Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Side 7
<íiSS&f VESTUR-ÞYSKIR STALPOTTAR ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988. Fréttir Verðlækkun vegna tollabreytinga Útsölustaðir Þola suðu án vatns 18/10 gæðastál Ofnfastar höldur, að 280 gráðum Gufulok Þrefaldur hitaleiðnibotn Gerið verðsamanburð Búbest, Grimsbæ. og Glæsibæ Búsáhaldabúðin, Laugavegi 6 Hamborg, Klapparstíg Hamborg, Hafnarstræti Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki Blómabúðin Louise, Akranesi Versl. Grund, Grundarfirði Versl. Blómsturvellir, Hellissandi Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi KEA, Akureyri Versl. Kjarabót, Húsavik Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarfirði KASK, Höfn Versl. Tanginn, Vestmannaeyjum Versl. Stapafell, Keflavik Kaupfélag Árnesinga, Selfossi Búsáhöld og leikföng, Hafnarfirði Sendum í póstkröfu BúÁétór ,' nrur Kringlunni og Hamraborg Simi 686440 Aðlögunar- tími fyrir bændur Staöa bænda gagnvart virðis- 1 aukaskattinum olli töluveröum deilum meðal stjómarflokkanna og er eitt af þeim atriöum sem framsóknarmenn lögðu hvaö mesta áherslu á samkvæmt heimildum DV. Frumvarpið geröi ráð fyrir skattauppgjöri hjá bændum, meö hálfs árs millibili. En til aö mæta sjónarmiðum bænda voru geröar eftirtaldar breytingar: 1. Bændur geta valiö venjulegt, þ.e. tveggja mánaða, uppgjörstímabil. 2. Bændur eigi kost á sérstöku upp- gjöri innan 6 mánaða tíraabilsins til að fá endurgreiddan uppsafn- aðan skatt af vörum til meirihátt- ar fjárfestingar og stórum rekstrarvörukaupum en upphaf- lega var gert ráð fyrir 12 mánuð- um. 3. Heimilt verði að setja sérstakar reglur um skattskil af sölu bænda til afuröastöðva. Ennfremur á að gefa bændum kost á einföldu skattabókhaldi og bjóða þeim upp á virka leiðbein- ingaþjónustu og aðlögunartíma. Um áhrif virðisaukaskattsins á niðurgreiðslur má segja að þau verða líklega engin frá því sem varð með tilkomu matarskatts- ins. Samstaða raun vera um það að við upptöku virðisaukaskatts- ins verði niöurgreiðslum hagað þannig aö upptaka skattsins hafi engar breytingar á verð niður- greiddra landbúnaðarafurða. -SMJ Dagblöðin undanþegin virðisaukaskatti Sala dagblaða telst ekki til skatt- skyldrar veltu og því munu dag- blöðin verða að því leyti undanskilin virðisaukaskatti. Sala dagblaða og hliðstæðra blaöa, svo og tímarita sem eru ekki gefin út í ágóðaskyni, er sem kunnugt er undanþegin söluskatti. í reynd hafa nær öfi blöð og tímarit, sem ekki teljast afþreyingar- og skemmtirit, verið undanþegin sölu- skatti á grundvelli þessa ákvæðis. Segir í greinargerö með frumvarpinu að þrátt fyrir þá meginstefnu frum- varpsins að vörusala skuli ætíð vera skattskyld þá „.. .þykir ekki hjá því komist í ljósi nokkurrar sérstöðu eig- inlegra dagblaöa á sviði nútímafiöl- miðlunar að leggja til aö þau verði undanþegin skattskyldu með samá hætti og áður“. Mun undanþága þessi vera í samræmi við svipaðar reglur í nágrannalöndunum. Méð dagblöðum í undanþáguskiln- ingi þessa ákvæðis er átt við blöð sem koma út með reglulegum hætti, a.m. k. sex sinnum í viku, og hafa að geyma almennar fréttir af innlend- um og erlendum vettvangi. Einnig nær þetta til landsmála- og héraðs- fréttablaða. Undanþágan nær hins vegar ekki