Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988. 19 Sviðsljós Fyrstur til að leysa þrautina Travers McCullough, 16 ára gamall Lundúnabul, er sagöur vera fyrsti maöur í heimi til aö leysa hlna svokölluöu klukku Rubiks. Kfukkan er nýjasta þraut Erno Rubiks, hins ungverska arkitekts sem náöi heims- (rægö þegar töfrakubbur hans fór sem eldur i sinu um heim allan. Simamynd Teuter Díana prinsessa sleppir ekki hendinni af strákunum tveimur enda aldrei að vita upp á hverju þriggja og sex ára gamlir guttar geta tekið. Karl og Diana áttu sjö ára brúðkaupsafmæli þann 29. júli sl. Simamynd Reuter og Joan Collins hafa nú bundið enda á gamalt rifrildi sem byrjaði þegar Dallas og Dynasty voru keppinautar. Rifrildrið endaði þegar Joan las viðtal við J.R. í tímariti þar sem hann lét hafa eftir sér að hann hefði farið út meö Joan þegar hún var sautján, og honum hefði fundist hún fal- legasta stúlka sem hann hefði nokkurn tíma séð. Joan mun hafa hringt í hann til að þakka um- mælin og eftir langt símtal þá ákváðu þau að leika saman í sjón- varpsmynd. Og nú slást banda- rísku sjónvarpsstöðvarnar um að fá aö gera myndina. Hann er gamall maður sem býr við sjóinn og deildi hann mörgum veiði- túrnum með rithöfundinum Emest Hemingway sem síðar áttu eftir að blása anda í skáldið. Gregorio Fuentes var skipstjóri á snekkju Hemingways, E1 Pilar, og aldavinur skáldsins. Hann er einnig líklega sá Kúbubúi sem best þekkti Hemingway en hans er enn minnst á Kúbu, 27 árum eftir dauða hans. Gamli sjóarinn varð níræður í júlí en minningar hans um „Papa“, eins og flestir Kúbanir kölluðu hinn bandariska rithöfund, em lifandi. Gregorío minntist dagsins, „senni- lega í kringum 1950“, þegar Heming- way fékk hugmyndina að „The old man and the sea“, sögu um hugrekki aldraðs sjómanns. Bókin var gefin út 1952 og tveimur árum seinna fékk Hemingway nóbelsverðlaunin fyrir hana. Gamli maðurinn „Sástu bátinn þarna?" hafði Greg- orio spurt Hemingway er þeir sigldu nálægt Cabanas sem er um 60 km vestur af Havana. „Það var þarna gamall fiskimaður og við hlið hans var ungur drengur. Gamli maðurinn var að paufast viö að ná fiski úr neti og hrópaöi til okkar að snauta í burtu. Seinna sagði Hemingway mér að hann ætlaði að skrifa bók um þessa sjón og að ég gæti mikið hjálp- að honum,“ sagði Gregorio. Hann situr í gömlum slitnum hæg- indastól í stofunni í látlausa húsinu sínu í sjávarþorpinu Cojimar. Greg- orio minnist þess þegar hann hitti rithöfundinn fyrst árið 1925. „Það var á Tortugu, sem er sú bandaríska eyja sem er næst Kúbu, eftir mikinn storm. Hann var með nokkrum öðrum og við gáfum þeim mat og tókum bát þeirra í tog. Hem- ingway sagði við mig á reiprennandi spænsku: „Sé þig á Kúbu,“ en ég hugsaði ekkert meira út í það. Þremur árum seinna kom Heming- Gregorio Fuente, tyrrum skipstjóri á El Pilar, stendur hér viö brjóstmynd af Hemingway sem íbúar Cojimar reistu til minningar um rithöfundinn. way í fyrsta skipti til Kúbu og dvald- ist þá í tvo sólarhringa. Seinna meir varð hún heimili hans. Þurfti að hreinsa hugann Á þeim tíma þvældist Gregorio á skipum sem sigldu til Evrópu og Afr- íku en árið 1935 sneri hann til Kúbu þó aö sjálfur sé hann reyndar fæddur á Kanaríeyjum. Ári síðar varð hann svo skipstjóri á snekkju Heming- ways. „Við vorum vanir að fara til veiða tvisvar eða þrisvar í viku. Hann sagði að hann þyrfti aö hreinsa hugann eftir ritstörfin. Hann skrifaði alltaf á næturnar," sagði gamli sjóar- inn. „Við vorum aldrei lengur í burtu en 28 daga í einu vegna þess að hann þurfti að borga mánaðarleiguna af húsinu." La Vigia , sveitasetrið þar sem Hemingway dvaldist, er nú safn. Setriö er rétt fyrir utan Havana og það var þriðja kona hans sem fann það. Rithöfundurinn borgaði 828.000 krónur fyrir staðinn í beinhörðum peningum árið 1940. Um 20.000 ferða- menn koma þangað á hverju ári til að mega augum líta ritvél rithöfund- arins, bækur hans og uppábúið kvöldverðarborðið. Elskaði sterka bjorinn og loftslagið . Auk La Vigia er íleira á eyjunni sem minnir á Hemingway, þessari eyju sem hann elskaði fyrir djúpsjáv- arveiðar, sterkan bjór, gott romm og hlýtt loftslag. Rétt fyrir vestan Ha- vana er hafnarsvæði með veitinga- stöðum, hótelum og minjagripabúö- um sem bera nafn hans. Ferðamenn flykkjast til miðbæjarins og á barinn Bodeguita del Medio þar sem hann var vanur að sitja og sötra þjóöar- drykkinn Mojitos sem samanstendur af rommi, sykri, mintu og lime. Þegar sjómenn í Cojimar fréttu um sjálfsvíg Hemingways árið 1961 söfn- uðu þeir fé fyrir bronsbrjóstmynd af skáldinu, “'sennilega það fyrsta sem gert var til að minnast Hemingways eftir dauða hans. ---------------------'---------------------------------------------------------------------------------7--------------------- Ólyginn sagði... Connie Sellecca - sem sjónvarpsáhorfendur ættu að muna eftir úr Hótelþáttunum - fékk skell nýlega. Hún var að ganga í hægðum sínum yfir dans- gólf í næturklúbbi einum, þegar hún fékk slæm högg í höfuðið og brjóstkassann. „Arásarmaður- inn“ var stúlka sem dansaði sem tryllt væri, veifandi út öllum öng- um. Connie datt flöt á gólfið og fimm karlstrippdansarar voru óðar komnir til aðstoðar. Stúlku- kindin mun hafa beðist afsökun- ar. Michael J. Fox er í miklu uppáhaldi hjá Pepsi- fyrirtækinu því auglýsing, sem hann lék í fyrir það, hefur borið árangur. Pepsi hefur þv.í beðið hann um að koma fram í þremur auglýsingum í viðbót. Fyrir þetta smáræði mun Michael svo fá 92 milljónir á ári eins lengi og aug- lýsingarnar verða notaðar. Larry Hagman Hemingways enn minnst á Kúbu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.