Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
3
Fréttir
Norður-Múlasýsla:
Enginn sótb' um sýslumannsembættið
„Það sótti enginn um sýslumanns-
embættið en umsóknarfrestur rann
út 5. ágúst. Ég veit ekki hvað veldur
eða til hvaða ráða verður gripið en
varla verður auglýst aftur alveg á
næstunni," sagði Skúli Guðmunds-
son, fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu.
1. september lætur Sigurður Helga-
son af embætti sýslumanns Noröur-
Múlasýslu og bæjarfógetans í Seyöis-
firði. Eins og fram kom hjá Skúla
sótti enginn um að verða arftaki Sig-
urðar og er þetta annað embættið á
vegum dómsmálaráöuneytisins á
stuttum tíma 'þar sem enginn um-
sækjandi fæst. Enginn sótti um stööu
bæjarfógetans á Olafsfirði í apríl og
var þá Elías Elíasson, bæjarfógeti á
Akureyri, settur til að gegna stöð-
unni fram til 1. september. Er búist
við aö ráðherra setji einhvem í starf
sýslumannsins í Norður-Múlasýslu
fyrst í stað en síðan verði starfið
auglýst aftur.
-JFJ
Prestarnir á kirkjutröppunum eftir vígsluna. Frá vinstri Hulda Hrönn Helga-
dóttir, Hrísey, Yrsa Þórðardóttir, Hálsi, Fnjóskadal, Ragnheiður Erla, Örn
Friðriksson prófastur, Björn Jónsson, Staðarfelli, Ljósavatnshreppi, og Ingi-
mar Ingimarsson, Þórshöfn. DV-mynd Hólmfríður
Ragnheiður Erla vígð
prestur á Raufarhöfn
Hóbnfriður Friðjónsdóttir, DV, Eaufarhöfn:
Síðastliöinn sunnudag var séra
Ragnheiður Erla Bjarnadóttir sett í
embætti sóknarprests hér í Raufar-
hafnarprestakalli. Það var Örn Frið-
riksson prófastur sem setti hana í
embætti. Kirkjan var fullsetin.
Sóknarprestur hefur ekki setið hér
á Raufarhöfn síðustu tvö árin en
sókninni hefur þjónað séra Sigurvin
Elíasson, prestur á Skinnastað.
í samtalivið DV kvaðst Ragnheiöur
hlakka til að takast á viö hið nýja
starf og hafa hugsað sér meðal ann-
ars að beita sér mjög í æskulýðsmál-
um og starfrækja sunnudagaskóla.
Eftir vígsluna var skírnarathöfn og
var það fyrsta skírn Ragnheiðar.
Unnur, sem er dóttir Lilju Björns-
dóttur og Jóns Ómars Finnssonar,
var skírð.
Að lokinni messu var haldið kaffi-
samsæti í boöi sóknarnefndar á Hót-
el Norðurljósum.
EskiQöröur:
Úrhelli olli skemmdum á húsi
Mikið úrhelli var á Eskifirði í
fyrrakvöld og aðfara’nótt þriðju-
dags. Við það skolaðist laust vega-
vinnuefni til og stíflaði ræsi. Þá virð-
ist yfirþrýstingur hafa komið á frá-
rennshskerfið þannig að flæddi upp
um niðurföll í einu húsi. Vegna
vatnsgangsins óttuðust menn að
fleiri óhöpp yrðu. Voru björgunar-
sveit og starfsmenn Vegagerðar því
í viðbragðsstöðu fram eftir nóttu.
Ekki urðu fleiri umtalsverðar
skemmdir en mikill aur er á götum.
-hlh
HÖRPU ÞAKVARI
LÆTUR EKKI ÍSLENSK
VEÐUR Á SIG FÁ
Einstakt veðrunarþol.
Ljósþolin litarefni.
Auðveldur og léttur í notkun.
Fjölbreytt litaval.
HAFÐU VARANN Á
Með HÖRPU þakvara er fátt sem
þakið ekki þolir.-
HARPA gefur lífinu lit!
HAGKAUP Á SELTJARNARNESI
A morgun kl. 9 opnar Hagkaup
MATVÖRUMARKAÐ
við Eiðistorg á Seltjarnarnesi.
HAGKAUP
Seltj arnarnesi