Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Úflönd
Leiðtogi Panama, Manuel An-
tonio Ortega hershöfðingi, var
harðorður i garð Bandarikjanna
í opinberri heimsókn sinni til
Panama. Símamynd Reuter
Forseti Nicaragua, Daniel Or-
tega, ræddi við leiðtoga Panama,
Manuel Antonio Noriega, í gær í
opinberri heimsókn sinni til Pan-
ama.
Ortega var harðorður í garö
Bandaríkjamanna sem hafa
reynt að stuðla að því aö hann
afsali sér völdum í Nicaragua og
kallaði Bandaríkin „konung
hryðjuverkamannanna“. Þetta
var andsvar Ortegas við ásökun-
um bandaríska utanríkisráð-
herrans, George Shultz, sem kall-
aöi Ortega konung eiturlyíjasal-
anna.
Bandaríkjastjórn lagði fram
kæru á hendur Ortega og sakaöi
hann um að versla með eiturlyf.
Ortega var fundinn sekur í
bandarískum réttarsal, aö hon-
um fjarverandi að sjálfsögðu, í
febrúar sl.
Þingmaður repúblikana í
Bandaríkjunum mun í dag leggja
fram frumvarp um að ógilda sam-
komulag Bandaríkjanna og Pan-
ama frá árinu 1977 en í því er
gert ráð fyrir að Bandaríkin af-
sali j'firráðum yfir Panáma-
skurði til stjórnvalda í Panama
árið 1999. Þingmaðurinn sagöi að
ekki væri víst að bandarísk skip
fengju aðgang að skurðinum eftir
að Panama tekur við yfirráðum.
Keuter
Uppþot á her-
teknu svæðunum
Róstur á herteknu svæðunum
brutust út í morgun þegar upp-
reisn Palestinumanna hefúr sinn
níunda mánuð. Palestínumenn
efndu til verkfalla til að minnast
þessara timamóta.
Samkvæmt upplýsingum Pal-
estinumanna lét ungur Palest-
ínumaðm- lífið af völdum byssu-
skots þegar ísraelskum her-
mönnum og mótmælendum lenti
saman í Kalkilya á vesturbakk-
anum. Tuttugu og fimm Pal-
estínumenn til viöbótar særðust
í átökunum. Yfirvöld í ísrael
segja að drengurinn hafi ekki
verið skotinn til bana.
Alls hafa 249 Palestínumenn og
fiórir ísraelar látiö lífið á þeim
níu mánuðum sem róstumar
hafa staðið.
í gær gerðu ísraelar loftárás á
palestínska útvarpsstöð í Líban-
on sem yfirvöld segja að hafi
hvatt til uppþota. Samkvæmt
talsmönnum Líbanons létust þrír
í árásinni sem er sú þrettánda
sem ísraelskir hermenn gera á
skotmörk innan Líbanon á þessu
dri. Reuter
Aðstoð til bænda
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
hefur samþykkt 3,9 milljarða
dollara aðstoð til bænda í Banda-
ríkjunum sem farið hafa illa út
úr þurrkunum sem ríkt hafa í
miövesturríkjunum síðustu vik-
ur. Öldungadeildin samþykkti
fmmvarpið á mánudag.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti hefúr lofað undirskrift sinni
á frumvarpiö sem allra fyrst.
Reuter
Samkvæmt skoðanakönnunum í forsetaframbjóðandaefni repúblik- nokkuð á forskot Michael Dukakis,
Bandaríkjunum hefur George Bush, ana til forsetakosninga í haust, unnið forsetaefnis demókrata.
George Bush, forsetaframbjóðandaefni repúblikana, hefur'unnið nokkuð á forskot Michael Dukakis, forsetafram-
bjóðanda demókrata, í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum. Símamynd Reuter
Dukakis haföi 17 prósent forskot á
Bush í skoðanakönnun sem gerð var
í júlí en samkvæmt niðurstöðum
könnunar, sem gerð var í gær, hefur
Bush nú minnkað muninn niður í sjö
prósent. Samkvæmt könnuninni hef-
ur Bush nú 42 prósent stuðning
Bandaríkjamanna en Dukakis 47
prósent.
Stuðningsmenn Bush vinna nú að
undirbúningi að flokksþingi repú-
blikana sem haldið verður um miðj-
an mánuðinn. í undirbúningi er
stefnuskrá flokksins sem verður
formlega kynnt á þinginu. Að sögn
stuðningsmanna Bush er mikil
áhersla lögð á reynslu Bush í utan-
ríkismálum en Dukakis hefur einna
helst verið gagnrýndur fyrir htla
reynslu í þeim málurn.
Stuðningsmenn Bush segja að ekki
sé nóg að afla sér reynslu á sviði inn-
anríkis- og utanríkismála þegar
komið er í forsetaembættið og segja
að repúblikanar hafi þá reynslu sem
þarf til að stjórna landinu af rögg-
semi.
