Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Síða 48
HJón hætt komin í húsbmna á
Húsið alelda
vétt eftir að
fólkið slapp út
Fatlaður maður og eiginkona í húsinu og hitinn ógurlegur. Emil- grannarnir.
hans háðu harða baráttu við að ía treysti sér ekki til að fara á eftir Foreldrar HaUgríms bjuggu i
komast út úr brennandi húsi sínu Hallgríminiðurstigann. Þessístaö hinni íbúöinni. Móðir hans var
á Borgarfirði eystra aðfaranótt fór hún í herbergi á efri hæðinni fluttásjúkrahúsdaginnfyrirbrun-
fóstudagsins langa. Húsið, sem er og tókst eftir mikil átok aö brjóta ann. Faöir hans vaknaði viö bíl-
áttatíu ára gamalt timburhús, eyði- glugga og komast þaöan út á viö- flautið. Lítill reykur var kominn í
lagðist í eldinum. byggingu. Hún háði harða baráttu íbúð foreldra HaUgríms.
ffjónin Hallgrímur Vigfusson og í herberginu. Henni tókst að draga Fáum sekúndum eftir að hjónin
Emilía Lórenz, sem bjuggu í ann- andann út um lítið opnanlegt fag höfðu komist út varö húsið alelda.
arri íbúð hússins, voru mjög hætt þar til hún gat brotið rúðuna. Þrátt fyrir mikla baráttu tókst ekki
kominí eldsvoðanum. Dóttir þeirra Eftir að Hallgrímur hafði komist aö ráða viö eldinn og er húsið nú
var að heiman. út, treysti hann sér ekki til að fara gjörónýtt. Álitið er að eldurinn
Þau hjónin sváfu á efri hæö íbúð- í næsta hús og sækja hjálp. Vegna hafi kviknaö í sjónvarpstæki.
arinnar. Hallgrímur vaknaöi við fötlunarinnar á Hallgrimur erfitt Emilía skarst litillega er hún fór
að reykur var í íbúðinni. Eftir að með gang og ef hann hefði dottið á út um brotinn gluggann. Að öðru
hafa vakiö konu sína braust Hall- leiðinni heföi veriö með öllu óvíst leyti sakaöi þau ekki. Hallgrímur
grímur niöur stigann sem er bæöi hvort honum heföi tekist að standa Vigfússon vildi koma að þakklæti
brattur og erfiður. Hallgrímur er upp á ný. HaUgrímur greip til þess til allra sem þátt tóku í raunum
fatlaður og gekk honum erfiðlega ráös að fara í bíl sinn og leggjast á þeirra.
að komast niður. Mikill reykur var flautuna. Viö flautiö vöknuðu ná- -sme
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
Deilumar á Sjónvarpinu:
Stór orð
eru bara stfll
Ingva Hrafhs
- segir útvarpsstjóri
„Ég er nýkominn til landsins og
hef ekki haft neitt samband við menn
hér vegna þessa máls og þaö hefur
ekki verið boðaður neinn fundur til
að ræða þau sérstaklega," sagöi
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri í samtali við DV í morgun, um
ummæli Ingva Hrafns fréttastjóra
um Ingimar Ingimarsson aðstoðar-
framkvæmdastjóra fyrir páskana.
Markús sagði að í vikunni yrði
haldinn framkvæmdastjórnarfund-
ur hjá Ríkisútvarpinu, en það lægi
ekkert fyrir um það að þetta mál
yröi tekið þar upp sérstaklega.
„Mergurinn málsins er sá að Ingimar
Ingimarsson er í þeirri aðstöðu hér
í umboði yfirstjómar Ríkisútvarps-
ins að hafa gát á> fjármálalegum
atriðum í rekstri sjónvarpsins. Hér
eru sparnaðaraðgerðir í gangi sem
af skiljanlegum ástæðum mælast
misjafnlega fyrir hjá starfsmönnum.
Þeir menn sem eiga að halda utan
um budduna og gæta aðhalds og
spamaðar verða aldrei vinsælustu
menn í fyrirtækjum eða stofnunum.
Meira hef ég ekki um þetta að segja.“
- Þetta eru nú býsna stór orð sem
Ingvi Hrafn viðhefur?
„Það er bara hans stíll," sagði
Markús.
-S.dór
Félagsdómur
til fundar í dag
„Félagsdómur kemur saman til
fundar í dag en það er fyrsti fundur-
inn eftir að málið var dómtekið fyrir
páska. Ég get ekki sagt til um hvort
það tekst að afgreiða máliö í dag, það
verður bara að koma í ljós,“ sagði
Garðar Gíslason, forseti félagsdóms,
um úrskurði dómsins um verkfalls-
boðun kennara.
