Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Side 40
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Bridge í Búlgaríu:
*
Island í
sextánda sæti
Nú er lokið 11 umferðum af 21 á
'"^Cvrópumóti unglinga í bridge sem
haldið er í Plovdiv í Búlgaríu. Ungu
strákunum hefur gengið þokkalega.
eru með 143 stig og í 16. sæti af 21
þjóð. Leikirnir hafa farið þannig. Við
Sviss 19-11. V-Þýskaland 14-16. yfir-
seta 18-12. Ítalía 5-25. írland 14-16.
Holland 4-25. Grikkland 11-19. Pól-
land 13-17. Danmörk 16-14. Austur-
ríki. 18-12 og 11-19 tap gegn Norð-
mönnum.
Staða efstu þjóða er þannig. 1. Svíar
217. 2. Norðmenn 214. 3. ítalir 201. 4.
Grikkir 199 stig. í dag keppa íslensku
strákarnir við Spánverja og Tyrki en
mótinu lvkur á laugardaginn.
ÍS
Ríkisskip und-
ir smásjána
í haust verður rekstur Ríkisskipa
endurskoðaður með það að mark-
miði að draga úr meðgjöf ríkisins
með útgerðinni.
Undanfarin ár hefur jafnt og þétt
hallað undir fæti Ríkisskipa og viö-
varandi taprekstur aukist. Skip Rík-
isskipa eru í strandsiglingúm um
’Tándið og mikilvæg aðdráttarleið
margra sjávarplássa.
Jafnhliða endurskoðun á Ríkis-
skipum mun samgöngumálaráðu-
neytið standa fyrir heildarúttekt á
strandflutningum og framtíðarhorf-
um segir í frétt ráðuneytisins.
pv
Aflamet
Haraldar
Skuttogarinn Haraldur Kristjáns-
son kom í gær með 313 tonn til hafn-
ar. Aflinn var að mestu leyti þorskur
/sem veiddur var vestur á Hala og
'■^trandagrunni. Þetta ér aflamet og
sló Haraldur Kristjánsson met Akur-
eyrinnar frá siðustu viku sem var
um 270 tonn. Aflaverðmæti Haralds
Kristjánssonar er 46 milljónir. Það
er Sjólastöðin hf. í Hafnarfirði sem
gerir út togarann. akm
SIMAÞJONUSTA
62 4242
Sjúkrabíll 11100 Lögreglan 11166
Slökkviliðið 11100 Læknavakt 21230
LOKI
Alltaf vinaleg, þessi litlu
fjölskyldufyrirtæki!
Veöriö á morgun: 12
Rigning á
Suðaust-
uriandi
Horfur á morgun: Austlæg átt,
rigning á Suðausturlandi, þoku-
loft við Austfirði en skúrir suð-
vestanlands. Þurrt aö mestu á
Norðurlandi og víða vestanlands.
Hiti 10 til 14 stig.
Það sleppa fáir frá hinum ákveðnu stöðuvörðum
Reykjavíkurborgar. Í fyrrinótt var skorið á hjólbarða
fimmtán bifreiða í miðbænum, eins og greint var frá í
DV í gær. Eigenda einnar bifreiðarinnar hafði ekki tek-
ist að verða sér úti um nógu marga hjólbarða til að
fjarlægja bifreið sina í tæka tíð og gætti þess ekki að
setja nýja mynt í stöðumæiinn í hvert sinn sem tíminn
rann út. Þessi mynd var tekin í gærmorgun þar sem
bifreiðin stóð á felgunum í Tryggvagötu. Búið er að
setja sektarmiða í framrúðuna. DV-mynd S
Rúmlega sextíu ára sjómaður handtekinn með fikniefni:
Faðírinn smygl-
aði? börnin sáu
um dreHínguna
- höföu smyglaö og selt fíkniefni 1 tvö ár
Sextiu og tveggja ára skipverji á
Amarfelli, skipi Sambandsins, var
handtekinn í Sundahöfn í gær-
morgun. Við leit í skipinu fundust
um 600 grömm af hassi.
Sá handtekni játaði viö yflr-
heyrslur aö vera eigandi ííkniefn-
anna. Hann játaði einnig að hafa
smyglað fikniefiium í tvö ár. Alls.
mun hann hafa flutt til landsins
um tvö og háift kíló af hassi á þess-
um tíma. Börn sjómannsins, sem
eru þrjátiu og ijögurra og tuttugu
og fimm ára, sáu um að dreifa efn-
inu.
