Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988. IþróttLr 0 Ingvar Guðmundsson. Ingvar frá í mánuð Ægir Már Karaaon, DV, Sudumesjum Ingvar Guðmundssqn, leikmað- ur meö 1. deildar hði ÍBK í knatt- spyrnu, mun ekki leika né æfa meö liði sínu á næstunni. Ingvar var skorinn upp viö botnlanga- bólgu á dögunum og veröur frá æfingum og keppni næsta mán- uðinn a.m.k. Ingvar hefur leikið mjög vel í vörn Keflavíkurliösins þannig að það er mikill missir fyrir liðið að vera án hans í næstu leikjum sem verða rnjög mikilvægir því Kefl- víkingar eru í botnbaráttu 1. dehdar. Stúfar frá Englandi Jakob Þór Harakisson, DV, London: • Grahara -Taylor, fram- kvæmdastjóri Aston Viha, hefur sett markakóng hðsins í fyrra, Warren Aspinah, á söluíista. Ástæðan er sú að Aspinall var rekinn af leikvelli í æfingaleik gegn St. Mirren fyrir skömmu, braut á mótherja þegar boltinn var ekki nálægt. Taylor sagöi að hann hefði áður aðvarað sína menn um að þeir lytu ströngum aga og aö þolinmæði sín gagnvart Aspinall væri á þrotum, hann læröi greinilega aldrei af eigin mistökum. • Colin Harvey, framkvæmda- stjóri Everton, sem hefur þegar eytt 4,7 miHjónum punda í leik- menn í sumar, hugar nú að því að kaupa vamarmann í staðinn fyrir Pat Van Den Hauwe sem á við slæm meiðsli að stríða. • Norski pUturinn, Claus Eflewaag, æfir þessa dagana með Liverpool. Kenny Dalghsh fram- kvæmdastjóri er filbúinn tU að greiða 250 þúsund pund fypir strák ef hann stendur sig vel. • George Graham, fram- kvæmdastjóri Arsenal, er í öng- um sínum yfir því aö hafa ekki nælt í Tony Cottee frá West Ham. Hann réð ekki við kaupverð og launakröfur Cottees sem fór fil Everton fyrir metupphæð, 2,2 mUljónir punda. • Newcastle hefur keypt fjóra leikmenn fyrir 2 mihjónimar sem félagið fékk fyrir að selja Paul Gascoigne til Tottenham. Það eru David Beasant og Andy Thorn frá Wimbledon, John Robertsson frá Hearts og John Hendrie. • Nico Claesen, belgíski lands- liðsmaöurinn, kennir Terry Venables, framkvæmdastjóra Tottenham, um hve Ula honum gekk hjá enska félaginu. „Ég lék ekki illa meö Tottenham, þaö er ekki slakt að skora 12 mörk í 18 leikjum, en það kostaði mig landsliössæti að fara til Eng- lands,“ segir Claesen. Hann er mjög ánægður hjá sínu nýja fé- lagi, Antwerpen, og skoraði bæöi raörk liðsins er það gerði jafn- tefli, 2-2, við Real Madrid í æf- ingaleik fyrir skömmu. Archibald fór ti| Hibemian - Steve Hodge hætti við Forest Jakob Þór Haraldsson, DV, London: Steve Archibald gekk í gær til liðs við skoska liðið Hibernian frá Edin- borg. Fleiri lið höfðu áhuga á Arc- hibald og má þar nefna Dundee Un- ited og Liverpool. Archibald var laus frá Barcelona fyrir tíu dögum síðan. Kenny Daglish bauð Archibal tveggja ára samning en Hibernian þriggja ára og fannst Archibald það skárri kostur. Archibald verður einn af sex launahæstu leikmönnunum í skosku knattspyrnunni í vetur. Archibald sagði eftir undiskrift samningsins í gær að hann vonaðist eftir því að þessi skipti leiddu til áframhaldandi velgengi. Archibald verður 32 ára í næsta mánuði. Hann gekk til liðs við Tottenham frá Aberdeen fyrir 800 þúsund pund 1980, fór svo til Barcelona í júní 1984 fyrir um eina milljón punda. Arci- bald vegnaði ágætlega fyrstu tvö árin hjá Barcelona en hann var settur til hliðar þegar Gary Lineker var keypt- ur til