Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Page 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988.
Atgewisflóttinn:
Þjóðhagsstofnun
hefur sett ofan
Þjóðhagsstofnun hefur sett ofan.
Atgervisflóttinn síðustu ár gerir
^petofnuninni miklu erfiðara að sinna
verkefnum sínm. Þetta er skoðun
stjórnmálamanna sem DV ræddi við
í gærkvöldi.
Forystumaður í stjórnarliðinu
sagði DV að menn hefðu verið yfir-
keyptir síðustu ár og því farið frá
stofnuninni. Þórður Friðjónsson,
forstöðumaður stofnunarinnar,
stæði sig vel en hann sæti uppi með
nýtt fólk sem réði ekki alveg við
vandann. Þá hefði fjármálaráðuneyt-
ið og Jón Baldvin Hannibalsson tekið
til sín fólk frá stofnuninni ög þar
ekki verið miklu til sparað. Þetta allt
skapaöi vandamál í stjórnsýslu.
Forystumaður í stjórnarandstöðu-
liðinu tjáði DV þá skoðun að einokun
i*6eðlabanka og Þjóöhagsstofnunar
um spár og meðferð gagna hefði lok-
ið með tölvuvæðingunni. Þóröur
Friðjónsson stæði sig ekki illa en í
Þjóðhagsstofnun hefðu áður fyrr
verið nokkuð margir sem hefðu haft
getu til að stjórna. Þeir væru komnir
annað, hefðu þar hlotið meiri völd
og hærri laun. Jón Sigurðsson hefði
sem forstöðumaður Þjóðhagsstofn-
unar ætlað að stjóma þjóðinni
gegnum stofnunina. Nú væri ekki
sama „drama“ við að vinna hjá Þjóð-
hagsstofnun.
' Annar stjórnarliði sagði að spár
Þjóðhagsstofnunar heföu oft reynst
illa en erfitt væri að spá hér á landi,
til dæmis um verðbólgu. Margir hjá
Þjóðhagsstofnun hefðu verið eftir-
sóttir i önnur störf og farið.
-HH
Verslunarmenn í
Hafharfirði felldu nýju
kjarasamningana
Á fundi í Verslunarmannafélagi
Hafnarfjarðar í gærkveldi voru nýju
kjarasamningarnir felldir. í at-
kvæðagreiðslu vom 81 á móti en 21
'^Vneð en 5 seðlar voru auðir. Að lok-
inni atkvæðagreiðslunni var verk-
fallsheimild samþykkt.
Það sem fólk setti fyrst og fremst
fyrir sig með samningana var dag-
vinnúkaupið en í samningunum ei
það frá 32.000 krónum á mánuði og
upp í 42.000 krónur eftir 10 ár hjá
afgreiðslufólki í verslunum.
-S.dór
Bílstjórarnir
aðstoða
*senDiBíutsTöÐin
LOKI
Kunna þeir ekki á áttavita
hjá Flugleiðum?
Karpov:
Karpov tilbúinn að tefla
á Akureyri í september
- nú er aðeins beðið eför því hvort fleiri tilboð berast í einvútið
Vaxandi líkur eru á því aö ein-
vígi þeirra Jóhanns Hjartarson og
Anatolys Karpov verði haldiö á
Akureyri. Nú er aðeins beðið eftir
þvi hvort fleiri tilboð berast í ein-
vígið en þaö sem þegar er komið
frá Akureyri, þar sem boðnir em
80 þúsund dollarar sem verðlauna-
fé og þykir gott. Að sögn Friðriks
Ólafssonar, skrifstofustjóra Al-
þingis, sem aðstoðar Akureyringa
varðandi tilboð þeirra í einvígið,
em Akureyringar tilbúnir að taka
viö einvíginu í lok ágúst og stæði
þaö þá fram í september. Og Frið-
rik segir að Karpov hafi ekkert á
móti því að tefla hér á þeim tíma
en hann var andvígur því að tefla
hér að vetri til.
Það sem nú stendur á er að beðið
er fleiri tilboða í einvígið. Orðróm-
ur hefur verið á kreiki um að bæöi
Spánverjar og Júgóslavar hafi
áhuga á að bjóða í einvígið en ekk-
ert ákveöið hefur komiö frá þeim.
Það nýjasta er aö Belgiumenn sýna
þvi nú aftur áhuga. Þess ber þó aö
geta að tilboð barst frá Belgíu í ein-
vígi Thnmans og Portisch og var
því tekið. Það era einhverjir nýir
aðilar þar í landi sem vilja bjóða í
einvigi Jóhanns og Karpovs.
Þá er vitað að ef viðunandi tiiboð,
fjárhagslega séð, berst frá Spáni
myndi Karpov vilja taka því þar
sem hann hefur alveg sérstakt dá-
læti á að tefla á Spáni enda hefur
honum alltaf gengið vel að tefla þar
i landi, allt fram aö einvíginu við
Kasparov í Sevilla í haust er leið
og er þó ekki hægt aö segja að hon;
um hafl gengið þar illa.