Það voru fíkniefnalögreglan og
tollgæslumenn sem fóru um borð í
skipiö þegar það lagðist að bryggju
um klukkan átta í gærmorgun.
Fíkniefnin voru keypt í Kaup-
mannahöfn. Auk fjölskyldumeð-
limanna voru fleiri handteknir.
Ekki þótti ástæða til að óska eftir
gæsluvaröhaldsúrskurðum þar
sem máhð er að mestu upplýst.
-smc
„Ókeypis
þjónusta fyrir
kvenfólk"
Óvenjulegt dreifibréf er nú í gangi
á höfuðborgarsvæðinu. Þaö er sent
til kvenfólks og því boðið upp á kynni
við karlmenn og konur á aldrinum
16-70 ára. Bréfið hljóðar á þessa leið:
..Góðir dagar og hamingja. Kynning.
Ókeypis þjónusta fyrir kvenfólk. Ég
tek að mér að útvega þér karlmenn
eða kvenmenn við þitt hæfi á aldrin-
um 16-70 ára. Tek líka að mér að aka
fyrir kvenfólk hvenær sem er. Er
með góða bifreið og er rólegur og
heiðarlegur. Virðingarfyllst." Bréfið
er undirritað af manni nokkrum og
uppgefinn fæðingardagur hans og
símanúmer.
Maöurinn varð fyrir svörum er DV
hringdi til hans og spurðist nánar
fyrir um þjónustu þá sem hann aug-
lýsir. Hann segist ekki hafa rekið
þessa þjónustu mjög lengi, en til hans
sé alltaf eitthvað leitað: „Það eru til
dæmis menn sem hafa mikið að gera
og hafa ekki tíma til aö fara á ball
eða svoleiðis og biðja mig að finna
eitthvað sem þeim líkar.“ í bréfinu
sem stílað er á kvenfólk býðst mað-
urinn einnig til að útvega konur.
Hann segir ekki vera mikið um að
konur óski eftir kynnum viö konur,
en þó sé eitthvað um það. Hann seg-
ist líka senda karlmönnum svona
bréf, en þau séu öðruvísi. Hvar hann
finni fylgdarmenn svarar hann að
sumir þeirra séu á skrá hjá sér. Hann
hafi hins vegar ekki fengið leyfi enn
fyrir rekstri skrifstofu en hljcti að fá
það: „Mig vantar bara bókara. Það
er skilyrði." -akm
Ráðgj afamefndin:
Samhljóða
niðurstaða
„Ég á ekki von á öðru en að nefnd-
in skili samhljóða niðurstööum.
Vangaveltur Ríkissjónvarpsins í gær
um klofning og erjur í nefndinni eru
uppspuni frá rótum. Það að nefndin
væri að því komin aö leggja til aö
stjórnin ætti að fara frá er hreint
ótrúlegur heilaspuni. Slíkar vanga-
veltur eru kostulegar þó ekki nema
fyrir það að með því væri nefndin
að fara allsögulega út fyrir verksvið
sitt,“ sagði Einar Oddur Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Hjálms á
Flateyri og formaður ráðgjafar-
nefndar ríkisstjórnarinnar, um að-
geröir til þess að bæta rekstrar-
grundvöll útfiutnings- og samkeppn-
isgreinanna. Þessi nefnd hefur verið
kölluð „litla ríkisstjórnin".
Einar vildi ekkert segja um störf
nefndarinnar. Hún heldur nú tvo
fundi á dag og mun gera þaö út vik-
una. Þá mun starfsfyrirkomulagið
verða endurskoðað. Stefnt er að því
að nefndin skili af sér í kringum 20.
ágúst, um það leyti sem Þorsteinn
Pálsson kemur heim úr fríi, -gse
Þeytti þokulúður
til að fá hjálp
Ungt fólk, maðuf eg kona, var
handtekið eftir aö hafa brotist inn í
Aðalbjörgu RE 5 í nótt. Báturinn íá
við Grandagarð. Stýrimaðurinn, sem
var sofandi um borð, vaknaði við
brothljóð og fór strax í stýrishús
bátsins. Þar fann hann innbrotsþjóf-
ana.
Stýrimaðurinn gat ekki sótt hjálp
án þess að eiga á hættu að missa fólk-
ið frá sér. Hann þeytti því þokulúöur-
inn. Starfsmaður Tilkynningaskyld-
unnar heyrði í lúðrinum og gerði
lögreglu viövart.
Lögreglan handtók fólkið. Líklegt
þykir aö þaö hafi verið í lyfjaleit.
-sme