liðsins 1986. Steve Hodge hætti við að fara til Nottingham Forest Snemma í gær komust Tottenham og Nottingham Forest að samkomu- lagi um að Steve Hodge færi til Nott- ingham Forset og var kaupverðið ákveðið 570 þúsund pund. Seint í gærkvöldi gekk salan að öllum óvör- um til baka. Umboðsmaður Steve Hodge, Alan Baines, sagði í gær- kvöldi að Hodge fengi ekki nógu mik- ið út úr samnignum og því hafi ekk- ert orðið af samningum að þéssu sinni. Valur enn í úrslit - fimmta áriö 1 röð í bikarkeppni kvenna Valsstúlkur tryggðu sér rétt til að leika til úrshta í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu fimmta árið í röð er þær lögðu KR-stúlkur að velli í gær- kvöldi á Hlíöarenda, 3-0. Þaö voru Valsstúlkur sem tóku leikinn strax í sínar hendur og réðu gangi leiksins allt frá upphafi til enda. Fyrsta markið kom eftir vel útfærða sókn á 20. mínútu. Ingibjörg Jónsdóttir lék upp að endamörkum og renndi boltanum út á Magneu Magnúsdóttur sem þakkaði pent fyr- ir sig og renndi boltanum framhjá Karólínu Jónsdóttur, markmanni KR. Sókn Valsliðsins þyngdist með hverri mínútunni sem leið og annað markið kom fimm mínútum seinna. Magnea skaut fostu skoti frá vítatei'g sem Karólína hélt ekki og Bryndís Valsdóttir fylgdi vel á eftir og skor- aði úr þröngu færi. Enn ein stórsóknin hjá Val, tveim- ur mínútum fyrir hlé. KR-stúlkur náðu að hreinsa frá marki en ekki tókst betur til en svo að þær gáfu boltann beint á Coru Barker sem tók hann skemmtilega niður og þrumaði frá vitateig og knötturinn lá í netinu. Seinni hálfleikur var rólegur, bæði liðin slökuðu á og.sigur Vals var aldrei í hættu. Á morgun spila Stjarnan og ÍA í hinum undanúrshtaleiknum á Stjörnuvehi og hefst leikurinn kl. 19. -MHM Grindavík slapp - vann Njarövík og Einherji lagöi Sindra Grindvíkingar voru heppnir að sigra botnlið SV-riðils 3. deildar, Njarðvík, 2-1, í Grindavík í gær- kvöldi. Júhus Pétur Ingólfsson skall- aði í mark Njarðvíkinga eftir að Ólaf- ur Birgisson hafði varið frá honum vítaspyrnu. Kristinn Guðbjartsson jafnaði með fahegu marki en Páll Björnsson kom Grindavík yfir með skallamarki fyrir hlé, 2-1. Jón Otti Jónsson, markvörður Grindvíkinga, varði síðan vítaspyrnu frá Hauki Jóhannessyni. Grindvíkingar eru nú efstir með 31 stig en Stjarnan er með 29 stig og á leik til góða. • Einherji vann öruggan sigur á Sindra, 4-1, í NA-riðhnum á Vopna- firði í gærkvöldi. Einherji er því í efsta sæti á ný með 20 stig en Reyn- ir, Árskógsströnd, er með 19 og Þrótt- ur, Neskaupstað, 17. Viöar Sigurjóns- son gerði 2 marka Einherja, Hall- grímur Guðmundsson og Njáll Eiðs- son eitt hvor. Hermann Stefánsson svaraði fyrir Hornfirðinga sem sitja á botninum sem fyrr. • Reynir frá Árskógsströnd vann Hugin, 2-1, á Seyöisfirði um helgina. Halldór Róbertsson skoraði fyrir Hugin en Heimir Bragason og Grétar Karlsson fyrir Reyni. -ÆMK/MJ/VS Þrenna frá Ólafi - og Hveragerði feti frá úrslitasæti Hvergerðingar eru feti frá úrshta- keppni 4. deildar eftir 4-0 sigur á Fyrirtaki í gærkvöldi. Ólafur Jósefs- son skoraði 3 markanna og Jóhannes Björnsson eitt. Hveragerði þarf nú að vinna botnlið B-riðil§ins, Létti, til að tryggja sér úrshtasætið. Ármann vann Skallagrím, 4-0, á gervigrasinu og á möguleika ef Hver- gerðingum hlekkist á. Hveragerði er með 29 stig en Ármann 28. Gústaf Alfreðsspn gerði 2 marka