Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988. Fréttir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra: Ræddi um niðurféllingu vegabréfs- áritana og plútóníumflutninga - hittir Reagan í dag Ólafur Amarson, DV, Washington; Þorsteinn Pálsson forsætisráö- herra sagði í samtali við DV eftir fund sinn með John Whitehead, varautanríkisráðherra Bandaríkj- anna, að þeir hefðu rætt almennt um samskipti íslands og Bandaríkjanna og varnarmál sem væru umfangs- mest í samskiptum ríkjanna. Einnig hefði verið minnst á viðskiptamál og menningarmál. „Ég tók líka upp málið um vega- bréfsáritanir íslendinga til Banda- ríkjanna. Ég óskaði eftir því að Bandaríkjamenn tækju það til athug- unar að fella þessa kröfu niður. Varautanríkisráðherrann sagði að Bandaríkjamenn væru að gera til- raun með að falla frá þessu ^ritunar- kerfl og þegar hefðu verið gerðar breytingar í tilraunaskyni gagnvart Bretum sem er fyrsta þjóðin sem ekki þarf vegabréfsáritanir. Þeir ætla að halda þessari tilraun áfram og færa hana út og ráðherrann sagðist ætla að gera sitt besta til að íslandi yrði hið fyrsta bætt á listann yflr þau lönd sem ekki væri krafist vega- bréfsáritunar frá. Ég er því vongóður um að ekki hði mjög langur tími þar til breytingar verði á í þessum efn- um. Ég tók einnig sérstaklega fyrir málið um flutninga á plútóníum frá Evrópu til Japan. Þetta mál var sem kunnugt er rætt á Alþingi i vor. Whitehead sagði að þær fréttir, sem hefðu valdið þessum umræðum, hefðu verið á misskilningi byggðar. Það hefðu engar ákvarðanir verið teknar ennþá um flutninga af þessu tagi og þá heldur ekki með hvaða hætti þeir yrðu ef til kæmi. Hann fullvissaði okkur hins vegar um að það yrði ekki farið fram á að flytja plútóníum yfir íslenskt yfirráða- svæði,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagði að á fundi sínum með Reagan í dag yrði viðstaddur sérstakur viðskiptafulltrúi forsetans og að það væri af sérstakri ósk sinni. Aðspurður sagði Þorsteinn að ekki stæði til af hálfu íslenskra stjórn- valda að fara fram á fríverslunar- samning við Bandaríkin í líkingu við þann samning sem Bandaríkin og Kanada hefðu gert. Hins vegar væri staða okkar íslendinga sú að mjög mikilvægt væri fyrir okkur að tryggja okkar markaðsstöðu bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. „Við get- um ekki einangrað okkur og horft aðeins í eina átt og þess vegna þurf- um við, jafnframt því sem við horfum á þetta verkefni gagnvart Evrópu- bandalaginu, að byrja aö ræða þessi efni við Bandaríkjamenn. Fyrsta verkefnið er að horfa á hvaða þættir koma helst til álita og skoða síðan málin út frá því,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Þorsteinn sagðist hafa'tjáö White- head að íslenska ríkisstjómin teldi það mjög mikilvægt að samningur Islands og Bandaríkjanna um vís- indahvalveiðar yrði varinn af krafti og þar færu sameiginlegir hagsmun- ir ríkjanna. „Samskipti íslands og Bandaríkjanna eru með mjög góðu móti nú og okkur hefur tekist að leysa ágreiningsmálin, sem komið hafa upp á undanförnum árum, með samningum," sagði Þorsteinn Páls- son forsætisráðherra. • í dag mun Þorsteinn, eins og áður segir, eiga fund með Reagan Banda- ríkjaforseta og snæða með honum hádegisverð í Hvíta húsinu. Eftir hádegi mun Þorsteinn eiga fund með utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings og drekka síðdegis- kaffi í þinginu. Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra og föruneyti hans kom til Washington í gær og tók John Whitehead varautan- rikisráðherra á móti Þorsteini við Washingtonminnismerkið i fjarveru George Schultz. Þorsteinn ræðir við Reagan í dag og verður þar rætt um samskipti ríkjanna, einkum viðskiptamál, mennta- og menningarmál og vestræna samvinnu. DV-mynd Ólafur Arnarson Heimsókn Þorsteins hafín: Dvelst á forsetasvrtu Madisonhótelsins Ólafur Amarson, DV, Washington: Washingtonborg skartaði sínu feg- ursta þegar Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra, eiginkona hans, Ingi- björg Rafnar, og föruneyti þeirra komu til borgarinnar síðdegis í gær. Heiðskírt var og hitinn um 35 gráður. Flugvélin, sem flutti íslensku gest- ina frá New York til Washington, lenti á Andrews-herflugvellinum klukkan 15.45. Þaðan var farið með þyrlum inn í borgina og lent fyrir framan Washingtonminnismerkið. Þar tók á móti Þorsteini John White- head, varautanríkisráðherra Banda- ríkjanna, en Shultz utanríkisráð- herra var erlendis. Frá Washingtonminnismerkinu var ekið að Madisonhótelinu, skammt frá Hvíta húsinu, en þar mun forsætisráðherra dvelja meðan á heimsókn hans stendur. Strax eftir komuna á hótelið átti Þorsteinn einn- ar klukkustundar fund með White- head og ræddi viö hann um þau mál sem helst munu verða rædd í þessari opinberu heimsókn. Madisonhótel er eitt elsta og viröu- legasta hótel Washingtonborgar. Þar dvelja erlendir þjóðhöföingar gjam- an þegar þeir sækja Bandaríkjafor- seta heim. íslensku forsætisráð- herrahjónin búa í forsetasvítu hót- elsins sem er á efstu hæð. Fyrr í sum- ar dvaldi Svíakonungur á hótelinu og á meðan á leiötogafundinum stóð í desember síðastliðnum, lögöu Sov- étmenn hótelið undir sig að mestu. Eigandi hótelsins heitir Marshall B. Coyne. Er hann mikill íslandsvin- ur og hefur mörg undanfarin ár kom- iö árlega til íslands til laxveiða, nú síðast í sumar. íslenskur lax er á matseðli hótelsins. Veiðin i holli Karls Bretaprins i Kjarrá gengur ágætlega og eru komnir á land á stangirnar sjö á milli 25 og 30 laxar. Á mynd Kristjáns Ara sést islenskur leiðsögumaður horfa á Ijósmyndara DV og er vinkona Karls, ein rikasta kona í Bretlandi, i veiðistaðnum Runka að veiða með flugu. Þetta er eina myndin sem hefur nást á þessum sióðum á síðustu dögum. Karl var við veiðar innar i ánni. DV-mynd KAE/ G. Bender Kvennaráðstefiian í Osló: Björg Eva Eitendsdóttir, uv, Norska menningamefndin, sem stóö aö undirbúningi fyrir ráðstefnuna í Osló, þáði fjárfram- lög frá vopnaverksmiðjum til þess að halda flugeldasýningu á ráð- stefnunni. Það var nefndin sjálf, undir forystu norskrar stórþings- konu, sem sneri sér til vopnafram- leiöenda til að biðja um peninga. Þtjár verksmiðjur urðu viö beiðn inni og þáði menningamefndii íjárframlög frá tveimur þeirra et afþakkaði peninga frá sænska fyr irtækinu Bofors sem nú er umdeil fyrir ólöglega vopnasölu. Öðrun þátttakendum á kvennaráöstefh unni var ekki kunnugt um að und irbúningsnefndin heföi þegið fjár framlög frá vopnaframleiðendum. A tæpri klukkustund, síðdegis i gær, slösuðust átta manns i þremur um- feröarslysum á um kilómetrakafla í Ártúnsbrekkunni í gær. Einn árekstur varð á mótum Höfðabakka og Vesturlandsvegar. Fernt var flutt á sjúkra- hús. Neðar i Artúnsbrekku var ekið aftan á bifreið. Frá þeim árekstri var þrennt flutt á sjúkrahús. Skömmu síðar missti ökumaður stjórn á bifreið sinni og ók á Ijósastaur. Hann var fluttur á sjúkrahús. Sex af þeim átta sem slösuðust í þessum umferðaróhöppum munu ekki hafa slasast alvarlega. DV-mynd S/-sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.