Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 34
34
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Erlend myndsjá
Tómt vesen
Láfið er tómt vesen. Öll erum við
í vandræðum, hvert á sinn mátann.
Flóðhesturinn (t.v.) strauk úr
sirkus í Hollandi fyrir nokkru og
fann sér síki með innbyggðri kæl-
ingu. Nú er enginn friður fyrir fólki
sem vill að hann fari til baka.
Sæljónið hér að neðan villtist af
leið sinni og rataði upp á klappir
við Ekvador þar sem hitinn er al-
veg að fara með heilsu þess.
Fíllinn til hægri er táningur, að-
eins fjórtán ára að aldri. Dýragarð-
urinn í Peking, þar sem hann býr,
er blankur og því verður ungling-
urinn að lifa á bónbjörgum.
Hlið
friðar
Þetta glæsilega og vængjaða mann-
virki ber heitið Hlið friðar. Um þess-
ar mundir er unnið dag og nótt að
því að fullgera byggingu þess enda
skammt að bíða að það komist í notk-
un.
Mannvirki þetta er raunar hluti af
uppbyggingu Suður-Kóreumanna
fyrir ólympíuleikana sem haldnir
verða í Seoul, höfuðborg landsins, í
komandi mánuði. Þessi þijátíu og
tveggja metra háa og sextíu og
tveggja metra breiða minnismerki
verður hhðið inn í ólympíugarðinn í
Seoul.
Undirbúningur ólympíuleikanna
er nú að komast á lokastig. Mann-
virki eru öll að verða tilbúin að taka
á móti þeim tugþúsundum sem þar
munu koma saman, ýmist sem kepp-
endur, aöstoðarfólk eða áhorfendur.
Margt bendir nú til að stærsta
vandamálið tengt leikum þessum,
deilurnar milh Suður-Kóreu og
Noröur-Kóreu, muni leysast á næst-
unni. N-Kóreumenn hafa loks lýst sig
fusa til samninga og þátttöku í leik-
unum og fari svo mun hhð friðarins
ef til vih standa undir nafni.
Hátt uppi
Báðir eru þessir menn hátt uppi
þótt ástæður þeirra séu óhkar.
Þessi til vinstri er að vinna efst'
uppi í grind aö þrjú hundruð og
fimmtán metra hárri, sjötíu hæöa
skrifstofubyggingu í Hong Kong.
Hinn (til hægri) er að slæpast í fri-
inu sínu og situr á brún Lycabbet-
us-hæðarinnar fyrir ofan Aþenu.
Sá vinnusami hefur þó viðara
útsýni en ferðalangurinn. Loftið
yfir Hong Kong virðist tiltölulega
tært. í Aþenu er hins vegar einhver
mesta mengun sem mælist að jafn-
aði í Evrópu og ber myndin það
meö sér því grámóska er yfir þess-
ari grísku borg.