Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRlL 1988.
Utlönd
Síðasti keisarinn hlaut
níu óskarsverðlaun
Ólafur Amarson, DV, New York;
Síðasti keisarinn, mynd Bern-
ardo Bertoluccis, sópaði að sér
verðlaunum við afhendingu
óskarsverðlaunanna í Hollywood í
gærkvöldi. Myndin hlaut alls níu
óskarsverðlaun og var meðal ann-
ars valin besta mynd ársins.
Af öðrum verðlaunum, sem
myndin hlaut, má nefna fyrir bestu
leikstjóm, besta handrit byggt á
annarri sögu, bestu leikbúninga og
bestu klippingu.
Þaö eru ár og dagar síðan ein
mynd hefur sópað að sér þvílíkum
fjölda verðlauna. Einnig er athygl-
isvert að myndin var útnefnd til
hún væri á formlegri samkundu.
Olympia Dukakis, frænka Micha-
el Dukakis forsetaframbjóðanda,
hlaut óskarsverðlaunin fyrir best-
an leik í aukahlutverki í myndinni
Moonstrack. Hún notaði tækifærið
er hún tók við verðlaununum og
hrópaði hvatningarorð til frænda
síns. Það veröur að teljast heppilegt
fyrir forsetaframbjóðanda að fá
slíka auglýsingu við óskarsverð-
launaafhendinguna því áætlað var
aö um einn milljarður manna um
viða veröld fylgdist með henni.
Moonstrack fékk einnig verðlaun
fyrir besta framsamda handritið.
Michael Douglas fékk óskars-
verðlaunin fyrir bestan leik í
Að venju höfðu margir safnast saman til að fylgjast með stjörnunum
þegar þær fiykktust að óskarsverðlaunahátiðinni. Símamynd Reuter
Cher og Michael Douglas með óskarsverðlaun sín fyrir bestan leik i aðalhlutverki. Símamynd Reuter
ir afhendinguna að hann skyldi
raunar ekkert í því hvers vegna
hann hefði aldrei fengið óskarinn
fyrir leik sinn í James Bond mynd-
unum.
Af öðram verðlaunum má nefna
að Inner Space fékk viðurkenningu
fyrir tæknibrellur og lagið I’ve had
the time of my life úr myndinni
Dirty Dancing var valið besta lagið
í kvikmynd. Frændir vorir Danir
fengu verðlaim fyrir bestu erlendu
kvikmyndina og er það í fyrsta
skipti sem þau verðlaun fara til
þeirra. Verðlaunin vora veitt fyrir
myndina Babettes Gæstebud, sem
Gabriel Axel leikstýrði.
Þá voru í gærkvöldi veitt sérstök
verðlaun sem kennd era við Irving
Thalberg. Það var Jack Lemmon
sem afhenti Billy Wilder verðlaun-
in fyrir framlag hans til kvik-
myndalistarinnar. Þessi verðlaun
eru ekki veitt árlega heldur ein-
ungis þegar ástæða þykir til. í
gegnum tíðina hafa ýmsir mætir
menn hlotið þessi verðlaun og má
meðal annars nefna Walt Disney,
Alfred Hitchcock, Ingmar Bergman
og Steven Spielberg sem hlaut þau
í fyrra. Billy Wilder hefur á löngum
ferli sankað að sér einum sex
óskarsverðlaunum og meðal hans
þekktustu mynda er Sunset Böule-
vard, Irma La Douce og Some like
it hot.
Grínistinn góðkunni, Chevy
Chase, var kynnir við afhending-
una í gær og sá hann til þess að
hlutirnir yrðu ekki allt of væmnir
eins og oft hefur viljað brenna við
við afhendingu óskarsverðlauna.
Hann gerði góðlátlegt grín að
starfsaðferðum kvikmyndaaka-
demíunnar og’ sagði meðal annars
að ef menn hétu Steve eða Steven
að fyrra nafni þá væru þeir ekki
gjaldgengir til óskarsverðlauna.
Atti hann þar við þá Steve Martin
og Steven Spielberg sem hingað til
hafa ekki hlotið náð fyrir augum
akademíunnar þótt almenningur
virðist hafa þá í góðum metum.'
Einnig tók þátt í afhendingunni
náungi að nafni Mikki Mús sem er
sextugur á þessu ári eða jafngam-
all óskarsverðlaununum.
Undir lokin reyndi Chevy Chase
að keppa við Cher um aðdáun gesta
er hann missti niður um sig bux-
umar en telja verður að Cher hafi
haft vinninginn hvað fagran lima-
burð varðar.
Sean Connery hlaut óskarsverðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki
karla. Símamynd Reuter
niu verðlauna og hreppti þau öll
þannig að ekki fór milli mála hvert
óskabamið í Hollywood var í ár.
Sú mynd, sem kom næst í röð-
inni, var Moonstruck. Cher fékk
óskarinn fyrir leik sinn í aðalhlut-'
verki í þeirri mynd. Ekki brást hún
aðdáendum sínum nú fremur en
fyrri daginn og var klædd ákaflega
gegnsæjum kjól er hún veitti viður-
kenningunni móttöku. Var líkara
því að hún væri á baðströnd en aö
aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í
myndinni Wall Street. Hann var
útnefndur fyrir Wall Street þótt
margir teldu að hann hefði frekar
átt að fá útnefningu fyrir leik sinn
í myndinni Fatal Attraction.
Gamli spæjarinn, Sean Connery,
hlaut verðlaun fyrir bestan leik í
aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í
myndinni The untouchables og
hlaut hann þar með sín fyrstu
óskarsverðlaun. Connery sagði eft-
Olympia Dukakis með óskarsverðlaunin fyrir bestan leik í aukahlutverki
kvenna. Símamynd Reuter