í stefnuskránni kemur fram að
Bush muni ekki hækka skatta en
skattamál hafa ætíð verið mikilvæg
kosningamál í Bandaríkjunum. Þar
kemur einnig fram að Bush sé
hlynntur því að fjárlög til innanríkis-
mála skuli skorin niður til að minnka
halla ríkissjóðs og að herða verði
baráttuna gegn fíkniefnum í landinu.
Fíkniefnavandi Bandaríkjanna ætlar
að reynast hitamál í kosningabarátt-
unni og leggja báðir frambjóðendur
mikla áherslu á að leggja verði meira
kapp á að beijast gegn aukinni notk-
un fíkniefna.
Hvað varðar utanríkismál er
áherslan á hin sígildu efni repúblik-
ana, efla skuli varnir landsins og að
halda skuli áfram með stjörnu-
stríðsáætlunina en Dukakis hefur
lýst sig andvígan henni.
Fjöldahandtökur á Iriandi
Fjörutíu og tveir írskir lýðveldis-
sinnar voru handteknir í miklum
óeirðum sem brutust út í Belfast á
Norður-írlandi í gær. Rósturnar
hófust þegar kaþóhkkar söfnuðust
saman á götum borgarinnar til að
minnast þess að 17 ár eru liðin síð-
an yfirvöldum var gert kleift að
handtaka menn án þess að til rétt-
arhalda yfir þeim kæmi. Þessari
stefnu yfirvalda var breytt árið
1975.
Lýðveldissinnarnir köstuðu
bensínsprengjum, handsprengjum
og grjóti að lögreglu í nótt að sögn
yfirvalda. Eldur var borinn að bif-
reiðum á götum borgarinnar og
árás var gerð á kirkju baptista.
Átta lögreglumenn særðust í átök-
unum.
Aö sögn lögregluyfirvalda notuðu
lögreglumenn gúmmíkúlur til að
dreifa mannfjöldanum en þeir við-
urkenndu að hafa notað alvörukúl-
ur þegar skotið var að þeim.
Reuter
Suður-Afríka hefur
brottflutning herja
sinna frá Angóla
Suður-Afríkustjórn mun hefja
brottflutning heija sinna frá Angóla
í dag til nágrannaríkisins Namibíu.
Alls eru tvö þúsund suður-afrískir
hermenn í Angóla og samkvæmt
skilmálum ' vopnahléssamnings
Kúbu og Angóla, sem undirritaður
var á mánudag, verða alhr hermenn-
irnir á brott fyrir 1. september nk.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Chester Crocker,
sagði í gær að Bandaríkjasijórn
myndi ekki hætta stuðningi við
skæruhðahreyfingu UNITA sem bar-
ist hefur gegn yfirráðum Suður-
Afríku í Angóla. Hann gaf í skyn að
aðstoðinni yrði hætt ef Sovétríkin
myndu draga stuðning sinn við
stjórn Angóla til baka.
Talsmenn UNITA sögðu að þeir
myndu halda baráttunni áfram þar
til stjómvöld í Suöur-Afríku sam-
þykktu að fulltrúar UNITA tækju
þátt í friðarviðræðunum. Frekari
friðarviðræður deiluaðha í Angóla
hefjast þann 22. ágúst nk.
Reuter
Umsjón:
Steinunn Böðvarsdóttir
Hamadi neitar
ásökunum
um morð
Mohammed Ah Hamadi, sem í Hinn flugræninginn, Izz al-Dine,
gær viðurkenndi aðUd að ráni hefur enn ekki fundist. í réttinum
bandarískrar farþegaþotu árið var lesin yfirlýsing vitnis þar sem
1985, hefur neitaö að hafa átt aðUd kemur fram að al-Dine hafi verið
að morðinu á Robert Stethem, sá er myrti Stethem. Að sögn yfir-
bandarískum kafara sem var far- valda er ekki efast um framburð
þegi í véhnni. þessa vitnis.
Hammadi, sem er shíta múham- Hammadi og félagi héidu 39
eðstrúarmaður, hefur hingaö til bandarískum gíslum fóngnum í
neitað að hafa átt aðild að flugrán- tæpar þrjár vikur. Þeim var sleppt
inu en sagði í gær að hann heföi þegarlsraelsstjómgekkaðkröfum
gripið til þessa ráös í örvæntingu þeirra um að sleppa úr haldi 700
til aö stuöla að því að fá félaga sína shíta múharaeðstrúarmönnum,
leysta úr fangelsi í ísrael. . Ekki er enn Ijóst hvaða áhrifjátn-
Hammadi kvaðst hafa reynt að ing Hammadis keraur til með að
fá félaga sína, sem tóku þátt í flug- hafa á örlög vestur-þýska kaup-
ráninu, til að hverfa frá áætlun sýslumannsins Rudolf Cordes en
sinni aö myrða Stethera þar sem honum er haldið í gíslingu í Líban-
þeir hafi komið sér saman um að on.
lífi farþeganna yrði þyrmt.