Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Page 13
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988. 13 Lesendur Kjartan spyr af hverju Vonarstræti, sem er við norðurhlið væntanlegs ráðhúss, þurfi að vera einstefnuakstursgata á meðan framkvæmdir eru við húsið. Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 Tvær fyrirspurnir - til gatnamálastjóra Kjartan hringdi: Ég er héma með tvær fyrirspurnir til gatnamálastjóra varðandi mið- bæjarkjarnann. Fyrri spurningin varðar ráðhúsbygginguna. Vegna framkvæmda við ráðhúsið hefur Vonarstræti verið breytt í einstefnu- akstursgötu í stað tvístefnugötu eins og hún var áður. Ég get ekki skilið af hverju þetta þarf að vera því framkvæmdir taka aðeins pláss frá gangstéttinni sem var þarna en ekki götunni og geta tveir bílar, jafnvel strætisvagn og bíll, auðveldlega mæst þama. Þess má geta að öðru leyti að ég er ein- dreginn stuðningsmaður ráðhússins. Vegna þess að Vonarstrætinu var breytt í einstefnu þá myndar sú að- gerð teppu í bæinn því mjög margir fara þess í stað Vesturgötuna og Hafnarstrætið. Það eykur svo á ann- að vandamál sem varðar spurningu mina númer tvö. Gatnamótin á mótum Hafnarstræt- is og Lækjargötu era mikil slysa- gatnamót. Nú er búið aö setja ljós þar sem virðast þó ekki leysa vand- ann. Ég spyr hvort enn séu tvær akreinar á Hverfisgötu sem tekur við Hafnarstræti þegar komið er þvert yfir Lækjargötuna. Það er ekki merkt þannig en ég þykist þó vita að þarna eigi að vera tvær akreinar. Ég skil ekki af hverju þær era ekki línustrikaöar og merktar með örv- um, það getur ekki verið svo mikil aðgerð. Það er nefnilega mjög algengt aö bílstjórar hægra megin á Hafnar- stræti keyri í veg fyrir vinstri akrein- ina á Hverfisgötunni, og það er að mínu áliti vegna skorts á merking- um. Eins og sjá má liggur bifreiðin alveg niðri á hindruninni með fimm manns i bílnum. Hindrunin er þvi mjög varasöm bifreiðum. Hraðahindranir Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði, skrifar: Mikillar óánægju gætir nú meðal bifreiðarstjóra, sem aka þjóðveg 96 sem hggur í gegnum Búðakauptún, vegna hraðahindrana sem starfs- menn Búðahrepps hafa sett beggja vegna þorpsins. Það er lögun þeirra sem veldur óánægjunni en hún er ekki hentug fyrir bifreiðir, hvorki stórar né smáar. Til dæmis er hæðin á hindruninni sem er yst í þorpinu, hjá Heiði, um 16 cm og 2,70 m er mesta lengd. Það skal tekið fram að þetta var mælt í viðurvist lögregluþjóns og fleiri. Bens bifreið var stöðvuð á hindraninni og í hana settust fimm manns en enginn farangur var í henni. Þá lá bifreiðin alveg niðri á hindraninni svo að erfitt hefði verið að hreyfa hana án þess að eiga það á hættu að skilja pústkerfið eftir. Það skal tekiö fram að margir hafa skemmt bíla sína á hindranunum ef þeir hafa ekki tekið eftir þeim í tíma. Hindranirnar era merktar beggja megin við þær en margir hafa kvart- að undan því aö þær séu ekki nægj- anlega vel merktar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.