Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Page 29
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
29
Hinhliðin
„Er á fleygiferð
að leita mér
að konu/'
- segir hinn eldhressi Hermann Gunnarsson
Hermann Gunnars-
son þarf ekki að kynna
en um árabil hefur
hann verið einn vin-
sælasti og besti fjöl-
miðlamaður okkar.
Hermann stjórnaði,
sem kunnugt er, afar
vinsæluuL sjónvarps-
þætti, „A tali njá
Hemma Gunn“ og í
skoðanakönnunum
kom í liós að þátturinn
naut óhemjuvinsælda.
Hermann hefur nú
dregið sig í hlé og er á
leið erlendis þar sem
hann verður farar-
atióri í sumar á vegum
Utsýnar á Spáni. I dag
hélt hann reyndar tíl
Irlands með íslensku
keppendunum í
söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstöðva,
en Hemmi verður
kynnir fyrir Sjónvarp-
ið þegar keppnin fer
fram. Svör Hermanns
fara hér á eftir
Pullt nafn: Hermann Gunnarsson
Fæöingardagur og ár: Sportmódel
1946, bogamaöur.
Maki: Er á fleygiferö að leita mér
að konu.
Börn: Þrjú.
Bifreið: Bens 280 sport, 1984.
Starf: Fjölmiðlafrík.
Laun: Agæt, þakka þér fyrir.
Áhugamál: Fiölmörg og margvís-
leg, íþróttir og náttúrudýrkandi.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottói? Náði einni, en hef
alltaf verið sérlega óheppinn í spil-
um og líka i ástum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera ég sjálfur á ferð og flugi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Vakna snemma á morgnana.
Hinhliðin
Stefán Kristjánsson
Hvað er það neyðarlegasta sem
komið hefur fyrir þig? Það er efni
i heila bók.
Uppáhaldsmatur: Lambahryggur
með skorpu hjá mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: ísköld létt-
mjólk, þar hefur orðið á breyting.
Hvaða íslenskur íþróttamaður er
fremstur í dag? Þeir eru tveir, ann-
ars vegar Ásgeir Sigurvinsson og
hins vegar Einar Vilhjálmsson.
Uppáhaldstímarit: Ekkert sérstakt.
Fallegasta kona sem þú hefur séð:
Þær eru margar. Skotin í einni en
hún veit ekki af þvi, ég hef ekki
þoraö að hringja í hana. Þá eru þær
fóngulegar, Hófi og Anna Margrét,
þær eru alveg dúndurstelpur.
Hlynntur eöa andvígur rikisstjórn-
inni: Telst hlynntur henni.
í hvaða sæti hafnar ísland í hand-
knattleikskeppni ólympíuleik-
anna? Við verðum í 7. sæti.
í hvaöa sæti hafnar íslenska lagiö
í söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva? Það verður í tíunda
sæti.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Þessa konu sem ég þori
ekki að hringja L
Uppáhaldsleikari: Ómar, Laddi og
Bessi.
Uppáhaldssöngvari: Verðum að
halda okkur við valsarann Stefán
Hilmarsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaöur: Þor-
steinn Rálsson.
Hlynntur eða andvigur bjórnum:
Hlutlaus.
Hlynntur eða andvigur veru vara-
arhðsins hér á landi: Frekar
andvígur, en ef þeir verða til friðs
þá mega þeir vera hér.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð2? Ég horfi lítið á sjónvarp
en þó meira á Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar
Ragnarsson.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan var best en í dag er
jafntefli hjá henni og Stjörnunni.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Það var
Sigurður Sigurðsson en í dag er það
Ásgeir Tómasson.
Uppáhaldsskemmtistaður:' Hótel
Saga, Hótel ísland og Broadway.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Valur
og það kemur á óvart.
Að hverju stefnir þú á árinu? Halda
áfram að vera í góðu skapi og ferð-
ast mikið.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- ’
inu? Verð á Spánií sumar, Kóreu
og Kína í haust og eyði svo sum-
arfríinu á íslandi í rigningunni í
ágúst.
-SK
Akureyri
Félagsmálastofnun Akureyrar leitar að félagsráðgjafa
eða sálfræðingi til starfa nú þegar.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Nánari upplýsingar veita deildarstjóri ráðgjafardeildar
og félagsmálastjóri í síma 96-25880.
Félagsmálastjóri Akureyrar
FJÁRFESTINCARFÉIAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavik
AÐALFUNDUR
Fjárfestingarfélags íslands hf. árið 1988 verður hald-
inn á Hótel Holiday Inn fimmtudaginn 5. maí nk. kl.
16 DAGSKRÁ
1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr. sam-
þykkta félagsins
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á
fram á aðalfundi, skulu vera komnar
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi
síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Reikningar félagsins ásamt endan-
legum tillögum liggja frammi á skrif-
stofunni viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiða ber að vitja á skrifstofu
félagsins í Hafnarstræti 7, 4. hæð,
Reykjavík, þrjá síðustu daga fyrir að-
alfund og á fundardegi.
Stjórn Fjárfestingarfélags íslands hf.
ÓDÝR SUMARDEKK!
mGUMMiMHiisimifm
70 SERIES
MiÁk^xfHpdÉát
‘öbSH
’;4
J85SH
’feb 'J.
175/70 SR 1
185/70 SR 1
13
___________13
185/70 SRJ£
14
14
195/70 SR
205/70 SR
VERÐ m/söluskatti
2015
2220 -
2265
2385 -
2775 -
3040
2940 -
2845 -
2930, -
3010
185/60 SR 14
195/60 SR 14
205/65 SR ib
3325 -
3600-
4200, -
4515
4840
Réttarháls 2 • Skipholt 35