-S.dór
Hálfdán Henrýsson:
Ferðalög
jeppamanna
verði takmörk-
unum háð
„Auðvitað hlýtur helgi sem þessi
að hvetja til þess að ferðalög jeppa-
manna inn á hálendinu verði meiri
takmörkunum háð,“ sagði Hálfdán
Henrýsson, deildarsjóri björgunar-
deildar Slysavamafélagsins. Björg-
unarsveitarmenn um land allt hafa
lýst yfir áhyggjum sínum af þessum
ferðalögum, sérstaklega þeirra sem
ferðast á jöklum landsins. Hálfdán
tók undir þessar áhyggjuraddir en
bætti við að erfitt væri að fara að
banna mönnum þessi ferðalög.
„Ég tél vænlegast að reka kroftug-
an áróöur og brýna fyrir fólki að ana
ekki í ferðalög sem það ræöur ekki
við. Tilkoma lorantækja í bílum hef-
ur gefið mönnum falska öryggistil-
fmningu en til að hafa not af þessum
tækjum þarf að kunna vel á þau.“
Hálfdán sagði að þessi mál yröu
tekin fyrir hjá landsstjóm björgun-
arsveita og mætti búast við að sá
fundur ályktaði um málið.
-SMJ
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
i
4
é
LOKI
Sem sagt, ekkert stíl-
brot á Ingimar!
Hrakningar
á Fjallabaks-
leiðsyðri
- bflar illa búnir
Hópur fólks á þrem jeppabílum,
tveim Broncojeppun og einum Volvo
Lapplander, lenti í miklum erfiðleik-
um norðan vio Tindfjallajökul í gær,
nánar tiltekið á svæði sem kallað er
Hungurfit. Fólkið var á ferð á Fjalla-
baksleið syðri en hafði hreppt hið
versta veður. Lélegt skyggni og mik-
il ófærð gerðu öli ferðalög þarna
ákaflega erfið og þegar tveir bílanna
biluðu var beðiö um hjálp.
Tveir bílar frá Flugbjörgunarsveit-
inni á Hellu fóru fólkinu til aðstoðar
en þegar þeir komu til fólksins var
eini bíllinn sem gangfær var búinn
að festa sig. Á bílunum voru 8 manns
og komust allir heilir á húfi til
byggða. Fólkið, sem var úr Reykja-
vík, haföi ætlað inn á hálendið en
ekki komist lengra enda bílarnir ekki
útbúnir fyrir færð sem þessa. -SMJ
Maigföld
flugumferð
Mikill straumur ferðamanna var
* um allt land í gær þegar landsmenn
héldu til síns heima að loknum
páskaleyfum. Flugfélögin margföl-
duðu innanlandsferðir sínar og gekk
allt flug mjög vel enda veður gott.
Færð á vegum landsins var einnig
góð í gær samkvæmt upplýsingum
frá Vegaeftirlitinu. Á Öxnadalsheiði
urðu þó umferðartafir í gærdag
vegna hálku og illa búinna bíla. Bú-
ast má við nokkuð mikilli flug- og
bílaumferð í dag þar sem páskaleyf-
um skólafólks er enn ekki lokið.
Flugleiðir flugu um þrefalt fleiri
ferðir á annan i páskum heldur en
venja er eða 30 ferðir frá Reykjavík.
Þar af voru farnar tvær þotuferðir
frá Keflavík til Akureyrar að sögn
^ Sveins Sæmundssonar, sölustjóra
innanlandsflugs Flugleiða. Sveinn
sagði flugið hafa gengið svo vel að
allar ferðir hafi verið á áætlun. Alls
fluttu Flugleiðir 2026 farþega í gær.
Arnarflug tvöfaldaði ferðir til áætl-
unarstaða sinna í gær og voru farnar
19 ferðir frá Reykjavík. Farþegafjöldi
Arnarflugs í gær var rúmlega 200
manns að sögn Baldurs Jónssonar,
stöðvarstjóra Arnarflugs. -JBj
Það var mikið að gera hjá björgunarsveitarmönnum um allt land þessa páskahelgi. Hér má
sjá björgunarmenn úr Reykholtsdal, nánar tiltekið úr Björgunarsveitinni Oki, þegar þeir komu
til byggða eftir að hafa leitað tveggja snjósleðamanna sem týndust á Botnsheiði. Mennirnir
fundust heilir á húfi eftir 12 tíma leit. DV-mynd Snorri Kristleifsson
Bílstjórarnir
aðstoða
§§om
^SEJlDIBíUISTÖÐin
Veðrið á morgun:
Hæg
norðaust-
lægátt
Á morgun veröur hæg norð-
austlæg átt á landinu. Dálítil él
með norðurströndinni, súld eða
rigning meö suðaustur- og aust-
urströndinni, en víðast þurrt
annars staðar. Hitastig verður
kringum frostmark.
62 * 25 * 25
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritst'^rn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022