Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Qupperneq 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988:
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Háholti 11, neðri hæð, talinn eigandi Ketill
Vilbergsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 14. apríl 1988 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Landsbanki Islands, Lögmenn Hamraborg 12,
Reynir Karlsson hdl., Jón Sveinsson hdl. og Akraneskaupstaður.
Bæjarfógetinn Akranesi
SÓKNARFÉLAGAR
Starfsmannafélagið Sókn minnir félagsmenn sína á
að þeir sem hafa hugsað sér að sækja um orlofshús
í sumar panti hús fyrir 20. apríl í síma 681150 eða
681876.
Orlofsnefnd
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI
FYRIRFRAMGREIÐSLA
4-5 herbergja íbúð óskast til leigu, helst í nágrenni
við Hólabrekkuskóla.
Upplýsingar í síma 79700
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 4.000.-
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
slma, nafnnúmer og
gildistlma og númer
greiðslukorts.
vm
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
meó korti.
ViSA
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
Vinningstölurnar 9. apríl 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 5.255.605,-
1. vinningur var kr. 2.632.677,-
og skiptist hann á milfi 3ja vinningshafa, kr. 877.559,- á mann.
2. vinningur var kr. 787.081,-
og skiptist hann á 281 vinningshafa, kr. 2.801,- á mann.
Upplýsingasími: 685111
3. vinningur var kr. 1.835.847,-
og skiptist á 8.307 vinningshafa, sem fá 221 krónur hver.
Utlönd
Atta Palestínumenn voru í gær fluttir með ísraelskri herþyrlu til Líbanon. Myndin af þeim var tekin í Bekaadalnum
nokkrum klukkustundum siðar. simamynd Reuter
Heita að snúa aftur
Palestínumennirnir átta, sem
reknir voru frá herteknu svæðunum
í gær, hafa heitið því að nota öll til-
tæk ráð til þess að snúa aftur til
heimalands síns til frekari þátttöku
í uppreisninni sem nú hefur kraflst
hundraö þrjátíu og sex fómarlamba.
ísraelsk yfirvöld vísuðu Palestínu-
mönnunum átta, sem sakaöir voru
um að hafa æst til óeirða á Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu, til
Líbanon í gær. Voru þeir fluttir með
ísraelskri herþyrlu tfl yfirlýsts yfir-
ráðasvæðis Israelsmanna nálægt
Bekaadalnum.
Einnig fyrirskipuðu ísraelsk yfir-
völd brottvísun tólf annarra Palest-
ínumanna þrátt fyrir að Sameinuðu
þjóðimar fordæmi slíkar aðgerðir.
Óeirðir brutust út á Vesturbakkan-
um nokkmm klukkustundum eftir
að tilkynnt var um brottvísunina og
hermenn skutu tfl bana tvo Palest-
ínumenn og særðu tvo aðra. Að sögn
Palestínumanna áttu palestínskir
unghngar í átökum við hermenn
langt fram á kvöld í gær í Nablus.
Deila um kjamavopn
eriendra herskipa
Gunnar Kristjánsscm, DV, Kaupmannahöfn:
Sósíalíski þjóðarflokkurinn í Dan-
mörku lagði fram á þinginu tfllögu
þess efnis að umráðamenn erlendra
herskipa, sem ferðast á dönskum
siglingaléiðum og leggjast að í dönsk-
um höfnum, staðhæfi að þau beri
ekki kjamorkuvopn.
Sósíaldemókratar vflja ekki ganga
svo langt heldur gera flotanum, er
heimsækir Danmörku, grein fyrir að
Danir vflji ekki Kjamorkuvopn á
dönsku yfirráðasvæði.
Þessari tfllögu em Sósíalíski þjóð-
arflokkurinn og róttækir samþykkir
og þar með er meirihluti fyrir henni
í þinginu.
Ríkisstjómin vill fylgja sömu línu
og Norðmenn en þar er erlendum
herskipum veitt leyfi tfl að leggjast
að í norskum höfnum eftir þeim regl-
um sem gilda þar í landi. Kjarnorku-
vopn era ekki nefnd sérstaklega í
þessum reglum og því vfll stjómar-
andstaðan breyta.
Schluter forsætisráðherra hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann
varar viö aö danskir hagsmimir inn-
an Nató séu í hættu ef tillaga þessi
verður samþykkt. Ennfremur segir
hann að aðildarríki Nato hafi haft
það sem grundvallarreglu að hvorki
hrekja né staðfesta hvort eitthvert
skip beri kjamorkuvopn eða ekki.
