Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988. Lífsstfll Gott að slaka á með góðum píanókonsert - segir Garðar Runólfsson hljómtækjadellumaður „Ég er búinn aö vera að sanka aö mér þessum tækjum í ein átta ár. Það er því erfitt að gera sér grein fyrir hvað þau hafa kostað mig. Ég hef stöðugt veriö að leita að því besta í bransan- um og nú er ég mjög ánægður með hljóminn," sagði Garðar Runólfsson, starfsmaður hjá Japis og hljómtækjadellukarl. Tækjadellan hefur fengið að víkja Þeir sem komnir eru á miðjan aldur muna sjálfsagt flestir eftir hljómtækjadellunni sem dundi yflr þjóðina fyrir einum til tveimur áratugum: Allir sem vettlingi gátu valdið keyptu sér dýrindis tæki svo hægt væri að hlýða á Pink Floyd og Moody Blues í tilhlýðilegum græjum. Enda dundu hljómtækjaauglýs- ingamar yfir sjónvarps- og útvarpsnotendur sýknt og heil- agt. Að lokum virðist hafa tekist að metta hljómtækjamarkaðinn að miklu leyti, allavega tóku heimilistækjafyrirtækin nú að auglýsa video og litsjónvarps- tæki, geislaspilara, bílasíma, fótanuddtæki og loks afruglara. Hljómtæki eru ótrúlega lítið auglýst þessa dagana enda er engu líkara en þjóðin liggi í öll- um frístundum yfir sjónvarpi eða videoi, milli þess sem hún talaríbílasíma. En þeir eru þó nokkrir til enn- þá sem kunna að meta úrvals hljómgæði og leggja talsvert á sig, bæði í tíma og peningum, til að nálgast þau tæki sem best þykja. Einn þeirra er Garðar Runólfsson. Klassík og argasta popp „Ég hlusta á alla tónlist, allt frá klassík upp í eða niður í argasta popp. Ég legg mest upp úr dýptinni og að hijómurinn sé sem líkastur því sem gerist í hljómleikasalnum." - Erþettaekkikostnaöar- samt? „Sjálfsagt væri það dýrt ef ég hefði keypt öll tækin í einu. Ég keypti þau hins vegar á löngum tíma. Þetta hefur þó verið markviss uppbygging hjá mér. Ég hef ekki verið að velta pen- ingunum fyrir mér, bara að ég .fengi bestan mögulegan hljóm." Fimm hundruð plötur - Hlustarðumikiðátónlist? „Ekki eins mikið og ég vildi gera. Ég hlusta kannski á eina til tvær plötur þegar ég kem heim úr vinnu, kannski þetta Dægradvöl 3-4 tíma á viku. Ég á einar fimm hundruð LP-plötur af ýmsu tagi og því er úr mörgu að velja. Svo_ er ég með kassettutæki og geislaspilara, en ég tel fæsta geislaspilara ná sömu hljóm- gæðum og bestu plötuspilara með vönduðum örmum og hljóðdósum." Garðar sagði að í rauninni hefði tækninni í hljómtækjum fleygt lítið fram síöustu 8-10 árin. „Það er helst að ódýru tækin séu að verða betri og betri, en það gengur flla að betrumbæta bestu tækin. Þess má til gamans geta að bestu magnaramir sem vitað er um eru lampatæki. Það eru framleidd örfá slík tæki ár- lega í Bandaríkjunum og þau eru fokdýr. Þó veit ég til þess aö hér á landi eru til eitt eða tvö tæki af þessari gerð. Eigendur þeirra eru líka með græjur sem kosta 1,5-2 milljónir króna.“ Snúrur og kaplar skipta máli Tækin hans Garðars eru svo sem ekki af verri endanum heldur. Magnarinn er af gerð- inni Electro companiel oginni í þvi setti er forformagnari, . formagnari og kraftmagnari. Plötuspilarinn heitir Logic, armurinn Syrinx og hljóðdós- inn AT1000. Og hátalaramir, sem em nýjustu tækin í sam- stæðunni, em af Quad-gerð. „Nú orðið kaupi ég sjaldan aukatæki. Ég er meira í því að lagfæra snúrur, tengi og kapla. Réttir hátalarakaplar hafa til dæmis meira að segja heldur en margt annað í græjunum. Og það er ekki sama hvernig tengin snúa. Það em fáir sem gera sér þetta ljóst en er þó satt enguað síður.“ Stranglers og píanókon- sertar - Hvemigvinnstþértímitil að hafa gagn af þessum tækj- um? „Ég er hvorki með video né Stöð 2. Það er ágætis lausn á vandamálunum. Og svo þolir konan þessa dellu mína prýði- lega og er mjög kröfuhörð á „sándið".“ - Hvaðhlustarðumestá? „Þegar ég kem heim úr vinn- unni finnst mér tilvalið að hlusta á klassíska rokkara, til dæmis Led Zeppelin eða Stranglers. Og ef ég er mikiá stressaður er ágætt að slaka á með einum góðum píanókon- sert,“ sagði Garðar Runólfsson. -ATA Garðar Runólfsson slakar hér á vlð að hlusta á tónlist í „græjunum" sínum. Sérstaka athygli vekja hátalararnir sem eru einna fyrirferðarmestir á myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.