Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988. 9 Útlönd Hafa búið sig undir að deyja Flugræningjamir, sem enn halda um fimmtíu gíslum um borð í Boeing 747 þotimni á flugvellinum í Lamaca á Kýpur, kváðust í morgun vera reiðubúnir tíl þess að mæta dauða sínum fái þeir ekki kröfum sínum framgengt. Flugræninaamir hafa nú haldið þotunni í eina viku en þeir rændu henni þegar hún var á leið til Kuwait. Fyrst lentu þeir þotunni í íran en eftir að hafa fengið eldsneyti þar reyndu þeir að lenda í Beirút. Þegar sýrlenskir hermenn komu í veg fyrir lendingu í Beirút var þotunni snúið til Kýpur, þar sem hún er enn. Flugræningjarnir hafa myrt tvo af gíslum sínum til þessa. Þeir myrtu einn gíslanna á laugardag og í gær myrtu þeir annan farþega úr þot- unni. Þeir vörpuðu síðan líki hans úr þotunni, niður á flugbrautina, þar sem sjúkraliðar gátu komist aö því og fjarlægt það. Flugræningjarnir sögðust í morg- un vera komnir í líkklæði sín og vera reiðubúnir til' þess aö deyja fái þeir ekki kröfum sínum framgengt. Þeir hafa krafist þess að sautján félagar þeirra verði látnir lausir úr fangels- um í Kuwait. Stjómvöld í Kuwáit höfnuðu í gær alfarið hvers kyns samningum við flugræningjana, sem fælu í sér lausn fanganna sautján, en þéir em allir að afplána refsingu fyrir aðild að sprengjuárásum árið 1983. í yfirlýsingu sinni í morgun sögðu flugræningjamir: „Eftir að hafa frétt af þijósku Kuwait, eftir fund ríkisstjófnar landsins, tilkynnum við að við höfum einnig haldið ríkisstjómarfund um borð í þotunni til þess að íhuga mál- in, þar á meðal ákveðni stjómar Kuwait í því að vera tól í höndum bandarískra kúgara, til höfuðs þeim sem elska friðinn, fátækum og kúg- uðum þjóðum." Flugræningamir, sem hafa varað við því að mikið magn sprengiefnis sé um borö í þotunni, segjast hafa tekið eftirfarandi ákvarðanir: „Að nefna þotuna flugfarkost hinna miklu pislavotta. Að dýröardauði sé betri en líf í Lík mannsins, sem flugræningjarnir myrtu í gær, flutt á brott frá flugvellin- um. Flugræningjarnir sögðu hann vera embættismann frá Kuwait. Símamynd Reuter myrkri. Aö hvetjá alþýðu Kuwait til þess að herða á byltingaraðgerðum sínum gegn harðstjóm landsins og að full- vissa þjóðina um að við emm ekki á móti henni. Hún er bræður okkar á göngunni. „Aö votta þakkir okkar farþegum flugvélarinnar fyrir aö hafa dvalið með okkur og stutt okkur og fyrir aö hafa fordæmt ríkisstjóm lands síns.“ Fimmta og síðasta ákvörðunin var að íklæðast líkklæðum. Flugræningjamir hóta nú aö myrða fleiri af farþegum þotunnar verði eldsneyti ekki sett á hana. Aðstæður eru mjög erfiöar um borð í þotunni og í morgun versnaði ástandið enn þegar loftræstikerfi, sem tengt var þotunni, bilaði. Til tals hefur komið að ráðast á þotuna og freista þess aö fella flug- ræningjana áður en þeir geta sprengt vélina í loft upp. Flugræningjamir hafa varað við slíkum tilraunum og öfgasinnaðir múhameöstrúarmenn í Beirút hafa tekið í sama streng, en þeir hóta að myrða vestræna gísla, sem þeir hafa í haldi, veröi ráöist á flugræningjana. Haft er eftir háttsettum embættis- manni í Beirút að flugræningjamir