Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Sviðsljós
I>V
Ólyginn
sagði...
Bruce Willis
i hefur nú þurft að hægja aðeins á
i sér. Hann sést nú aldrei í villtum
■ veislum í Hollywood. þó að hann
hafi aldrei sleppt slíku hér á árum
áður. Bruce hefur einnig lagt
drykkju á hilluna. Og hver er
ástæðan? Jú, konan hans, leik-
konan Demi Moore, á von á sér.
og hefur krafist þess aö hinn til-
vonandi pabbi láti sjá sig meira
heirna hjá sér. Hún er einnig
hæstánægð með það að síðan að
Bruce breytti um liferni þá hefur
hann lést um 12 kíló.
Tom Selíeck
hatar að vera álitinn kyntákn.
Því er það að þegar hann undir-
ritar samninga þá gengur hann
úr skugga um aö hann fari ekki
meira úr skyrtunni en þðrf er á.
Úr því minnst er á skyrtu skal
þess getið að hann kann best við
sig í hinum frægu Hawaii-skyrt-
um með blómamunstrunum.
Kaupir hann um 48 skyrtur á
ári, fjórar í mánuði, og kosta her-
legheitin um 490.000 krónur.
Mike Tyson
er greinilega betri í hnefaleikum
en hann er við að leggja bílum.
Eitthvað mistókst honum um
daginn og þegar tvo lögreglu-
menn bar að, hreytti hann út úr
sér aö þeir gætu hirt andskotans
bílinn, því bíllinn hefði aðeins
valdið sér vandræðum. Bifreiðin
var þriggja mánaða gamall Rolls
Royce og var henni skilað aftur.
Urvalslið DV og nokkrir skipverjar af sovéská skemmtiferðaskipinu Maxim Gorki. Einar Guðmundsson var dómari.
DV rassskellti Rússana
Þann 2. ágúst sl. var leikinn stórleik-
ur á grasvellinum í Mosfellsbæ. Voru
hér á ferðinni úrvalslið DV og nokkr-
ir starfskraftar sovéska skemmti-
ferðaskipsins Maxim Gorki. Vann
DV-liðið yfirburðasigur, sex mörk
gegn engu.
Forsaga málsins er sú að hinir sov-
ésku skipverjar höfðu mikinn áhuga
á að leika við 1. deildar lið hér á landi
en slíku var ekki hægt að koma við
nú. Var þá leitað til DV sem varð
góðfúslega við bón þeirra Sovét-
manna.
Eins og áöur sagði fór leikurinn
fram í Mosfellsbæ og sáu bæjaryfir-
völd þar um að merkja völlinn og
útvega dómara, auk þess að sjá til
þess að fánar landanna væru dregnir
að húni.
í upphafi var jafnt með liðunum
og var staðan 0-0 í leikhléi. En strax
í upphafi síðari hálfleiks fór að draga
til tíðinda þegar færni hinna íslensku
fóta fór aö koma í ljós. Um 20 sov-
éskir áhorfendur fylgdust meö leikn-
um í votviðri en dugði ekki til.
Skal þess getið að liösmenn DV-
Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum.
liðsins kviöu mjög fyrir leik þessum
þar sem þeir höfðu heyrt að í liði
hins sovéska alþýðulýðveldis væru
nokkrir Belanovar, Dassajevar og
Ratzar. Höfðu menn á orði að hinir
betri leikmenn Maxim Gorki hlytu
bara að hafa þurft að vera á vakt
þennan dag.
Eftir leikinn var íslendingunum
færð barmmerki með mynd af Lenin
sem vináttuvotti. Meðal gárunganna
hlutu merki þessi heitið „Lenin-
orðan“. Sáust hörðustu sjálfstæðis-
menn þá spranga um með Lenin í
bindislmútnum.
Eiríkur Jonsson safnstjóri stígur rússneskan kósakkadans við sovéska Ægir Már Kárason, fréttaritari DV á Suðurnesjum, geysist fram völlinn en
markvörðinn. Viðir Sigurðsson og Örn Tryggvi Gislason eru við öllu búnir.
Þegar fólk kemur til Bandaríkjanna i fyrsta skipti rekur þaö oft upp
stór augu yftr auglýsingaskiltamergöinni sem „prýöir" flesta þjóövegi sem ,
og aðra staði. Þetta skilti er aö flnna í Neváda og auglýsa þar hliö viö
hliö Kit Kat Ranch, sem mun vera hóruhús, og nokkrar bílapartasölur.
Það er munur að hafa þetta allt á einum staö.