Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Qupperneq 36
36
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Jarðarfarir Tilkynningar
Minningarathöfn um Ingibjörgu
Helgu Guðmundsdóttur, fv. ljósmóð-
ur, verður haldin í Litlu kapellunni
í Fossvogi föstudaginn 12. ágúst kl.
15. Jarðsett verður frá Kollafjarðar-
neskirkju laugardaginn 13. ágúst kl.
14.
Hrefna Jóhannsdóttir, hjúkrunar:
forstjóri, Hrafnistu, Reykjavík, verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.30.
Útför Guðrúnar Jónsdóttur frá Ási,
Lokastíg 15, Reykjavík, fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 10. ágúst, kl.
13.30.
Útför Guðrúnar Guðmundsdóttur,
Skólastíg 3, Akureyri, ^eín lést
mánudaginn 1. ágúst, fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 10. ágúst, kl.
10.30.
Andlát
Sigríður Elizerdóttir frá Borðeyri.
andaðist í sjúkrahúsinu Hvamms-
tanga 7. ágúst.
Birna Margrét Jónsdóttir frá Akur-
eyri lést þann 8. ágúst í Svíðþjóö.
Tvær nýjar
Regnbogabækur
Regnbogabækur hafa sent frá sér tvær
nýjar kiljur og eru þær nú orðnar níu
alls. Kiljurnar sem hér um ræðir eru
Timothy skjölin eftir Lawrence Sand-
ers en hann er einn kunnasti spennu-
sagnahöfundur samtimans erlendis. Til
marks um það má nefna að þessi bók
hans skipar nú efsta sætið á metsölulist-
um í Bandaríkjunum. Bókin er um 310
blaðsíður að lengd. Seinni bókin, Njósn-
ari af lífl og sál, er eftir John Le Carré
sem af mörgum er talinn einn fremsti
spennusagnahöfundur samtímans. Hann
hefur sent frá sér fjölda bóka sem notið
hafa fádæma vinsælda. Hann er íslend-
ingum að góðu kunnur bæði fyrir bók
sína Njósnarinn sem kom inn úr kuldan-
um og sjónvarpsþættina um Smiley í Tin-
ker, Taylor, Soldier, Spy sem sýnd var
hér i sjónvarpi fyrir nokkrum ámm.
Bókin er 595 bls. að lengd. Útsöluverð
bókanna er kr. 590. Regnbogabækur fást
í bóka- og smásöluverslunum um land
allt og einnig í áskrift.
Sumarhátíð í Ólafsvík
Sumarhátíð Ólafsvíkinga verður haldin
dagana 11.-14. ágúst nk. Það er að kom-
ast á það hefð að slegið sé upp hátið þeg-
ar líöa tekur á sumarið. Hátiðin verður
sett funmtudaginn 11. ágúst með sýningu
þeirra níu aðila sem reka Gallerí Grjót
Jeppaeigendur
MONSTER MUDDER
HJÓLBARÐAR
Góðir greiðsluskilmálar
Staðgreiðsluafsláttur
/M4RTsf
Vatnagörðum 14-sími 83188
Laus staða
Staða bókavarðar í Landsbókasafni Islands er laus
til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi próf
í bókasafnsfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu
fyrir 1. september næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 8. ágúst 1988.
Til sölu
2 notaðir sniglar, 12 tommur x 4 metrar
og 6 tohnmur x 7 metrar. Sem nýr álland-
gangur, 7 metra langur, 70 cm breiður,
með handriði. 2 loftblásarar, annar þeirra
tvöfaldur. Deutz dísilvél, týpa F2L912.
Upplýsingar gefur
Þörungaverksmiðjan hf.,
Þorgeir Samúelsson,
í síma 93-47740
RÝMINGARSALA
Nýir vörubílahjólbarðar.
MJÖG LÁGT VERÐ.
900X20/14 PR. nælon.... Kr. 9.500,-
000X20/16 PR. nælon.... Kr. 10.800,-
100X20/16 PR.nælon..... Kr. 11.800,-
000X20 radial......... Kr. 12.800,-
100/20 radial......... Kr. 14.800,-
1 R 22,5 radial....... Kr. 12.900,-
2R 22,5 radial........ Kr. 14.900,-
400X24/24 PR. EM nælon Kr. 36.000,-
Gerið kjarakaup.