Ármanns, Konráð Ámason og Ingólfur Daníels- son eitt hvor. Hvatberar unnu Víking frá Ólafs- vík, 2-0, á Seltjamamesi með mörk- um Hafþórs Aðalsteinssonar og Gunnlaugs Jónssonar. í Keflavík unnu Hafnir Létti, 5-1. Valdimar Óskarsson kom Létti yfir en síðan skoraði Ari Haukur Arason 2 mörk fyrir Hafnir og Bjami Kristjánsson, Gunnar Björnsson og Heiðar Reynis- son eitt hver. • Sigurður Hahdórsson skoraði 4 mörk þegar Augnablik vann Ægi, 6-4, í A-riðlinum í gærkvöldi. Hann hefur því gert 22 mörk alls í deildinni í sumar. Viðar Gunnarsson og Vilm- ar Pétursson skoruðu einnig fyrir Kópavogsliðið en Kjartan Helgason 2, Sigurjón Birgisson og Sveinbjörn Ásgrímsson gerðu mörk Ægis. Á sunnudag vann Snæfell Árvak- ur, 3-0, á gervigrasinu, Rafn Rafns- son skoraði 2 mörk og Bárður Ey- þórsson eitt. • Bolungarvík vann Geislann, 2-0, í lokaleik C-riðils. Sigurður Guö- finnsson og Ólafur Guðmundsson skoruðu mörkin. -ÆMK/RR/VS • íslendingar lágu óvart fyrir Frökkum í vináttulandsleik þjóðanna í borginni Troye ir getu í leiknum. Á myndinni sést Jakob Sigurðsson skora gegn Svíum á Spánarmótim Vináttulandsleikur gegn Frakklai Hneisa íTi - íslendingar lágu fyrir Frökkum, 22-20, í Jón öm Guðbjartsson, DV, Troyes: Það verður að segjast sem er að íslenska landsliðið átti aldrei möguleika gegn frískum Frökkum í íþróttahöllinni hér í Troyes. Það var þó ekki styrkur Frakka sem réð úrslitum þótt þeir næðu að svara sóknarleik íslendinga méð ágætum lengst af. Það var áhugaleysi íslensku piltanna og skortur á einbeit- ingu sem gerði þennan mun á liðunum. Frakkar börðust af krafti á sama tíma og íslendingar ætluðu að sigurinn fengist án þess að leikurinn yrði spilaöur. Leikgleðin, baráttan og krafturinn sást ekki Það er ljóst að leikmenn íslands verða að gera sér grein fyrir því að staða liðs- ins í dag í handboltaheiminum er ekki fengin baráttulaust. Leikgleðin, baráttan og krafturinn hefur skapað íslendingum nafn í alþjóðlegum handknattleik, þessir þættir hafa meöal annarra skotið liðinu upp á stjörnuhimin handknattleiksins. Það er því ljóst að ef þessa hluti skortir veröur ekkert annað úr en áfall. Menn verða alltaf að leggja sig 100% fram Leikurinn gegn Frökkum í gærkvöldi er sjálfsagt einn af þeim sem menn vilja helst líta fram hjá en það má aldrei verða. Lejkmenn íslenska liðsins verða að rýna í kjöhnn á þessari viðureign og skoða hvað fór í vaskinn.. Ef íslenska liðið ætlar sér sess á ólymp- íuleikum má það aldrei gleymast að leik- ur vinnst ekki þrautalaust. Við munum mæta lágt skrifuðum þjóðum á ólympíu- leikum en í keppni dugir ekki að skoða pappírana. Menn verða ávallt að leggja sig fram í leik hundrað prósent og viður- eignin í gærkvöldi er ágætt dæmi um hvernig kann að fara ef menn nýta ekki þekkingu sína og getu og gera allt annað en að berjast. Guðmundur Hrafnkelsson mark- vörður sá eini sem stóð upp úr Það var aðeins einn maður sem stóð upp úr íslenska liðinu í gær. Guðmundur Hrafnkelsson markvörður bjargaði oft vel og stóð sig með mikihi prýði er hann fékk tækifærið. Flestir aörir leikmenn íslenska hðsins spiluðu ver en iha. í franska liðinu var örvhenta skyttan Philippe Debureu atkvæðamikil en gerði mýmörg mistök. Markverðir liðsins vörðu einnig vel á stundum og samsph markvarða og varnar var jafnan vel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.