Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988. 31 Mikið gengið í unglingavinnimm „Viö ferðumst nú aðallega í strætó eða göngum bara,“ sögðu þeir ein- róma ísak og Geir, 14 og 16 ára. En hjóla krakkar á ykkar aldri ekki mikið? „Nei, það eru nú oftast krakkar sem eru tólf ára og yngri. Annars eru auðvitað súmir sem hjóla. Og svo strætó. En ég þarf mikið að ganga í unglingavinnunni, hún er úti um all- an bæ,“ sagði Geir. - Ætlið þið að halda áfram að ganga og taka strætó? Nú urðu þeir dálítiö dularfullir á svipinn félagarnir. „Ja, sko, maður sér nú til kannski með bíl. Þeir eru alltaf að verða ódýrari og ódýrari. Ætli maöur kaupi ekki bíl.“ Aður en um það var spurt, var þetta leyndarmál. Nú kepptust þeir hvor um annan þveran að skeggræða ferðamáta framtíðarinnar í sínu lífi. Hér var eitthvað til að hugsa um. Og fyrirmyndir? Þær eru nægar. Góðar sem ... Lífsstm Sé eftir að hafa ekki tekið bílpróf A Lækjartorgi varð á vegi DV Guðbjörg Björgvinsdóttir - fót- gangandi á leið í strætó. Hennar beið enginn bíll á bílastæði. Hún var að versla. „Ég hef ekki bílpróf en sé nú svo- lítið eför því að hafa ekki tekið það. Annars fælir umferöin mann frá sér. Mig langar ekkert núna að taka bílpróf. Fyrir skömmu var ég úti á Ítalíu. Þar er nú aldeilis mikil traffik - en engin slys. Furðulegt aö hér sé ekki betur að málum stað- ið. Framúrakstur, hraði og annað gerir að verkum að hættur skap- ast.“ - Ferðast fólk úr þinni íjölskyldu á bfl? „Já, flestir ef ekki allir. Mér finnst að krakkar séu nú of ungir til að fá að taka bílpróf. En ég fer allra minna ferða um nágrennið heima fótgangandi. En svo kemur maöur svo oft í bæinn. Aðallega til að versla fyrir börnin og skoða mig um. Þá fer ég í strætó." - ,Eg kem í bæinn og versla fyrir börnin,“ sagði Guðbjörg Björgvinsdóttir. Helga Lára, níu mánaða, á leiðinni heim með hjólapabba, Grétari Helgasyni Ekki keyrður svo glatt niður Grétar Helgason úrsmiður bæði vinnur og býr í miðbænum. Hann hefur notað reiðhjól í áraraðir bæði heima og erlendis. Börn eru engin fyrirstaða. Hann hjólar með þau jafnt sem sjálfan sig. Helga Lára, níu mán- aða dóttir hans, sat alsæl í barna- stólnum þegar pabbinn ræddi við ■ DV. „Já, viö hjónin fórum stundum út að hjóla með börnin, alveg eins og aðrir fara í sund. Stelpurnar eru mjög ánægöar með það. Sú elsta hjól- ar með á sínu hjóli á gangstéttinni. Það er ágætt fyrir þá sem búa í bæn- . um að hjóla. Þetta er svona „tran- sport“ með börnin á leikskóla og í vinnuna. Og umferöin, þó að hún sé mikil verður maður ekki keyrður svo glatt niður.“ - Hvernig er með brekkurnar í mið- bænum? Jú, ég teymi hjólið oft með annarri hendi. Það er auðvelt. Og svo er miklu huggulegra að láta sig renna niður Bankastrætið í staðinn fyrir að ganga. Það er líka áhugav.ert að svo virðist sem yfirvöld séu að gefa hjólreiðamönnum meiri gaum. Við Breiðholtsbrautina t.d. hefur verið gerður ljómandi stígur. Þó aö það sé ekki auðvelt að hjóla í bænum er þetta allt í áttina. Getum nú hætt við strætó Tómas Sigurðsson og Lárus Helgason eru piltar sem um þessar mundir eru að fá bílpróf., ,Það kem- ur ekkert annað til greina en að fá sér bfl,“ sögðu þeir. „Og keyra á löglegum hraða að sjálfsögðu," sagöi Tómas, Drengirnir voru frekar fáorðir um málefni dagsins. Aðalatriðiö 1 þeirra huga var aö geta keyrt um bæinn á bíl. „Nú þarf ekki að taka strætó lengur, þegar maður er bú- inn að fá próf,“ sagði Lárus. Og Tómas bætti því viö að bflarnir mættu bara vera færri - þá væri betra aö athafna sig á götunum. Hjá fjölskyldu Lárusar eru tveir bílar. Það þykir sjálfsagt Bílleysi er óþægilegt orð fyrir marga. „Þaö kemur ekkert annað til greina i an aldur,“ sögöu þeir Tómas og Lárus. „Yfirleitt sérðu gamalt fólk og krakka i strætó. í mesta lagi konur. Karlmenn á mínum aldri sjást ekki. Þeir eru á bilum,“ sagði Valgerður Halldórsdóttir. Hjólum, göngum eða keyrum Þau voru upptekin við að skoða banana, mæðginin Valgerður Hall- dórsdóttir og sonur hennar, Friðrik. Skyldu þau vera á bíl sem þau hefðu lagt einhvers staðar í nágrenninu? Eða voru þau nýkomin úr strætó eða þara á tveimur jafnfljótum? Blaða- maður giskaði á „bílkostinn" áður en þau voru spurð? „Viö komum með strætó. Annars værum við á hjóli núna ef veðrið væri betra,“ sagði Valgerður. „Ann- ars þarf auðvitað að ganga heilmikið ferðist maður með strætó. En í vest- urbænum, þar sem viö búum, hjólum við mikið. Börnin fara í strætó og fá fjölskyldubílinn stundum lánaðan. Dóttir mín hjólar nú reyndar alltaf í vinnuna og tekur svo strætó á vet- urna.“ - Vinir ykkar og kunningjar, hvernig ferðast þeir á mflli? „Yfirleitt í bílum verð ég að segja. í þessari geggjuðu og ruddalegu um- ferð. Og ef þú ferð í strætó þá sérðu yfirleitt gamalt fólk og krakka og í mesta lagi kvenfólk. Karlmenn á mínum aldri sjást ekki í strætó. Frek- ar konur með börn, karlarnir eru á bílnum í vinnunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.