séu úr röðum öfgasinnaðra líbanskra múhameðstrúarmanna, Flokki guðs, sem fylgja írönum að málum. Flugræningjarnir fleygðu líki mannsins úr flugvélinni niður á flugbrautina á flugvellinum á Kýpur. Simamynd Reuter Ný ríkisstjóm kjörín Kinverska þingiö hefur kosið nýja rfkisstjóm, að þvi er tilkynnt var í fjölmiölum í Kína í morgun. í fréttum segir að í nýju stjóminni eigi sjö nýir ráðherrar sæti, þeirra á meðal nýr utanríkisráöherra, nýr vamarmálaráðherra og nýr banka- stjóri kínverska seðlabankans. Ráðherraembættum var fækkað úr 45 í 41. Meðalaldur þeirra þrettán ráðherra, sem sitja í ríkisráðinu, er einnig nokkm lægri en hann var eða sextíu og eitt ár í stað sextíu og sjö sem var meðalaldur fyrri ríkisstjómar. Fjármögnunareiflðleikar Áður fyrr þótti þaö næsta ömgg leið til auðs og valda að ganga djöfl- inum á hönd því kölski kynni allra fyrirbrigða best að spila á fjár- magnsmarkaðinn. Hoiium vfrðist þó ekki ganga eins vel á peninga- markaði nútímans. Að minnsta kosti gengur þeim sem um málefni hans fjalla illa að safna fjárfram- lögum til iðju sinnar. Skipuleggjendur ráöstefnu nokk- urrar í Tóríno á Ítalíu, þar sem fjalia á um áhrif kölska, eru í vand- ræöum, vegna fjárskorts. Enginn fæst til aö styrkja ráöstefnuna og hvemig sem þeir reyna fæst ekki króna til málefnisins. Spurningin er aðeins sú hvort peningamenn óttast kölska, hvort sá gamli er búinn að missa tökin á peninga- mönnum eða hvort hann kærir sig ef til vill bara ekkert um opinbera umfjöllun. Honasan vill stjóma Einn af yfirmönnum hersins á Filippseyjum, Mariano Adalem hers- höföingi, sagöi í gær aö Gregorio Honasan, leiötogi uppreisnarraanna þar, vildi fá að stjórna ríkisstjóm landsins og að fullyrðingar hans um að hann ætlaði aðeins aö knýja stjómina til úrbóta væm yfirskin eitt Herinn á Filippseyjum er nú í viðbragösstöðu og verður næstu daga, meðan Corazon Aquino, forseti landsins, er í opinberri heimsókn i Kína og Hong Kong. Er fastlega búist viö aö Honasan, sem leitt hefur tvær byltingartilraunir til þessa, rauni reyna enn á ný meðan forsetinn.er fjar- verandi. Viðurkenna njósnastarfsemi Bandaríski herinn viðurkenndi i gær að hafa haft tengsl við ungan Panamabúa sem sjálfur segist vera njósnari. Bandaríkjamenn hafa hins vegar neitaö alfarið að hafa gefiö honum fyrirmæli um að vinna skemmdarverk á Panama- skurðinum. Talsmaöur bandaríska hersins i Panama sagði í gær aö maðurinn, Fabian Orlando Wallis, væri sjálf- boðaliði sem gefið hefði bandarísk- um stjómvöldum upplýsingar. Walíis var handtekinn af leyni- þjónustu hersins í Panama á laugardag og skýrði hann frá þvi að bandarískir aðilar heföu gefið sér fyrirmæli rnn aö vinna skemmdarverk á Panamaskuröin- um. Sagði hann Bandaríkjamenn hafa ætlaö aö nota skemmdarverk- in sem átyllu til hemaðarlegrar íhlutunar um málefni Panama. THbúinn til sjómarmyndunar Verðandi forsætisráðherra Ítalíu, Ciriaco de Mita, segist nú vera reiðu- biíinn til stjórnarmyndunar í landinu. Ríkisstjóm þessi verður hin fertugasta og áttunda frá lokum síöari heimsstyijaldarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.