Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 8
8
MÁNÚDÁGUR 29. ÁGÚST 1988.
Viðskipti______________________________________________________________dv
DV kannar stríðið á gosdrykkjamarkaðnum:
Kókið trónir á toppnum
og íscola kemur á óvart
Kóka kóla er langvinsælasti drykk-
urinn á gosdrykkjamarkaðnum sam-
kvæmt könnun sem DV hefur gert
hjá þremur þekktum stórmörkuðum
á Reykjavíkursvæðinu. Það sem
kemur hins vegar á óvart er góð sala
á íscola, nýja svarta drykknum frá
Davíð Scheving. Að vísu er íscola á
miklu lægra verði en kók og pepsí.
Kaupmennirnir eru allir sammála
um að þessi drykkur Davíðs hafi
heppnast og sé allt annar en Sól-kóla
drykkurinn sem var sorgarsaga og
Davíð hætti raunar með.
Kókið með 70 prósent
Kókiö hefur sem fyrr um 70 prósent
Peninganiarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 20-25 Bb
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 22-25 Bb
6mán. uppsogn 23-26 Bb
12mán.uppsögn 24-28 Ab
18mán. uppsogn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 8-12 Bb
Sértékkareikningar 10-25 Bb
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 4 Allir
Innlánmeðsérkjörum 20-34 Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7,26-8 Vb
Sterlingspund 9,75-10,50 Vb
Vestur-þýsk mórk 4-4.50 Vb.Sp
Danskar krónur 7.50-8,50 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp.Úb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 34-41 Sp
V;öskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 35-38 Sp
Utlán verötryggö
Skuldabréf 9-9,50 Sp.Bb
Útlán til framleiðslu
ísl. krónur 34-37 Úb.Lb,- Sb.Sp
SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp '
Bandaríkjadalir 10,25-11 Úb.Sp
Sterlingspund 12,75- 13,50 Úb.Sp
Vestur-þýsk mörk 7-7,50 Allir nema Vb
Húsnaeðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 56,4 4.7 á mán.
MEÐALVEXTIR
Overðtr. ágúst 88 41,0
Verðtr. ágúst 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala ágúst 2217 stig
Byggingavisitalaágúst 396 stig
Byggingavisitalaágúst 123,9 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 8% 1. júlí.
VERÐBRÉFASJÖÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1.7526
Einingabréf 1 3,239
Einingabréf 2 1.858
Einingabréf 3 2.069
Fjolþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1,511
Kjarabréf 3.228
Lífeyrisbréf 1.628
Markbréf 1,695
Sjóðsbréf 1 1,555
Sjóðsbréf 2 1,379
Tekjubréf 1,545
. Rekstrarbréf 1,2718
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip 269 kr.
Flugleióir 240 kr.
Hampiðjan 116 kr.
Iðnaðarbankinn 168 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr. "
Verslunarbankinn 120 kr.
Útgeróarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb=Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
7-up frá Sanitas hefur meiri sölu
en Sprite og Límó. Eins hefur Sanitas
nokkuð góða stöðu með greipið sitt
og tónikið.
Of mikið úrval af gosdrykkjum
Allir eru kaupmennimir sammála
um að gífurleg spenna einkenni gos-
drykkjamarkaðinn. „Þá eru tegund-
irnar alltof margar. Það gengur eng-
an veginn að bjóða fólki upp á 130
tegundir af gosdrykkjum. Það fer
mikil vinna í þetta. Ég efast ekki um
að kaupmenn eiga eftir að grisja úr
og velja og hafna, hvort sem fram-
leiðendurnar halda áfram að koma
með fleiri tegundir eða ekki.“
Beðið eftir svörtum Agii
Nokkur eftirvænting ríkir nú á
markaðnum eftir svarta drykknum
frá Agli Skallagrímssyni en búist er
við honum á markaðinn ánæstunni,
líklegast um mánaðamótin septemb-
er-október.
Það einkennir markaðinn enn
fremur að sífellt minna selst af gosi
í gleri. Menn telja að glerið verði
dottið alveg út af markaðnum eftir
eitt ár eöa svo.
Þetta er brothættur markaður
Það breytir því samt ekki að gos-
markaðurinn á íslandi verður alltaf
markaður gífurlegrar baráttu. Hann
er brothættur. Það koma strax nýjar
sölutölur ef menn standa sig ekki í
samkeppninni. -JGH
Kókið hefur afgerandi forystu á gosdrykkjamarkaðnum á helsta keppinautinn, pepsí. Gífurleg samkeppni rikir nú
á gosdrykkjamarkaðnum.
af markaðnum á móti um 25 prósent
hjá pepsí. íscola gerir hið ótrúlega
og kemst á blað með nokkur prósent
síðustu vikurnar. „íscola virkar vel
og er mikið keypt,“ sagði einn kaup-
maðurinn. „Ég sel mjög vel af íscola
á þessu verði. Þetta er allt annað
dæmi en Sól-kólað sáluga.“
Á meðan dósin af kók og pepsí er
í kringum 38 krónur er íscola á um
25 krónur. Þessi verðmunur sýnist
verka. Spurning er reyndar öllu frek-
ar hvort Davíð sé að gefa drykkinn,
láti sér engan hagnað duga á meðan
hann berst af öllu afli við að festa sig
í sessi á markaðnum.
