Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988. Utlönd Hótar brottrekstri Vinnumálaráöherra Póllands hót- aöi um tíu þúsund kolanámumönn- um brottrekstri ef þeir hættu ekki verkfallsaðgerðum og sneru til vinnu á ný. Samningaviðræður verka- mannanna og yfirvalda kolanáma rak í strand í gær en framleiðsla ligg- ur alveg niðri í námunum. Vinna í fimm námum hggur aiveg niðri. Að auki lögðu hafnarverka- menn í Szcezin niöur vinnu í samúð- arskyni viö kröfur námumanna. Verkfahsmenn krefjast þess að fá að stofna óháð verkalýðsfélag auk betri starfsskilyrða og hærri launa. Vinnumálaráðherra og félagsmála- ráðherra Póhands lýstu því yfir að verkfahið væri ólöglegt og að ahir verkamennirnir ættu það á hættu að missa vinnuna. Talsmaður yfirvalda kolanáma í Jasztrzbie, þar sem verkfóU lama nú þrjár námur, sagði aö viðræður um óháð verkalýðsfélag hefðu átt sér stað en að ákvörðun um slíkt yrði að koma frá yfirvöldum í Varsjá, höfuðborginni. Samstaða, hið bannaða verkalýðs- félag, sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem aðgerðir námumannanna voru studdar og sagði Lech Walesa, forystumaður Samstöðu, í gær að verkföU sem shk væru eina leiðin tU umbóta í landinu. Kolanámumenn f Póllandi hafa verið í verkfalli í á fjórða sólarhring. Símamynd Reuter Nýr leið- togi Sósíalistaflokkur Burma kaus í morgun Maung Maung til þess aö gegna hlutverki flokksleiðtoga og þar með æðsta manns lands- ins. Maung Maung hefur verið saksóknari ríkisins í Burma und- anfarið og hefur verið náinn sam- starfsmaður fyrrum leiðtoga sós- íalistaflokksins, Ne Win. Maung Maung tekur við emb- ætti af Sein Lwin sem neyddist til að segja af sér vegna mikilla mótmæla í landinu fyrir viku. Aðgerðir lögreglu og fjölmiðla umdeildar í Þýskalandi Harðar dehur hafa nú risið í Vest- ur-Þýskalandi vegna aðgeröa og framkomu lögreglu og fjölmiðla meðan á hðlega tveggja sólar- hringa eltingarleik við bankaræn- ingja og mannræningja stóð und- anfama daga. Eltingarleiknum lauk með því að lögregla réðst á bifreið mannræningjanna á þjóð- vegi og yfirbugaði þá en þó ekki fyrr en þeir höfðu myrt tvo gísla, ungan pflt og unga stúlku. Mál þetta átti upphaf sitt í útibúi Deutsche Bank í bænum Gladbeck. Þar tókst ræningjunum, þeim Hans-Jurgen Rösner og Dieter Degowski, sem báðir eru taldir hafa verið undir áhrifum flkniefna, að koma höndum yfir fjármuni sem námu nær tíu mihjónum íslenskra króna og komast undan á bifreið með tvo gísla. Lögreglan elti ræningjana um tvö hundruð kUómetra vegalengd tU Bremen þar sem þeir slepptu gísl- unum úr bankanum en tóku þess í stað. herskUdi langferðabifreiö með þrjátíu farþegum. Lögreglunni tókst um svipað leyti að ná á sitt vald unnustu annars ræningjans en henni var sleppt eft- ir að ræningjamir skutu tU bana ungan ítalskan dreng, Emanuel de Giorgi. Ræningjamir óku langferöabif- reiðinni inn fyrir landamæri HoU- ands þar sem þeir slepptu öUum gíslunum nema tveim ungum stúlkum. Þeir komust síðan yfir Hans-Jurgen Rösner, elnn mannræningjanna, stakk skammbyssu upp I munn sér til að sýna blaðamönnum að hann myndi fremur láta lifiö en gefast upp. Simamynd Reuter farþegabifreið og snem aftur tU Þýskalands. Leiknum lauk síðan, sem fyrr segir, þegar lögreglan réðst á ræn- ingjana og yfirbugaði þá á hrað- braut og kostuðu aðgerðimar aðra stúlkuna hfið en hin er hættulega særð eftir. AUan tímann, sem eltingarleik- urinn við ræningjana stóð, fylgdu fjölmiðlar þeim fast eftir. Öðru hvom stöðvuðu ræningjamir ferð sína tU þess að ræða viö fjölmiðla og tókst þannig að koma viðhorfum sínum og markmiðum á framfæri við allan almenning sem fylgdist með í sjónvarpi og öðrum fjölmiðl- um. Þykir mörgum gagnrýnendum fjölmiðlar hafa leikið þar ósæmi- legt hlutverk og að lögreglan hefði átt að koma í veg fyrir sýningu þessa. Talsmenn lögreglunnar benda hins vegar á að reynt hafi verið aö stöðva fréttamenn eftir því sem kostur var og staðfesta fuUtrúar fjölmiðla þær fuUyrðingar með umkvörtunum um að lögreglu- menn hafi „hindrað þá í starfi“. Búast má við nokkrum eftirmála að máh þessu, einkum þar sem stjómmálamenn hafa þegar gagn- rýnt aðgerðir lögreglunnar opin- berlega. Þá hefur talsmaður flokks Helmut Kohl kanslara lýst þeirri skoðun sinni að framkoma fjöl- miðla hafi verið hneykslanleg, að þeir hafi gert opinbera trúðsleika úr lífi og dauða samborgara sinna. Lik ítalska drengslns borið á brott. Símamynd Reuter I . >.- .1.I I .. I I I ■ I............III.. j áJfe' . Dleter Degowski, annar mannræningjanna, heldur skammbyssu við höku eins gislanna meðan hann ræðlr við fréttamann. Ræningjarnir skutu síðar Silke Bíschoff, sem var átján ára gömul, til bana. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.