Sendum um allt land.
BARÐINN HF.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Simi 30501 og 84844
sem verður opnuð í húsnæði grunnskól-
ans í Ólafsvík fram á sunnudaginn 14.
ágúst. Föstudaglnn 12. ágúst kemur Al-
þýðuleikhúsið í heimsókn og verður með
tvær sýningar. Sú fyrri verður kl. 17, á
bamaleikritinu Ævintýrið á ísnum, en
sú seinni verður kl. 21 og þá verður sýnt
Íeikritið Eru tígrisdýr í Kongó. Aö lok-
inni síðari sýningunni kemur frarn
söngtrióið Heklur. Laugardaginn 13.
ágúst verður Kvenfélag Olafsvíkur með
hina árlegu útigrillveislu í Sjómanna-
garðinum. Kassabílarailý og ýmsar uppá-
komur verða fyrir bömin. Einnig stendur
til að kafíihúsið Kaldilækur verði opið
og byggðasafnið í gamla pakkhúsinu. Um
kvöldið verður dansleikur í félagsheimil-
inu á Klifi og þar verða engir aðrir en
Stuðmenn sem halda uppi fjöri langt
fram á nótt. Hátíðinni lýkm- svo sunnu-
daginn 14. ágúst.
Indverska barnahjálpin
Að gefnu tilefni vill indverska bama-
hjálpin taka fram að sparisjóðsbók henn-
ar er nr. 72700 í Búnaðarbankanum,
Austurbæjarútibúi.
Barðstrendingafélagið
fer í árlega fjölskylduferð sina laugardag-
inn 13. ágúst nk. Ekið verður á Hvera-
velli og í Kerlingarfjöll. Farið verður frá
Umferðarmiðstöðinni austanverðri kl. 9
f.h. Miðapantanir h)á Ólafi A. Jónssyni,
s. 71374, Maríu Jónsdóttur s. 656417 og
Vikari Davíðssyni, s. 36855, á kvöldin.
Mætið vel búin og nestuð.
nuiiini iicniiui
dulrænar frásagnir
Hulinn heimur er nýtt tímarit sem hafið
hefur göngu sína. Það hefur sérstöðu
meðal tlmarita að því leyti að það fjallar
um efni sem ekkert annað tímarit á hin-
um almenna markaði gerir en það em
dulræn fyrirbæri og ýmsa hluti sem hafa
verið og em manninum óskiljanlegir.
Lesendum Hulins heims mun gefast kost-
ur á að lesa greinar og viðtöl við íslend-
inga og frásagnir margs konar um dul-
ræna reynslu og fyrirbæri. Útgefandi
væntir þess að fólk sendi inn frásagnir
af eigin reynslu, svo sem skyggnilýsing-
ar, kynni við huldufólk eða framliöna
menn, vitranir, hugboð og jafnvel
drauma. I fyrsta tölublaði Hulins heims
er viðtal við Guðmund S. Jónasson eða
Sigurfrey en í vetur kom út bók eftir
hann, Framtíðarsýnir sjáenda. Viðtalið
fjallar um rúnaiðkun og galdra á islandi
í dag. Greinar era eftir Helga Hallgríms-
son náttúrufræðing um sagnir af huldum
vættum á íslandi. Ennfremur er sérstæð
frásögn imgra íslenskra hjóna af ótrú-
legri reynslu stnni af ærsladraug. Auk
þess em margar erlendar greinar þýddar
úr breska tímaritinu „Unexplained".
Blaðið er gefið út og unnið af Prentverki
Austurlands hf. Upplag er-6000 eintök og
gefin út 6-10 blöð á ári. Blaðið er ein-
göngu selt í lausasölu á flestum blaðsölu-
stöðum landsins.
Kvikmyndir
Bíóborgin:
Owænting
Harrison Ford og Emmanuelle Seigner i einu atriði myndarinnar.
Frantic, bandarisk 1988
Leikstjóri: Roman Polanski
Handrit: Roman Polanski og Gerard
Brach
Aðalhiutverk: Harrison Ford, Emmanu-
elle Seigner, Betty Bucley, John Maho-
ney
Læknir (Harrison Ford) fer
ásamt konu sinni (Betty Bucley) á
læknaráöstefnu í París. Þau hugsa
sér gott tdl glóðarinnar, höfðu fariö
í brúðkaupsferð til Parísar fyrir 20
árum og ætla að endurtaka hana.
