuaðferðir stjórnvalda
sem em heldur ógeðfelldar.
Þegar sagan hefst er Biko í banni
þannig aö hann má ekki vera á ferli
utan tiltekins svæðis og má ekki
hitta fleiri en einn mann í einu.
Biko fer hins vegar viðar og er
óhræddur að boða jafnrétti og af-
nám kynþáttaaðskilnaðarstefn-
unnar. Stjórnvöld reyna að halda
honum í heljargreipum með þvi að
gera húsleit og fylgjast sífellt með
honum en allt kemur fyrir ekki,
hann gefst ekki upp.
Biko er loks gripinn utan síns
svæðis og settur í fangelsi. Þar deyr
hann vegna harsmíða en stjómvöld
segja hann hafa verið í „hungur-
verkfalli".
Að Biko látnum hyggst Woods
beita sér enn frekar gegn stefnu
stjórnvalda en þá er ofsóknum snú-
ið að honum og fjölskyldu hans.
Honum er bannað að fara í fyrirles-
traferð um Bandaríkin og lýstur í
bann. Þá ákveöur Woods aö skrifa
bók um ástandið og flýja land
ásamt íjölskyldu sinni.
Myndin er vel gerð og feikilega
áhrifamikil. Að visu segir hún sög-
una aöeins frá einu sjónarhorni en
vekur athygli á því sem þama er
að gerast. Leikararnir standa sig
allir vel og eiga sinn þátt í því að
myndin er jafnspennandi og eftir-
minnileg og raun ber vitni. Þetta
er mynd sem fólk ætti ekki að láta
fram hjá sér fara.
JFJ