Jafnframt bendir hann á að Natórík-
in þekki stefnu Dana, þaö er að ekki
megi vera kjamorkuvopri á dönsku
yfirráðasvæði á friöartímum, og
reiknar hann með að þau virði það.
Gerir Schluter ráð fyrir að breski
og bandaríski flotinn muni hætta að
fara um danskt yfirráðasvæði ef tfl-
lagan verður samþykkt og muni það
hafa í fór með sér alvarlegar skerð-
ingar á varnarsamningnum mifli
Danmerkur og bandamanna. Á með-
an geti sovéski flotinn siglt óhindrað
gegnum Stórabelti og Eyrarsund, fáa
metra frá dönsku strandlengjunni.
Svend Auken, formaður sósíal-
demókrata, segir að með þessari
tillögu sé verið að fara að dæmi Norð-
manna, nefnflega aö afhenda gestim-
um bréf. Munurinn á þessum bréfum
sé sá að Danir geta kjamorkuvopna
sérstaklega en Norðmenn ekki. Og
bréfið bendi einungis á hver stefna
Dana hefur verið síðustu 25 árin.
Sendiherra Bandaríkjanna í Dan-
mörku hefur gert ríkisstjórninni og
sósíaldemókrötum það Ijóst að
Bandaríkin muni aldrei láta uppi
hvort herskip þeirra eða flugvélar
beri kjamorkuvopn.
Sjálf tillagan kemur ekki tfll at-
kvæðagreiðslu fyrr en efdr um það
bil tvær vikur.
Biðla til gyðinga
ÓMir Axnarean, DV, New Yoric
Forsetaframbjóðendur demó-
krata reyna nú allt hvað af tekur
aö tryggja sér hylli kjósenda í-New
York-ríki í gær hélt Jesse Jackson
íjölmennan fund meö félagsmönn-
um i verkalýösfélögum í New York
og var honura gríöarlega vel tekið.
Jackson leggur nú allt kapp á aö
ná atkvæðum verkamanna auk
þess sem hann biðlar mjög tíl gyö-
inga. Gyöingar hafe löngum tekiö
Jackson með fyrirvara végna af-
stöðu hans til Frelsissamtaka
Palesttnumanna, PLO, og sam-
skipta hans við arabaleiðtoga.
Jackson hefur undanfama daga
dregið ny ög í land meö fyrri afstöðu
sína í þessum efnum og um helgina
lýsti hann því yfir að kæmist hann
í Hvíta húsið myndi hann ekki eiga
beinar viöræður viö PLO. Senni-
lega mun stuöningur gyðinga ráöa
úrslitum um gengi Jacksons i for-
kosningunum í New York eftir
viku.
Michael Dukakis var einnig með
kosningafundi í gær en í gærkvöldi
fylgdist hann með óskarsverð-
launaafhendingunni af sjónvarps-
slqá og sá frænku sína, Olympiu
Dukakis, taka við óskarsverðlaun-
imum. Dukakis hefur samkvæmt
skoöanakönnunum ríflegt forskot
á Jackson.
Albert Gore, sem hefur minnst
íylgi þeirra þremenninga, hefur
biölaö ákaft tfl gyðinga og bent á
stuöning sinn viö ísrael á liðnum
árum. Ef Gore tekst að finna hjjóm-
grunn meðal gyðinga í New York
getur það komið Jackson mjög veL
Talið er að Gore muni fyrst og
fremst sækja aukið fylgi sitt i raöir
fylgismanna Dukakis og því getur
fariö svo að gott gengi hjá Gore i
New York tryggi Jesse Jackson sig-
ur í forkosningunum.
Á þessari stundu verður þó að
teljast líklegast aö Michael Dukak-
is beri sígurorð af Jesse Jackson í
New York og að Gore hafni í sið-
asta sætl Ef þaö gerist er hætt við
að raest loft verði farið úr Jackson-
blöðrunni og Dukakis muni halda
áfram á sigurbraut og tryggja sér
útnefriingu Demókrataflokksins.
Það má því segja að forkosningam-
ar i New York eftir viku geti ráöið
úrslitum uió það hvort Dukakis
tryggir sér útnefiflngu demókrata.
Hann er sigurstranglegur nú en ef
Jackson tekst að koma á óvart og
sigra í New York er aJlt galopið á
nýjan leik hjá demókrötum.