Fyrsta morguninn hverfur konan
af hótelinu. Læknirinn fer að leita
hennar. Fljótlega kemst hann að
raun um að henni hefur verið rænt
en lögreglan hefiu; annan skilning
á málinu. Læknirinn fer að leita á
eigin spýtur.
Þannig hefst einn albesti „þrill-
er“ sem sést hefur í bíóhúsum um
langan tíma. Þetta er jafnframt
glæsileg endurkoma meistarans
Romans Polanski á hvíta tjaldiö.
í þessari mynd virðist allt leggj-
ast á eitt til að magna örvæntingu
læknisins. Handritið er veTskrifað
og eins og í góðum „þriller" er aUt
á huldu vel fram yílr miðja mynd.
Þannig hefur læknirinn enga
hugmynd um hvers vegna konu
hans hefur verið rænt, hvað þá að
áhorfendur geti gert sér það í hug-
arlund. Spennan er mögnuð þar til
taugamar þresta.
Polanski hefur svo sem sýnt við-
Uka takta áður. Strax í fyrstu mynd
meistarans, Hnífur í vatni, má sjá
svipaða spennu og dulúð. Það sem
kemur hins vegar svo skemmtUega
á óvart er að Polanski skuli kominn
í sátt við kvikmyndaheiminn eftir
að á ýmsu hefur gengið undanfarin
ár.
Leikur er einstaklega góður.
Harrison Ford er eins og álfur út
úr hól í hlutverki læknisins og er
erfitt að ímynda sér hann betri.
Emmanuelle Seigner er nýtt and-
Ut í kvikmyndum. Henni svipar
mjög til Nastössju Kinski en er
mun betri leikkona. Hún er
skemmtilega barnaleg og ósvífin í
hlutverki sínu.
Betty Bucley er þroskuð í hlut-
verki sínu og skapar eftirminnUega
persónu sem áhorfendur muna eft-
ir alla myndina þótt hún sjáist að-
eins í byijun.
Þaö er stórmyndaþefur af þessu
verki enda hefur Polanski unnið
stórvirki með því að sanna fyrir
þíógestum svo að ekki verður um
vUlst að töfrar hvíta tjaldsins eru
enn tU staðar þrátt fyrir vídeóvæð-
ingu. Það þurfti snilling tU.
-PLP
Ingilaug á afmælisdaginn ásamt tengdadóttur sinni.. DV-mynd Kristján
Elsti íslendingurinn 104 ára
Regína Thorarensen, DV, SeKossi:
Á fimmtudag, 4. ágúst, varð Ingi-
laug Teitsdóttir, Tungu í Fljótshlíð,
104 ára og er elsti Islendingurinn.
Maður hennar var Guðjón Jónsson
bóndi, dáinn 1958. Einkasonur þeirra
er Oddgeir sem býr myndarbúi í
Tungu ásamt konu sinni, Guðfinnu
Ólafsdóttur ljósmóður.
Ingilaug hefur sl. tíu ár verið á
Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi og
er alveg rúmliggjandi.
Borghildur ekki á Hlekk
Á hestasíðu DV var sagt að Borg-
hUdur Kristinsdóttir úr hestamanna-
félaginu Geysi í Rangárvallasýslu
hefði keppt á hestinum Hlekk frá
Sveinatungu í unglingakeppninni.
Þaö mun vera misskUningur því
BorghUdur keppti á Faxa frá Eyvind-
armúla sem hún á sjálf. Borghildur
sýndi aftur á móti Hlekk í B-P.okks
keppninni. E.J.
Leiðrétting frá Önnu
á Hesteyri
Að gefnu tilefni hafði Anna á
Hesteyri samband við DV vegna leið-
réttingar sem hún vUdi koma á fram-
færi vegna viðtals sem birtist við
hana í síðasta helgarblaði DV. Þar
var haft eftir öðrum aö álfkona ein
hefði hjálpaö móður hennar þegar
gamla Hesteyrarhúsið brann. Það er
ekki rétt heldur sagði hún að sjálfur
skaparinn hefði rétt þeim mæðgum
hjálparhönd og bætti því við að hún
sjálf hefði fundið fyrir honum. Við
biðjum Önnu velvirðingar á þessum
mistökum.