Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988. LífsstOI Hrognkelsaveiðar: Sá rauði er kvensamur „Dríílð ykkur um borð, klifraðu þarna upp og tylltu löppinni á kass- ann um leið og þú ferð niður í bát- inn,“ sagði Jóhann Jóharinsson, trillukarl og eigandi Böggu HF 93,3,3 ■^tonna triUu sem gerð er út frá Hafn- arfirði. Hann og félagi hans, Jóhann Sölva- son, kaUaður Jói, voru orðnir hálfó- þohnmóðir að bíða á bryggjunni eftir blaðamanni og ljósmyndara DV sem ætluöu að fá að fljóta með einn túr á hrognkelsi. Við hoRpuðum um borö og þar með var lagt í hann, enda klukkan orðin margt, rúmlega hálf- níu en yfirleitt er reynt aö leggja af stað um sjöleytið á morgnana. Þennan miðvikudagsmorgun í dymbUviku hafði Jóhann litiö til veð- urs um hálfsjöleytið að vanda en fannst ekki viðra til veiðiferðar. Um áttaleytið fór að kyrrast og þá var ákveðið að leggja í hann. Ekki er lagt K róður nema í blíðskaparveðri og lygnum sjó því að annars er ekki hægt að hemja netin. DV-myndir Brynjar Gauti alþakið smáum beinkörtum, auk þess sem stórar oddhvassar körtur eru í þremur einfoldum röðum á hvorri hhð. Enda mun tUurð hrogn- kelsanna vera rakin tU þess að Kristur tók sér gönguferð meðfram sjó, Sankti Pétur gekk með honum. Kristur hrækti í sjóinn og af því varð rauðmaginn. Þá hrækti Sankti Pétur líka og af því varð grásleppan. Sleppa Jóhann sagði að það væri best að byija á því að leggja net sem þeir urðu að taka með sér heim úr síðasta róðri þar sem svo mikUl krabbi hafði verið í því. í rólegheitunum miðar hann út hvar sé best að leggja og staðurinn er fundinn þegar hann flnnur rétta dýpið. Þá kaUar hann: „Sleppa". Baujan skellur í sjóinn og Jóhann hleypur aftur í til að hjálpa nafna sínum við að koma netinu frá borði. Þegar hann kemur aftur fram í segir hann: „Við leggjum netin aldr- ei á meira en tíu faðma dýpi.“ Svo var farið að líta eftir hinum netatrossunum. „Númer hvað er þessi?“ kallar Jóhann. „Sérðu nokk- uð númer sjö.“ „Hún er hér,“ kaUar Jói aö bragði og krækir í baujuna með krók. Jó- hann skundar aftur í tíl að draga inn og netið rúUar í gegnum spihð. í hverri trossu eru þrjú net. Ekki var mikili veiði í fyrstu netunum, það fyrsta sem sást var krabbi sem reyndi í örvæntingu að losa sig úr netinu. Hann var shtinn í burtu og Jóhann segir okkur að það sé helvíti leiðiiflegt að fá krabbann í netin því aðþaðsésvoerfittaðgreiðahannúr. Gert aö grásleppunni sem villtist í netin mánuði of snemma. Yfirgefa strendurnar Síðla vetrar nálgast hrognkelsin strendur landsins og koma upp á grunnmiðin og grynningamar til að hrygna. Þau koma upp að landi í mörgum göngum hverri á eftir ann- ari og eru svo við landið fram í ágúst. Þá yfirgefa hrognkelsin strendur landsins og halda út á opið haf þar sem þau halda sig aUan fyrripart vetrar. Nú stendur veiðitímabihð sem hæst hér sunnanlands og em því margir trihukarlar á rauðmagaveið- um um þessar mundir en gráslepp- una, en svo nefnist hrygnan, má ekki veiða fyrr en 20. apríl. Stutt stím Jóhann, trillukarl í Hafnarfirði, er einn af þeim sem gera út á hrogn- kelsi. Á útstíminu sagði hann okkur aö Rauðmaganetin dregin um borð og einn rauður sýnir sig. Beðið eftir kalli um að sleppa baujunni. netin væra ekki langt undan, það væri ekki nema hálftíma stím út. Netin höfðu þeir lagt'fyrir fimm dög- um og því kominn tími til að vitja um. Ertu nokkuð sjóveUc? spurði Jó- hann, hálfstríðnislega, þegar við vorum komin út á ytri bryggjuna. Það varð nú fátt um svör. Enda veðr- ið upp á það besta, glampandi sól og smágola þó að hálfkalt væri. Og þvi hálfskammarlegt að játa á sig sjó- veiki. Jóhann benti út á sjávarflötinn og sagði: „Þama er strengur." Það var heldur ekki að því að spyija þeg- ar við komum út í strenginn að Bagga fór að velta eins og korktappi )g ónotatilfinning gerði vart við sig maganum. búinn að vera með tryhu síðan 1972 og Böggu er ég búinn að eiga í sex ár. Maður skreppur út og nær sér í í soðið, það er orðið svo dýrt að kaupa í matinn." Mögur ár og sjö rauðir „Ég reri í fyrsta sinn á rauðmaga 28. febrúar síöasthðinn og fékk þá 7 rauömaga. Veiðin í vetur hefur verið hálfdræm, það mesta sem ég hef fengið em 200 rauðmagar. Það var góður dagur. Það hefur verið lítU veiði nú nokkur ár í röð. Annars er Utið upp úr rauömaganum að hafa. Maður er bara að bíða eftir því að komast á grásleppuna en það er miklu meira á henni að græða því Ég spurði Jóhann hvort hann yrði aldrei sjóveikur. Hann fór að hlæja og sagði: „Ég er búinn að vera á sjó síðan ég var fjórtán ára og verð aldr- ei sjóveikur, enda væri maður þá ekki að stússast í þessu. Annars eru rauðmagaveiðarnar bara áhugamál hjá mér. Ég er í fullri vinnú hjá Ál- verinu í Straumsvík, svo rær maður þegar maður er í vaktafrh. Ég er að grásleppuhrogn eru á ágætu verði." Á svipuðum slóðum Jóhann leggur net sín á svipuðum slóðum ár eftir ár, enda leita hrogn- kelsin til hrygningar á sömu staði og þau ólust upp á. Hver og einn trillukarl helgar sér ákveðin svæði þar sem hann leggur net sín. Þegar grásleppuveiðin byrjar leggja þeir svo netin á sama stað og rauðmaga- netin vom lögð. Ef það kemur fyrir að einhver leggur á veiðisvæði ann- ars karls þá kemur th rifrildis, segir Jóhann. „Annars em shk mál yfir- leitt leyst með því að sá sem leggur ofan á verður að láta undan og færa sig.“ Við vomm komin á hrognkelsa- miðin. Það var orðinn fjári mikih veltingur á bátnum og erfitt að standa í lappirnar nema halda sér. Sjóveikin ágerðist hægt og hljóðlega og kuldinn var farinn að bíta í tæm- ar. Einn og einn rauðmagi birtist og svo faheg grásleppa. Það er nú raun- ar á mörkunum aö hægt sé aö tala um að hrognkelsi séu fallegir fiskar. Klunnalegur fiskur Þetta er klunnalegur fiskur, með stuttan haus og snjáldur, lítinn kjaft og smáar, beittar tennur. Roðið er mjög þykkt og kallast hvelja. Það er

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.