Egill sterkur í appelsíninu
Olgerð Egils Skallagrímssonar hef-
ur rpjög trausta stöðu í sölu á appel-
síni og malti. Egils-appelsínið selst
mest og er það og Egils-maltið nánast
einrátt. „Egill er firnasterkur í malt-
inu, ætli hann sé ekki með um 80
prósent af þeim markaði," segir einn
kaupmaðurinn.
Davíð selur lítið af Sól-appelsíni,
samkvæmt könnuninni. „Það dæmi
gengur ekki" upp hjá honum. Hins
vegar er hann góður í greipinu. Hann
er líka á nokkurri hreyfingu með
Límó og Sóló.“
Trikk Davíðs er tilboðsverð
Aðaltrikk Davíðs er tilboðsverð á
drykkjum hans. Hann selur alla
drykki sína á mun lægra verði en
keppinautamir. Á móti kemur að
hann nær sölu. Menn spyrja sig frek-
ar hvað gerist þegar hann hækkar
verðið. Dettur salan harkalega niður
eða hafa drykkir hans öðlast sess?
Ferðaskrifstofa ríkisms:
Söluverðið er um 20 milljónir
Búist er við tíðindum af sölu hluta-
bréfa ríkisins í Ferðaskrifstofu ríkis-
ins í dag eða á morgun. Starfsmenn
fyrirtækisins hafa forkaupsrétt að
hlutabréfunum. Þeir eru nú að ræða
hvort þeir eigi aö leggja fram tilboð
eða ekki. Ef tilboöið kemur verður
það að vera í kringum 20 milljónir
króna.
Ferðaskrifstofan er metin á um 32
milljónir króna. Selja á tvo þriðju
hluta fyrirtækisins en ríkið ætlar að
eiga einn þriðja áfram. Starfsmenfi-
irnir eru því aö íhuga núna hvernig
þeir geti greitt þessar rúmu 20 millj-
ónir króna.
„Við eigum að vera búin að svara
fyrir lok þessa mánaðar þannig að
timinn er knappur. Ef við komum
með tilboð í hlutabréfin verður það
í dag eða á morgun, þriðjudag,“ segir
Kjartan Lárusson, forstjóri ferða-
skrifstofunnar.
Hvernig sem allt veltur er klárt
mál að stofnfundur nýs félags, Feröa-
skrifstofu íslands hf., verður haldinn
7. september. Þetta nýja félag yfirtek-
ur Ferðaskrifstofu ríkisins.
Leggi starfsmenn Ferðaskrifstofu
ríkisins ekki fram kauptilboð í tvo
þriðju hluta hlutabréfa hins nýja fyr-
irtækis verða hlutabréfin seld á al-
mennum markaði.
„Ef við kaupum ekki tel ég víst að
til séu aðilar í ferðaþjónustunni sem
séu tilbúnir að kaupa hlut í hinu
nýja fyrirtæki. Á það hefur þó ekkert
reynt, enda boltinn ennþá hjá okk-
ur,“ segir Kjartan.
-JGH
Kjartan Lárusson, forstjóri Ferða-
skrifstofu rikisins.
Jón Sigurðsson, fyrrum forstjóri Miklagarðs:
Það er möguleiki á öllu núna
Jón Sigurðsson á fundi með starfsfólki Miklagarðs í siðustu viku. „Nú er ég í fríi og ekki að ráða mig neins
staðar." DV-mynd JAK
„Það er að sjálfsögðu möguleiki á
öllu en ég er ekki í viðræðum við
neina um vinnu. Númer eitt er að
hvíla sig og koma sér i Skorradal-
inn þar sem ég á sumarbústað,"
segir Jón Sigurðsson, fyrrum for-
stjóri Miklagarðs.
Jóni bauðst að verða fram-
kvæmdastjóri sameiginlegs rekst-
urs Miklagarðs og Kron. Hann
hafnaði boðinu þar sem hann taldi
sig ekki fá að ráða nægilega miklu
um sameininguna. „Ég vil vera
skipstjóri á minni skútu, ráða
minni skipshöfn, hvar ég veiði og
hvernig veiðarfæri ég nota,“ sagði
hann.
Að sögn Jóns hafa nokkrir rætt
við hann um nýtt starf. „En það er
ekkert meira. Nú er ég kominn í
frí.“
-JGH