Þessa dagana stendur yfir fundur
í stjóm Alþjóðaskáksambandsins í
Dubai. Þar verða einvígismálin
rædd og svo gæö farið að ákveðið
yrði að taka tilboði Akureyringa í
einvígið. Á leiö sinni til Dubai kom
Campomanes, forseö sambands-
ins, við í Moskvu og ræddi við
skáksambandsmenn þar og bar
einvígi Jóhanns og Karpovs og til-
boð Akureyringa á góma. Úrslita í
málinu ætö að vera að vænta innan
skamms.
-S.dór
Verkfallsboðun
kennara ólógmæt
Verkfallsboðun Hins islenska
kennarafélags var í gær dæmd ólög-
mæt af félagsdómi. Ágreiningsefnið
var hvórt telja bæri auð atkvæði með
þegar dæmt er um hvort meirihluö
þeirra sem greiddu atkvæði hefði
verið samþykkur verkfallsboðun.
Við atkvæðagreiðslu í Hinu ís-
lenska kennarafélagi voru 464
samþykkir verkfallsboðun en 462 á
móö. Auðir seðlar vom 60.
í lögum um verkfallsboðun kenn-
ara segir að til þess að verkfalls-
boðun sé lögleg verði meirihluö
þeirra sem taka þátt í atkvæða-
greiðslunni að vera meömæltur
verkfallsboðun. Félagsdómur lítur
svo á að þar sem 60 skiluðu auðu í
þessu ölfelli hafi meirihluö þeirra
sem atkvæði greiddu ekki verið með-
mæltur verkfaflsboðun og því sé hún
ólögmæt.
Þar með er ljóst að ekkert verður
af verkfafli framhaldsskólakennara
á þessu skólaári og munu þeir aö
öllum líkindum bíða haustsins eins
og félagar í Kennarasambandi ís-
lands. -S.dór
Vandi Flugleiða:
Röng stefha
fra 1981
- segir Kristjana Milla
„Eför samdrátönn 1981 var fyrir-
tækið þanið út án þess að skoðað
væri hvort sú viðbót væri arðbær eða
ekki. Ef ekki hefði komið til þessarar
stefnu á síðastliðnum fimm árum þá
væri ástandið ekki svona slæmt,“
sagði Kristjana Milla Thorsteinsson,
stjómarmaður í Flugleiðum.
Boston Consulöng Group, banda-
rískt ráðgjafarfyrirtæki, kynnö
stjóminni í gær niðurstöður sínar úr
könnun á stöðu Norður-AÖantshafs-
flugsins. Að sögn Kristjönu er Ijóst
að segja verður upp starfsmönnum
og draga saman seglin vegna tap-
rekstrar á þessu flugi. „Þrátt fyrir
að menn hafi sífellt verið að taía um
mikinn launakostnaö hefur starfs-
mönnum verið fjölgað jafnt og þétt
frá 1981. Það má allt eins búast við
því að þessi fjölgun starfsmanna
gangi nú aftur.“ -gse
Þyria Landhelgisgæslunnar:
300 sjómflna flug efUr veikum sjómanni
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótö
veikan sjómann um borð í togarann
Svein Jónsson KE í gær. Togarinn
var staddur um 90 sjómílur vestur
af Snæfellsnesi eða um 150 sjómílur
frá Reykjavík. Óskað var eför aðstoð
um klukkan 21.30 og þyrlan fór frá
Reykjavík klukkan 22.25 og lenö aft-
ur í Reykjavík klukkan 1.10 eftir
miðnætö.
Mjög vel gekk að ná veika mannin-
um um borö í þyrluna. Læknir seig
niður í togarann og undirbjó sjúkl-
inginn. Þyrlan var aðeins 10 mínútur
yfir togaranum. Slæmt veður var,
norðaustan sjö öl átta vindsög. Þetta
er eitt lengsta flug þyrlunnar á haf
út eða samtals um 300 sjómílur.
-sme
Veðrið á morgun:
Austanátt
ogkalt
áfram
Á morgun verður ausflæg átt á
landinu og talsvert frost, einkum
norðanöl. Á Suðaustur- og Aust-
urlandi má búast við-snjókomu,
él verða á annesjum norðanlands
og norðantil á Vestfjörðum en
annars úrkomulíöð á Norður- og
Vesturlandi.
Eldur kviknaði í strætisvagni á biðstöð á Bústaðavegi í gær. Eldurinn kom upp i vél vagnsins. Vagninn varö fljótl
alelda að aftanverðu. Farþegar og bílstjóri'komust út úr vagninum áfallalaust. Vagninn skemmdist hins vegar mikið.
DV-mynd S