til tímarita. Rökin fyrir þessum undanþágum eru þau að með þeim sé veriö að auðvelda bjóðmálaöflum kynningu skoðana og málstaöa. -SMJ 1,2 milljarða gat myndast Með virðisaukaskattinum er gert ráð fyrir að innheimtan batni sem svarar einum milljarði en eigi að síð- ur er gert ráð fyrir að 1,2 milljarða vanti til að ríkið nái jafnmiklu inn og 25% söluskattur skilar. Ef farin hefði verið sú leið að hafa virðisaukaskattinn 20%, eins og hug- myndir voru uppi um, þá heföi orðiö halh upp á 3,8 milljaröa. Ekki var þó talið veijandi að hækka virðis- aukaskattinn umfram 22%. Ekki er vitað hvernig stoppað verður upp í þetta gat en aukin bein skattheimta, tekjuskattur og eignaskattur, er tahn möguleg. Þá er ótalinn verðbólguþátturinn en ríkissjóður fær greiðslur th sín síðar í virðisaukakerfinu heldur en í núverandi söluskattskerfi. Tahð er að 2500 milljónir innheimtist á mán- uöi samkvæmt söluskattskerfinu en reikna má með því að helmingur þessarar upphæðar komi mánuöi seinna í ríkissjóð þegar virðisaukinn hefur tekið við. Af því veröur vaxta- táp. Ýmis hhðaráhrif ættu að vinna gegn þessu að hluta, s.s. skjótari inn- heimta hjá tollinum. Við 22% skatthlutfah er verðlækk- un einkaneyslu áætluð 1% og þeir þættir einkaneyslunnar, sem nú bera 25% söluskatt, lækka um 2,4%. Heildaráhrif uppsöfnunar til verð- lækkunar eru tahn vera um 2% í framfærsluvísitölu. -SMJ Jón Baldvin Hannibalsson (jármálaráðherra kynnti fyrir fréttamönnum frum- varp um virðisaukaskatt sem hann lagði fram á Alþingi í gær. Með honum á myndinni er Indriði H. Þorláksson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu. DV-mynd Brynjar Gauti Virðisaukafrumvarp lagt fram í fjórða skipti á flmm árum: Verður að lögum nú - segir fjármálaráðherra Virðisaukafrumvarp var lagt fram á Alþingi í gær, í fiórða skiptið á fimm árum. Það kom fram í máh Jóns Baldvins Hannibalsonar fiár- málaráðherra, þegar hann var að kynna frumvarpið, að stefnt er að því að samþykkja frumvarpið fyrir þinglok í vor. Gert er ráð fyrir aö lögin öðhst gildi 1. júh 1989 eða hálfu ári seinna en upprunalega var gert ráð fyrir. Sagði Jón Baldvin aö ákveðið heföi verið að seinka gildis- tökunni til að vinna betur aö kynn- ingu fruinvarpsins og boöaöi hann í leiðihni mikla áróðursherferð til þess. Viröisaukaskattur er neysluskatt- ur eins og söluskattur en miöað er að að skatthlutfalhð verði 22% í virð- isaukaskatti en er nú 25% í sölu- skatti. Munurinn á þessum tveim sköttum er sá helstur að virðisauka- skattur leggst á söluverð á öllum viðskiptastigum en söluskatturinn einungis á þaö síðasta. Þá safnast virðisaukaskattur ekki upp í vöru- verði heldur dregst innskattur, sá skattur sem greiddur er af aðföngum vörunnar, frá útskatti sem er sá skattur sem leggst á söluverö. í tilkynningu fiármálaráöuneytis- ins segir að virðisaukaskatturinn bæti samkeppnishæfni íslensks at- vinnulífs gagnvart erlendum keppi- nautum - jafni aðstöðumun hér innanlands - hafi ekki áhrif á eðli- lega verkaskiptingu í atvinnurekstri - innheimtist betur en söluskattur og - leiði til lægra vöruverðs. Á móti kemur að virðisaukaskatt- inum fylgir aukin skriffinnska og fiölga þarf verulega starfsfólki í skattkerfinu. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.