Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Page 45
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
45
Sviðsljós
Robert Redford:
Leikstýrir annarri mynd sinni
í Bandaríkjunum var markaðssett
fyrir skömmu kvikmynd sem er önn-
ur mynd Roberts Redford sem leik-
stjóra. Hann leikstýrði áður
myndinni Ordinary People og þótti
takast ótrúlega vel upp í frumraun
sinni. Myndin sú fékk Óskar sem
besta mynd og einnig fyrir bestu leik-
stjóm.
Sú mynd sem nú kemur á markað
heitir Beanfield War. Hún er þjóð-
félagsádeilfi og fjallar um spánska
íbúa í þorpi í Nýju-Mexíkó sem reyna
að veita auökýfingi, sem ásælist iand
þeirra, mótstöðu.
Robert Redford leikur ekki sjálfur
í myndinni. „Ég er ekki rétta mann-
gerðin í þau hlutverk sem þar
bjóðast, það er búið að afmarka
mann í ákveðin hlutverk sem maður
kemst ekki úr, því miður,“ segir
hann. Sonia Braga leikur aðalhlut-
verkið í myndinni en hún hóf
kvikmyndaferil sinn í Brasilíu. Aðrir
leikarar eru minna þekktir.
Robert Redford segist vonast til
þess að myndin endurspegh þau
vandamál sem spænskumælandi Robert Redford er nú að senda frá sér aðra mynd sina sem leikstjóri en
fólk í Bandaríkjunum á við að etja. fyrsta mynd hans var Ordinary People.
Kapparnir kunnu, Sigurður Dementz og Guðjón Pálsson, hlutu mikið lof
áheyrenda. DV-mynd Július Guðni
Týróla-
kvöld í
Staðarskála
Júlws G. Antonssan, DV, V-HiinavaýBhí:
Þaö er ekki á hverjum degi sem
efnt er til manníagnaðar án nokk-
urs tilefhis. Það skeði þó í Staðar-
skála eitt laugardagskvöld í
mánuöinum aö ítalskt kvöld var
þar, svokallað Týróla-kvöld. Boðið
var upp á mat að hætti Týróla, tón-
listarskemmtiatriði og dansað var
viö undirleik hljómsveitar Grettis
Bjömssonar. Stjómandi Tyróla-
kvöldsins var hinn þekkti ópem-
söngvari Sigurður Dements. í
Staðarskála var hvert sæti skipaö
og þótti kvöldiö takast með ágaet-
um.
Tísku-
línaní
sumar?
Þær Stefanía og Karólína
hafa undanfarin ár verið
framariega í hópi þeirra
sem móta tískulínur og yfir-
leitt veriö ófeimnar við að
reyna eitthvað nýtt.
Stefanía hefur reyndar
starfað sem fyrirsæta enda
bráölagleg og meö línumar
í lagi. Hún mætti fyrir
skömmu á alþjóðlega sýn-
ingu í heimalandi sinu,
íklædd herrafötum og með
„Borsalinohatt" áhöfði, og
hver veit nema þannig
klæðnaður eigi eftir aö
verða vinsæll í sumar?
Stefania Mónakóprlnsessa tekur slg bara vel út í herrafötum og með
„Borsalinohatt" á höfði. Simamynd Reuter
Tónleikar
með verkum
eftir
Atla Heimi Sveinsson
á Kjarvalsstöðum
í kvöld
kl. 20.30.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja i Keflavík er staða
aðstoðarskólameistara laus til umsóknar. Staðan
verður veitt frá 1. ágúst næstkomandi og er um eins
árs ráðningu að ræða.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er laus
staða íþróttakennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 16. apríl.
Menntamálaráðuneytið
AÐAL
FUNDUR
Aðalfundur Útvegsbanka íslands hf. árið ,
1988 verður haldinn í Súlnasal Hótel
Sögu við Hagatorg í Reykjavík, þriðju-
daginn 12. apríl 1988. Fundurinn hefst
kl. 16:30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 28. greinar samþykkta
bankans.
2. Önnur mál löglega upp borin á fund-
inum.
Aðgöngumiðar að fundinum og at-
kvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum
eða umboðsmönnum þeirra í aðalbanka,
Austurstræti 19, 3. hæð, dagana 7., 8. og
11. apríl næstkomandi og á fundardag við
innganginn.
✓
Arsreikningur bankans fyrir árið 1987,
dagskrá fundarins og tillögur þær sem
fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til
sýnis á framangreindum stað í aðalbanka
frá 5. apríl næstkomandi.
Útvegsbanki íslands hf
Bankaráð